Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurbirni krossbrá í sturtunni eftir að honum var bjargað: „Typpið var nánast horfið“

Sigurbirni krossbrá í sturtunni eftir að honum var bjargað: „Typpið var nánast horfið“

Sig­ur­björn Þór­munds­son, háseti á tog­ar­anum Snorra Sturlu­syni RE, lenti í lífs­háska þegar hann féll í ískalt hafið í Smugunni á milli Íslands og Noregs. Krafta­verk og sam­stillt átak félaga hans varð honum til lífs. 

„Það var rosa­legt sjokk að lenda allt í einu í köldum sjónum. Ég fór á bólakaf en náði að kom­ast upp á yfir­borðið. Þá voru félagar mínir búnir að kasta til mín björg­un­ar­hring og ég náði að skríða upp á hann,“ sagði Sig­ur­björn í við­tali við DV um miðjan sept­em­ber árið 1996.

Óhappið varð um tíu­leytið að kvöldi fimmtu­dags­ins 5. sept­em­ber. Sig­ur­björn lýsti því að veður hafi verið fremur gott en sjór­inn í úthaf­inu var ískaldur, aðeins um 3 gráður á Celsíus. Sig­ur­björn var um fjórar mín­útur í sjónum. Segir í DV að við þetta hita­stig sjávar sé gert ráð fyrir að menn lifi af í þrjár mín­útur í mesta lagi.

„Ég hugs­aði bara um að halda á mér hita og reyna sem minnst á mig. Ég varð mjög smeykur þegar ég fjar­lægð­ist skipið í myrkr­inu og var kom­inn 80–100 metra burtu frá því. Mér var farið að kólna mjög mikið þegar ég sá bát­inn koma í átt­ina til mín og þá vissi ég að lífi mínu var borgið,“ segir Sig­ur­björn um björg­un­ina.

Hann lýsti atburða­rásinni. 

„Við vorum fjórir félag­arnir uppi á dekki að láta trollið fara þegar ég flækt­ist með annan fót­inn í keðju. Skyndi­lega strekkt­ist á keðj­unni og við það kastað­ist ég í sjó­inn. Félag­arnir voru fljótir að bregð­ast við. Tveir hlupu í björg­un­ar­hring­ina og köst­uðu þeim útbyrðis. Þegar þeir sáu að ég var búinn að ná hringnum hlupu þeir til að gera bát­inn kláran. Þeir voru mjög fljótir að setja bát­inn niður og ná í mig. Björg­un­ar­að­gerðin gekk full­kom­lega upp og hver sek­únda var nýtt til hins ýtrasta. Það hefði ekki mátt muna miklu því í svona aðstæðum er þetta spurn­ing um sek­úndur. Félagar mínir fá topp­ein­kunn fyrir björg­un­ar­starfið og það er þeim að þakka að ég er á lífi.“

„Eftir að ég kom aftur um borð var ég mjög sjokker­aður. En ég náði sem betur fer að jafna mig fljót­lega á öllu saman og allir félagar mínir um borð gerðu sitt til að láta mér líða betur. Mórall­inn er ein­stak­lega góður um borð í skip­inu og það hjálp­aði mér mikið. Það kom fljót­lega læknir úr varð­skip­inu um borð og skoð­aði mig,“ sagði Sig­ur­björn í DV fyrir 24 árum. 

Stundin ræddi við Sig­ur­björn um þess lífs­reynslu árið 2006 eða þegar 20 ár voru liðin frá óhapp­inu,

„Ég man þetta atvik mjög vel. En ég hélt ró minni allan tím­ann og upp­lifði mig ekki í lífs­háska,” segir Sig­ur­björn Þór­munds­son, fyrr­ver­andi háseti á Snorra Sturlu­syni RE.

Helkaldur í sturtu

Sig­ur­björn, sem starf­aði sem stál­smiður, segir að atvikið hafi ekki haft nein sér­stök áhrif á hann. Hann hafi þó seinna gert sér grein fyrir því að hann hafi verið í lífs­háska. Læknir sem kom frá varð­skipi til að skoða Sig­ur­björn taldi það vera krafta­verki nær að hann skyldi lifa af í fjórar mín­útur í ísköldum sjónum. Sjálfur man hann atvikið mjög vel.

„Við vorum að láta trollið fara þegar ég flækt­ist í dauða­legg og kastað­ist út fyrir og lenti á bak­inu í skut­renn­unni. Þaðan rann ég síðan í sjó­inn. Ég reyndi að grípa um vírana en náði ekki taki. Aftur á móti tókst mér að kom­ast í björg­un­ar­hring sem félagar mínir köstr­uðu til mín. Svo sá ég skipið fjar­lægj­ast,” segir hann.

Skip­verjar á Snorra voru fljótir að bregð­ast við og sjó­settu létta­bát. Tengda­faðir Sig­ur­björns, sem starf­aði sem vél­stjóri á skip­inu, sigldi bátnum að tengda­syni sínum og bjarg­aði honum. Sig­ur­björn seg­ist hafa verið björg­un­inni feg­inn þótt hann hefði allan tím­ann trúað á björgun.

„Ég var lengst af óhræddur og brást því rétt við. Ég er of kæru­laus til að ótt­ast. Þegar búið var að kippa mér um borð í bát­inn grín­að­ist ég með það að við yrðum að leita að vett­ling­unum mínum sem voru nýjir. Hann hélt að ég hefði rugl­ast við volkið,” segir hann og hlær.

Sig­ur­björn var hel­kaldur og dreif sig strax í heita sturtu við kom­una um borð í skipið. Þá brá honum óskap­lega. Kuldinn hafði haft sýni­leg áhrif

„Þegar ég horfði niður sá ég að ég var orð­inn eins og kona um miðj­una. Typpið var nán­ast horfið,” segir hann og skelli­hlær að minn­ing­unni.

Sig­ur­björn fékk svo sjóð­heita súpu hjá kokknum og fór síðan í koju.

„Ég var mar­inn eftir að hafa skollið í skut­renn­una. Að öðru leyti var allt í lagi með mig. Ég mætti til vinnu á næstu vakt,” segir hann,

Nokkru eftir atvikið í Smugunni hætti Sig­ur­björn á sjónum og fór í land þar sem hann starf­aði meðal ann­ars sem trygg­inga­ráð­gjafi.

„Sjó­mennskan hent­aði mér ekki til lengri tíma. En þetta atvik hafði ekk­ert með það að gera. Eft­ir­köstin voru í sjálfu sér engin þótt ég muni þetta eins og það hefði gerst í gær,” sagði hann við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi