Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rósa varð ólétt í kvennafangelsinu – Vildi milljón króna í bætur frá ríkinu

Rósa varð ólétt í kvennafangelsinu – Vildi milljón króna í bætur frá ríkinu

Rósa Dröfn Sig­urð­ar­dóttir varð ólétt af völdum karlfanga í Kvenna­fang­els­inu í Kópavogi þar sem hún sat í gæslu­varð­haldi árið 1990 vegna grófrar lík­ams­árásar. Upp­haf­lega var hún til rann­sóknar vegna til­raunar til mann­dráps en var á end­anum dæmd fyrir auðg­ung­ar­brot.

Þegar ljóst varð að Rósa var barns­haf­andi  í fang­els­inu var hún leyst úr haldi og krafð­ist hún í kjöl­farið einnar millj­ónar króna skaða­bóta frá rík­inu fyrir ónauð­syn­legt gæslu­varð­hald. Ríkið var sýknað af kröfu Rósu.

Rósa Dröfn hafði setið í gæslu­varð­haldi í Kvenna­fang­els­inu í Kópavogi frá því í ágúst 1989 vegna rann­sóknar á hrífs­stungu­máli og auðg­un­ar­brotum. Af óljósum ástæðum var karlfangi vistaður í sama fang­elsi og tók­ust með þeim Rósu það góð kynni að hún varð ólétt af.

Manndrápstilraun

Rósa Dröfn sætti opin­berri rann­sókn vegna ætl­aðrar mann­dráp­stil­raunar sum­arið 1989 og var í gæslu­varð­haldi í kvenna­fang­els­inu frá þeim tíma. Í und­ir­rétti var Rósa dæmd í 6 ára óskil­orðs­bundið fang­elsi en Hæsti­réttur sýkn­aði hana end­anum af mann­dráp­stil­raun en dæmdi hana í tveggja ára óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir auðg­un­ar­brot.

Á meðan málið var reifað í Hæsta­rétti var Rósa vistuð í kvenna­fang­els­inu í Kópavogi en þar var hún fljót­lega færð úr ein­angrun. Síðar kom þangað karlfangi til vist­unar og leiddu kynni þeirra innan veggja fang­els­ins til þung­unar Rósu.

Það var í júlí­mán­uði 1990 sem Rósa fékk grun um ólétt­una og í ágúst­mán­uði leiddi þvag­rann­sókn í ljós þung­un­ina. Þann 12. sept­em­ber stað­festi sér­fræð­ingur í kven­sjúk­dóma­lækn­ingum að fæð­ingar væri að vænta í mars næsta ár sem stað­festi náin kynni fang­anna um mitt sumar 1990.

Vildi milljón í bætur

Skömmu fyrir heim­sókn kven­sjúk­dóma­lækn­is­ins gerði Rósa þá kröfu að sér yrði taf­ar­laust sleppt, á þeim rökum að sjúk­linga, van­færar konur eða konur með barn á brjósti skuli úrskurða til vist­unar á spít­ala eða öðrum við­eig­andi stað. Við sama tæki­færi fór hún fram á milljón króna í skaða­bætur vegna vist­un­ar­innar í kvenna­fang­els­inu.

Íslenska ríkið var sýknað af kröfum Rósu þar sem það var talið ótví­rætt að hún hafi átt að sæta gæslu­varð­haldi og að ákvæði laga um van­færa fanga væri fyrst og fremst til þess ætlað að tryggja með­ferð við hæfi. Lögin úti­lok­uðu ekki vistun í fang­elsi svo fremi sem að heilsu fanga væri borgið.

Hnífsstunga í Austurstræti

Rósa Dröfn var 22 ára gömul þegar hún var dæmd til 6 ára óskil­orðs­bund­innar fang­els­is­vistar fyrir til­raun til mann­dráps, rán, þjófn­aði og skjala­fals. Það var í und­ir­rétti en dóm­ur­inn var síðar lækk­aður í tvö ár í Hæsta­rétti og til frá­dráttar refs­ing­unni komu 381 dagar sem Rósa sat í gæslu­varð­haldi.

Rósa stakk mann með hnífi á veit­inga­hús­inu Gullinu við Aust­ur­stræti, aðfara­nótt 26. ágúst 1989, þegar mað­ur­inn vildi ganga á milli hennar og manns sem hún átti í úti­stöðum við. Stakk Rósa mann­inn í síð­una svo af hlut­ust miklar blæð­ingar og þurfti mað­ur­inn að gang­ast undir skurð­að­gerð þar sem milta hans var fjar­lægt.

Rósa var einnig sak­felld fyrir að hafa ásamt öðrum rænt tveimur áfeng­is­flöskum af manni í húsi við Laugaveg og barið við­kom­andi með steini; tvo þjófn­aði og marg­vís­legt skjala­fals, svo sem tékka­fals og mis­notkun greiðslu­korta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi