Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Danith í framboði fyrir Miðflokkinn: „Ég hef hvorki náð að venjast vindinum né dimmunni að vetri“

Danith í framboði fyrir Miðflokkinn: „Ég hef hvorki náð að venjast vindinum né dimmunni að vetri“
Danith Chan

„Mér finnst vera skemmti­legt að taka þátt í póli­tík; ég ólst upp í póli­tísku umhverfi og þegar ég flutti til Íslands árið 2000 fór ég að fylgj­ast með hvað væri að ger­ast í íslensku þjóð­fé­lagi og ég fann út að ef maður er ósáttur við umhverfi sitt verður maður eig­in­lega að taka þátt í að skapa sam­fé­lagið. Þess vegna tek ég þátt í póli­tík á Íslandi; til að reyna að gera umhverfið sem ég bý í betra,“ segir Danith Chan sem er frá Kambódíu en hún fædd­ist þar en ólst hins vegar upp bæði í Kína og Egypta­landi. Danith skipar 2. sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður fyrir kom­andi þing­kosn­ingar.

Þess vegna tek ég þátt í póli­tík á Íslandi; til að reyna að gera umhverfið sem ég bý í betra

Hún er spurð um áherslu­mál sín fyrir kosn­ing­arnar. „Ég hef áhuga á svo mörgum mál­efnum. Til að nefna nokkur skipta heil­brigð­is­mál til dæmis máli í huga mínum. Ég veit að það eru víða biðlistar en ég tel að for­varnir séu mik­il­vægar og ég veit líka að ef það væri almennt séð lögð meiri áhersla á þær væru ekki svona langir biðlistar. Það ætti að setja meiri pen­ing í for­varnir og ef það yrði gert þyrfti ekki einu sinni að tala um biðlista. Það er allt of mikið verið að laga eftir á í stað­inn fyrir að leggja áherslu á for­varnir og fyr­ir­byggj­andi aðgerðir.

Svo legg ég mikla áherslu á sam­vinnu á alþjóða­vett­vangi þegar kemur að utan­rík­is­málum. Það væri hægt að styrkja stöðu lands­ins mikið í því sam­bandi. Ísland er eyja og við erum alltaf sterk­ari þegar við stöndum saman hvort sem það eru ein­stak­lingar eða á alþjóða­mæli­kvarða.“

Danith, sem er bæði lög­fræð­ingur að mennt og með MBA-próf, myndi vilja leggja áherslu á rekstrar­aum­hverfi lít­illa og smærri fyr­ir­tæka. „Það er svo­lítið erf­ið­ara að reka fyr­ir­tæki á Íslandi þegar þau eru lítil og rekstr­ar­um­hverfið og lagaum­hverfið er ekki allt mjög þægi­legt.“

Hún nefnir líka mennta­mál og bendir á að sér finn­ist vera áhuga­vert að grunn­skóla­börn hér á landi hafa mörg hver ekki komið vel út í PISA-könn­unum. Hún segir að það sé eitt­hvað sem hún myndi vilja ein­blína á.

Ísland er eyja og við erum alltaf sterk­ari þegar við stöndum saman hvort sem það eru ein­stak­lingar eða á alþjóða­mæli­kvarða.
Danith ásamt eig­in­manni sínum, Sveini Óskari Sig­urðs­syni, bæj­ar­full­trúa fyrir Mið­flokk­inn í Mos­fellsbæ.

Jöfn tækifæri fyrir alla

Danith seg­ist leggja mikla áherslu á jöfn tæki­færi fólks og nefnir jöfn tæki­færi til tekna. „Við búum í þessu vel­ferð­ar­kerfi en það hafa ekki allir aðgang að sömu tæki­færum og það fer mikið eftir því hvað við­kom­andi er búinn að gera og hvern hann þekkir. Það er svo­lítið mikið svo­leiðis á Íslandi þannig að ég vil leggja áherslu á jöfn tæki­færi fyrir alla. Það á ekki að líð­ast að inn­flytj­endur fái lægri laun heldur en inn­fæddir fyrir sömu vinnu. Við eigum að búa til rétt­lát­ara sam­fé­lag þannig að allir fái greitt fyrir vinnu sína. Hitt er bara ósann­gjarnt.“

Danith segir að það sé hægt að gera mikið í inn­flytj­enda­málum hér á landi. Hún nefnir íslensku­kennslu sem hún segir marga inn­flytj­endur ekki hafa efni á og vill hún að íslensku­kennsla verði gerð gjald­frjáls.

Á heima­síðu Mið­flokks­ins, mid­flokk­ur­inn.is, skrifar Danith: „Hér á landi þurfum við einnig verð­mæta­skap­andi vinnu­afl og gæta að fjöl­breytni þeirra inn­flytj­enda sem hér setj­ast að, m.a. sem kvótaflótta­menn. Líta verður m.a. til mann­úð­ar­sjón­ar­miða, sem miklu skiptir. Það verður einnig að líta til þess að jafn­ræði ríki á meðal flótta­fólks í heim­inum hvað aðgang að Íslandi varðar sem áfanga­staðar til búsetu. Einnig skal litið til þess að hér búi ekki eins­leitur hópur inn­flytj­enda sem aðlag­ast ekki sam­fé­lag­inu eins vel og kostur er. Ég hef aðlag­ast en mun aldrei aðlag­ast 100% en hef gert mitt allra besta til þess og er ein frá mínu heima­landi búandi hér. Svo vil ég, rétt eins og Íslend­ingar, sem búa erlendis, halda í mín sér­kenni, menn­ingu, trú og mat­ar­gerð. Mót­tak­and­inn, þ.e. Íslend­ing­ur­inn, verður einnig að koma til móts við mig. Það hafa fjöl­margir félagar mínir í Mið­flokknum gert, nánir ætt­ingjar og aðstand­endur einnig. En alls ekki allir.“ Enn­fremur segir hún á síðu flokks­ins: „ Við þurfum að efla landamæra­eft­ir­lit og lög­reglu­yf­ir­völd. Það þarf að veita harða og óbilandi mót­spyrnu gegn erlendum sem og inn­lendum glæpa­gengjum sem hafa hreiðrað hér um sig. Þessi gengi nýta sér m.a. vel­vild og virkni flótta­manna- og vel­ferð­ar­kerf­is­ins. Í kringum þetta hafa jafn­vel mynd­ast nýjar og ansi hvat­vísar starfs­stéttir sem keyra harða stefnu, jafn­vel hat­urs­fulla og óbil­gjarna. Slíkt getur leitt til þess að brotnir séu niður inn­viðir rík­is­ins, þeir veiktir og sér­stak­lega vilj­inn til að bregð­ast við þegar á reynir. Ef það er að ger­ast, erum við á rangri og vara­samri leið. Óljósar heim­ildir benda til að glæpa­hóp­arnir, þ.e. þeir sterk­ustu er hér hafa umsvif, hafa margir þroskast sér­stak­lega vel innan Evrópu, þ.e. bæði þar innan og utan EES svæð­is­ins.“

Hún nefnir íslensku­kennslu sem hún segir marga inn­flytj­endur ekki hafa efni á og vill hún að íslensku­kennsla verði gerð gjald­frjáls.

Í flóttamannabúðum

Danith fædd­ist árið 1978 í Kambodíu eins og þegar hefur komið fram, nánar til­tekið í höf­uð­borg­inni Phnom Penh, og þurfti fjöl­skylda hennar að flýja þegar hún var mán­að­ar­gömul þegar Víetna­mar yfir­tóku borg­ina. Amma hennar og afi í móð­ur­ætt höfðu verið lyfja­fram­leið­endur og afi hennar í föð­ur­ætt var hægri hönd kon­ungs lands­ins, Sihanouk, auk þess sem hann starf­aði árum saman sem sendi­herra. Danith var ásamt for­eldrum sínum í flótta­manna­búðum í Tælandi í rúm tvö ár og flutti Danith til afa og ömmu sinnar í Egypta­landi þegar hún var á fjórða ári. Þar bjó hún næstu árin en afi hennar í föð­ur­ætt var á þeim tíma sendi­herra í Kaíró. Afi hennar fékk síðar sendi­herra­stöðu í Peking í Kína og flutti hún þangað sex ára gömul.

Danith segir að það erf­ið­asta sem hún hafi upp­lifað á ævinni sé þegar faðir hennar, sem var kven­sjúk­dóma­læknir, lést úr krabba­meini þegar hún var tæp­lega tví­tug. Hún nefnir líka þegar afi hennar flutti frá Kína til Kambódíu. „Pabbi var mjög ungur þegar hann dó. En lífið heldur áfram. Það er ekk­ert sem ég gat gert; það skiptir máli að vera bjart­sýnn og halda áfram með lífið.“

Vindurinn

Áður en faðir Danith lést hafði hún hafið nám í alþjóða­lög­fræði við Háskól­ann í Peking þar sem hún kynnt­ist íslenskum eig­in­manni sínum, Sveini Óskari Sig­urðs­syni, sem er bæj­ar­full­trúi fyrir Mið­flokk­inn í Mos­fellsbæ.

Ástin tog­aði hana til sögu­eyj­ar­innar í norðri og þegar þangað kom árið 2000 hóf Danith íslensku­nám við Háskóla Íslands. Hún lauk árið 2005 meist­ara­námi í lög­fræði frá Háskóla Íslands með áherslu á umhverfis- og Evr­ópu­rétt. Árið 2009 lauk hún MBA-prófi við Háskól­ann í Reykja­vík.

Danith hefur gegnt ýmsum störfum á Íslandi. Hún vann um tíma meðal ann­ars hjá Útlend­inga­stofnun, stoð­tækja­fyr­ir­tæk­inu Össuri, hjá Valitor og slita­stjórn Glitnis. Nú starfar hún í ferða­iðn­aði og hefur áhuga á að sú iðn­grein vaxi og dafni á Íslandi.

Danith hefur búið um helm­ing ævi sinnar á Íslandi. Hún er spurð hvað Ísland sé í huga hennar. Hún nefnir fjöllin, jöklana, sjó­inn, Íslend­ing­ana og íslensk­una. „Það sem mér finnst vera frá­bært við Ísland er tungu­málið sem er eitt best varð­veitta tungu­málið í heim­inum. Ég hef alltaf haft áhuga á tungu­málum sem fræði­grein; íslenska er eins upp­runa­leg og kostur er í nútíma­sam­fé­lagi.“

Danith segir að vind­ur­inn á Íslandi sé það sem henni finnst vera það erf­ið­asta að eiga við. „Hann blæs úr öllum áttum og það er meira af honum hér en ann­ars staðar þar sem ég hef alist upp. Ég hef hvorki náð að venj­ast vind­inum né dimm­unni að vetri. En á móti finnst mér mjög kósí að kúra heima. Þar líður mér best.“

Það sem mér finnst vera frá­bært við Ísland er tungu­málið sem er eitt best varð­veitta tungu­málið í heim­inum.
Danith ásamt dætrum sínum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi