Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

39 börn föðurlaus þegar togarinn Júlí fórst í hræðilegu veðri: „Það ríkti dauðaþögn á bryggjunni“

39 börn föðurlaus þegar togarinn Júlí fórst í hræðilegu veðri: „Það ríkti dauðaþögn á bryggjunni“

Á dög­unum 8. til 9. febr­úar árið 1959 gerð­ist eitt hörmu­leg­asta sjó­slys í útgerð­ar­sögu Íslend­inga, en þá fórst tog­ar­inn Júlí, frá Hafn­ar­firði, á Nýfunda­landsmiðum og með honum þrjá­tíu menn í miklu ísing­ar­veðri. Ekki mátti miklu muna að slysin yrðu fleiri því öðrum íslenskum tog­urum var mikil hætta búin í þessu veðri. Þorkell Máni úr Reykja­vík var nærri því sokk­inn og að minnsta kosti fjögur önnur íslensk skip lentu í vand­ræðum; Júní, einnig frá Hafn­ar­firði, sem og Bjarni ridd­ari. Líka Mars úr Reykja­vík og Norð­lend­ingur frá Ólafs­firði.

Allir voru þetta síðu­tog­arar; kall­aðir Nýsköp­un­ar­tog­arar, sem keyptir voru til lands­ins að lok­inni síð­ari heim­styrj­öld­inni.

Í febr­úar árið 1959 voru þessi skip stödd í mjög köldum sjó; yfir­bors­hit­inn um eða undir frost­marki og á sama tíma er einnig loft­kuldi og særok; fá á sig ísingu á yfir­bygg­ingu skips­ins.  Hleðsla ísingar dregur snögg­lega úr stöð­ug­leika og sjó­hæfni.

Nýsköp­un­ar­tog­ar­arnir voru afar feng­sæl fiski­skip en þóttu ekki sér­lega vel hann­aðir og útfærðir með til­liti til ísing­ar­hættu; á þeim voru rekk­verk, vírar og fleira sem á hlóðst ís í vondum vetr­ar­veðrum.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins 18. febr­úar segir svo:

Í gær til­kynnti Bæj­ar­út­gerð Hafn­ar­fjarðar, að tog­ar­inn Júlí væri tal­inn af með allri áhöfn, 30 mönnum. Leit er nú hætt að tog­ar­anum, en hún hófst að morgni 10. þessa mán­aðar og í til­kynn­ingu Bæj­ar­út­gerð­ar­innar segir, að við­stöðu­laust hafi síðan verið leitað með flug­vélum og skipum á meir en 70,000 fer­sjó­mílna svæði. Fjöldi flug­véla hafði tekið þátt í leit­inni að Júlí, björg­un­ar­flug­vélar frá Kanada, Banda­ríkj­unum, Nýfundna­landi og héðan frá íslandi, svo og banda­rískar flota­flug­vélar. Á sjó leit­uðu veð­ur­skip og stórir rúss­neskir verk­smiðju­tog­arar. Auk hins fyrr­greinda leit­ar­svæðis á Nýfundna­landsmiðum var og leitað á stóru aðliggj­andi svæði sunnar. Allur þorri skips­manna á Júlí voru ungir menn, yngsti mað­ur­inn aðeins 16 ára, en hinn elzti 48 ára. Flestir á aldr­inum milli tví­tugs og þrí­tugs. Af þeim voru nítján frá Reykja­vík og fimm frá Hafn­ar­firði. Í hópnum voru 12 heim­il­is­feður, er láta eftir sig konur og börn. Með hvarfi tog­ar­ans Júlí hafa 39 börn á aldr­inum nokkra vikna til 15 ára misst feður sína. Þetta er eitt hið mesta sjó­slys, sem orðið hefur á íslenzku skipi á þess­ari öld, en fleiri fór­ust þó í hinu svo­nefnda Þormóðs­slysi 1943, er 31 maður drukknað í Hala­veðr­inu 1925, er tveir tog­arar fór­ust, drukkn­uðu 68 menn, og með tog­ar­anum Hiium Max Pem­berton, er hvarf árið 1944, fór­ust 29 menn.

Togarinn Júlí.

Öll áhöfn Júlí hvarf í kalt hafið sem skilar engu til baka sem það nær tökum á, en sem betur fer, þótt þessi atburður hafi verið hrylli­legur í alla staði, fór­ust ekki fleiri, en eins og áður sagði mun­aði litlu að svo fær­ist – sér­stak­lega hjá tog­ar­anum Þorkatli Mána; en allt fór betur en á horfði.

Eft­ir­lif­endur áhafnar Þorkatlar Mána komu saman á sínum tíma til að rifja upp þennan erf­iða atburð og annað mark­vert af skip­inu.  Morg­un­blaðið ræddi við Skúla Ólafsson, sem var ein­ungis átján ára háseti í sjó­ferð­inni örlaga­ríku. Hann segir svo frá að það hafi verið mögnuð stund þegar Þorkell Máni kom í land eftir þessa hættu­för, en þá var enn ís á bát­þil­far­inu.

Þorkell Máni.

„Við komum um klukkan hálf­þrjú um nótt­ina og bryggjan var full af fólki.  Og það ríkti dauða­þögn á bryggj­unni og þetta var ótrú­leg stemm­ing.  Það var ekki að undra því að tog­ar­inn Júlí hafði farist með allri áhöfn og þá fór­ust fleiri tog­arar, en ekki íslenskir á sömu slóðum.“

Febrúar árið 1959 var mik­ill sjó­slysa­mán­uður og sjaldan hafa farist eins margir Íslend­ingar í einum mán­uði og þá; mögu­lega fleiri en í þeim hræði­lega mán­uði októ­ber árið 1995 þar sem snjó­flóðin féllu á Flateyri og mörg slys urðu líka víða á land­inu með miklum kostn­aði manns­lífa.

Hermóður.

Árið 1959 í febr­úar voru sam­göngu­trufl­anir miklar og raf­magns­bil­anir tíðar; stormdagar voru margir. Vita­skipið Hermóður fórst undan Höfnum á Reykja­nesi 18. febr­úar í stormi og stór­sjó og með honum öll áhöfn eða átján manns.

Þarna sem tog­ar­arnir áður­nefndu voru var algjört mann­dráps­veður og veð­ur­hæðin nokkru meiri á mið­unum, en frostið kannski ekki jafn­hart.  Erfitt er að ímynda sér erf­ið­ari aðstæður og meiri ísing­ar­hættu en þarna í þessu hrylli­lega veðri sem tók líf þrjá­tíu Íslend­inga, flestir voru frá Reykja­vík og margir af þeim ungir menn. Sá yngsti aðeins sextán ára gam­all.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi