Skólamatur er greinilega góður tekjumöguleiki ef horft er til tekna fyrirtækisins Skólamatar, sem selur mat í grunnskóla og leikskóla. Hafa tekjurnar tvöfaldast á síðustu fjórum árum og arður hefur verið tekin út úr félögum í samstæðu fyrirtækisins síðastliðin þrjú ár.
Eigendur eru feðginin Axel Jónsson, Fanný Axelsdóttir og Jón Axelsson, sem er líka framkvæmdastjóri.

Samstæða félagsins á undanförnum árum hefur greitt út meira en 40 milljónir króna í hagnað.
Jón segir aðspurður hvort arðgreiðslurnar séu eðlilegar að „það er ekki mitt að meta. Við erum að reka fyrirtæki og við reynum að gera það í sátt við umhverfið, og ímynd okkar skiptir okkur miklu. Við teljum að það sé ekki óeðlilegt að fyrirtæki greiði sér arð en fyrirtæki sem er í starfsemi eins og okkar verður að gæta hófs.“
Skólamatur selur mat í áskrift til foreldra grunnskólabarna og leikskólabarna í tugum skóla á Reykjanesi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Garðabæ og víðar.
Heimild: Stundin





















Athugasemdir