Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hræðileg lífsreynsla Guðrúnar: „Ég grét svo mikið að ég rétt náði að segja, Unnur Ýr er dáin“

Hræðileg lífsreynsla Guðrúnar: „Ég grét svo mikið að ég rétt náði að segja, Unnur Ýr er dáin“

Guðrún Erla Ott­ós­dóttir segir í færslu á Facebook að „ég er ekki vön því að tjá mig opin­ber­lega en nú er mér nóg boðið. Fyrir 5 árum síðan fædd­ist dóttir mín and­vana eftir fulla meðgöngu. Á hverjum degi í sex daga áður en þetta ger­ist leit­aði ég margoft uppá kvenna­deild lhs, þar sem mér var ítrekað vísað frá og ekki sett í mónitor,“ segir hún um hræði­lega lífs­reynslu sína og bætir við:

„Daginn áður en hún deyr í móður­kviði kemur barns­faðir minn með mér uppá kvenna­deild og krefst þess að málið sé skoðað, okkur er aftur vísað frá og honum tjáð að ég sé bara móðursjúk. Daginn sem hún deyr byrjar á því að ég mæti í vinn­una og finn ennþá hreyf­ingar en finn samt að ein­hvað er að svo seinni­part­inn kem ég heim og sofna með eldri dóttir okkar.“

Guðrún vaknar „svo stuttu seinna og finn að það er eitt­hvað að. Móðir mín kemur og sækir mig og skutlar mér að sækja bílinn okkar sem var í við­gerð hjá frænda mínum. Ég nefni þetta við hana á leið­inni en var á þessum tíma farin að trúa þvi að ég væri móðursjúk, enda einu ári áður misst barn eftir 5 mánaða meðgöngu. Móðir mín segir mér að kíkja við upp á kvenna­deild sem ég geri það. Þar eftir ansi langa bið kemur ljósmóðir og vísar mér inná her­bergi. Svo kemur hún með hjartsláttar­nema og leitar í nokkra stund eftir hjartslætti sem hún finnur ekki. Hún segir mér að þetta sé alveg eðli­legt en vill kalla til aðra ljósmóðir; hún kemur inn og fer líka að leita eftir hjartslætti en finnur hann ekki. Næst tekur önnur þeirra upp símann og segir að um ein­hvern „kóda“ sé að ræða. Þá mætir læknir inn með sónar­tæki og setur það á magan á mér og segir bara strax: „Þetta er búið, hún er dáin.“

Þarna fraus ég í nokkra stund; vildi ekki trúa þessu en hann sagði mér að þetta væri alveg öruggt og ég mætti sjá það aftur. Þarna panikk­aði ég og tárin fóru að streyma og ég fann ennþá hreyf­ingar – svo kall­aðar drauga­hreyf­ingar – ég vildi ekki trúa þessu; hún var lif­andi um dag­inn, það er ég viss um. Plís bjargið henni, plís … „nei, þetta er búið, viltu hringja i ein­hvern?“

Guðrún seg­ist hafa verið „alveg stjörf. Í hvern átti eg að hringja og segja hvað? Ég tek við símanum og hringi i mann­inn minn sem var heima með eldri dóttir okkar. Ég grét svo mikið að ég rétt náði að segja, Unnur Ýr er dáin. Svo lang­aði mér bara að kom­ast þarna út. Ég fór út í myrkrið og hljóp að stað; þetta hlaut að vera martröð. Mig lang­aði bara að þessi hræði­lega martröð tæki enda.

En mað­ur­inn minn segir að það sé mik­il­vægt að við drífum okkur því að það sé hættu­legt að vera með Stelpuna okkar látna í móður­kvið. Ég fer, en á þessum tímapunkti var ég frosin. Þegar ég mæti uppá kvenna­deild tekur á móti mér ljósmóðir sem byrjar strax að segja mér að best sé að fæða hana. Ég var hrædd týnd og átta­villt. Nei ég gat ekki hugsað mér það. Þá eru mér gefin róandi lyf og hún heldur áfram að sann­færa mig um að fæða hana. Hún hlaut að vita allt það sem væri best? Þannig ég sam­þykkti það.“

Í kjöl­farið fékk Guðrún „lyf sem koma fæð­ingu af stað. Ég var svo hrædd og týnd.

Gleymi aldrei andrúmsloft­inu þarna inni og gleymi aldrei ljósmæðra­nema; ung stelpa sem var skutlað inni þessar aðstæður; hún gat ekki horft á; ég gleymi aldrei svipnum á henni.“

Guðrún segir að „eftir dágóða stund hefst remb­ings­stig fæð­ingar – ég finn að hún myndi koma fljótt eins og eldri dóttir mín; èg klemmdi saman lapp­irnar og gat ekki leyft henni að koma. „Svona Guðrún, leyfðu henni að koma“ sagði ljósmóðirin.

En ég bara get það ekki.

Á þessum tíma vildi ég fá prest til að blessa yfir henni þegar hún myndi fæð­ast og það var farið í það að fá sjúkrahúsprest­inn í að koma: Hann kemur fljótt og þarna gat ég ekki meir; hún kemur í heim­inn blá með nafla­streng­inn tvívaf­inn um hálsin og hnútur á. Ég fæ hana i fangið svo full­komna og full­skap­aða. Ég horfi á hana; veit ekki hvað lengi; von­aði af öllu hjarta að hún myndi opna augun; lang­aði að gefa henni brjóst – bara eitt­hvað.“

Raun­veru­leiki Guðrúnar var grimmur:

„Hún var dáin. Okkur var gefið sólarhringur með henni og ég gat ekki sleppt henni; okkar nánustu komu og fengu að sjá hana; sorgin í augum ástvina okkar var ólýsan­leg. Starfsfólk kom inn og hvatti okkur til að leggja hana frá okkur í kæli vögguna, en ég bara gat það ekki.

Hún var byrjuð að fá sár eftir þennan tíma, en ég gat ekki sleppt; þetta hlaut að vera vondur draumur; plís vakn­aðu fal­lega Unnur Ýr – góði Guð af hverju?“

Guðrún segir að „eftir útförina fóru allir auð­vitað að sinna sínu lífi en við vorum í rusli og litla hjálp að fá. Svo sex dögum eftir að hún var jörðuð fór mér að líða eitt­hvað illa um nóttina. Snemma um morg­un­inn stóð ég upp og það foss­blæddi og það leið yfir mig. Maðurinn minn hringdi á sjúkrabíl sem kom snögglega. Ég var flutt upp á kvenna­deild; þar fer ég í skoðun sem leiðir í ljós að stór partur af fylgj­unni hafði orðið eftir. Ég fer i aðgerð þá um nóttina sem var vîst mjög flókin og erfið en eng­inn sérfræð­ingur var kall­aður til. Svæf­inga­lækn­ir­inn sagði að þetta hafi verið mjög mikil aðgerð. Þegar ég vakna líður mér mjög illa og ég finn að það er ein­hvað að. Í fyrsta lagi blæddi alveg svaka­lega, og ég var með mikla verki. Bæði móðir mín, systir og hjúkrun­ar­fræð­ingur sem var á vakt, reyndu að telja unglækn­inn inná að kalla út sérfræð­ing. En hún sagði alltaf „þetta er i góðu.“

Seinna um kvöldið var Guðrúnu farið að líða mjög illa, en ennþá vildi hún ekki kalla út sérfræð­ing. Svo seint um kvöldið var rapport og eng­inn að fylgj­ast með. Þá allt i einu líður yfir mig og ég fer í dá.“

Hún segir að „mamma mín og systir hlaupa fram og kalla að það þurfi neyð­arteymi strax.

Ég man sjálf ekki eftir þessum hluta. En mamma og aðrir sögðu mér að fólk hafi komið hlaup­andi alls­staðar frá; sett rúmið á mitt gólf og dælt inn í mig blóði í fætur og hendur og fleira en ég lá dáin á borð­inu hjá þeim í þó nokkuð langa stund. En sem betur fer tókst þeim að end­urlífga mig.“

Þá fór Guðrún „beint í aðra aðgerð sem var mjög stór. Ég vakn­aði aðeins á gjörgæslu en ég var þar í 4 daga, og fór svo á venju­lega deild í 2 vikur. Þessar vikur voru mjög erf­iðar; nýbúin að missa dóttir mína og mun­aði litlu að ég færi líka. En mér fannst mjög erfitt að vera frá eldri dóttur minni.“

Hún segir að „þegar ég kom heim af spítal­anum tók ekk­ert við. Við reyndum að óska eftir hjálp , en tak­markað var i boði. Þarna tók við mikið sorg­artímabil hjá okkur og mikil reiði. Ég bara gat ekki skilið þetta. Og líka allt þetta bara ef þau hefðu hlustað.Þetta varð til þess að við skildum stuttu seinna. Ég fékk hræði­legar martraðir eftir þetta. Bæði um þessi atvik en líka kom upp hræðsla við að missa þá sem voru mér nánastir. Ég hrökk upp grátandi.

Stundum hrópandi og var farin að hræð­ast það að fara sofa.“

Þá var Guðrúnu gefin svefn­lyf.

„Ég upp­lifði mik­inn kvíða, þá fékk ég bara lyf við því. Og svo þung­lynd­is­lyf. Alls­konar lyf.Enga hjálp. Þessar martraðir hættu ekki, ég fæ þær ennþá í dag.

Þolið mitt fyrir að taka svefn­lyf varð meira og var ég farin að taka það meira en ráðlagt var, bara til að sofa eitt­hvað yfir næt­urnar, en þetta var í raun ekk­ert að laga.“

Hún segir að „núna nýverið hvatti fjölskyldan mín mig til að leita hjálpar til að losna við þessa vanlíðan og losna við þetta von­lausa svefn­mynstur. Ég þáði það eftir smá umhugsun. Þá fór ég á deild sem er kölluð bráðageð­deild. Þegar ég kom þangað inn var mér mjög brugðið.

Þarna var hrópandi fólk, grátandi börn og maður fann fyrir and­styggð margra starfs­manna. Það var talað ljótt við sjúklinga, ég fékk bara ein­hvað smá að borða og ég sem kom sjálf til að vinna í mínum málum, var núna föst þarna. Ég var mjög hrædd. Einn sjúkling­ur­inn hrópaði í sífellu og ég fann svo til með henni. Langaði að segja eitt­hvað svo henni liði betur. En ég mátti ekki fara út af her­berg­inu. Ég fékk vatn og smá mat. Ég var svöng, hrædd og ringluð. Þegar að ég fékk svo að fara fram þá byrj­aði einn sjúkling­ur­inn að elta mig og segja mér að hann væri vondur maður og hefði margt mis­jafnt gert. Ég hélt mig að mestu inn á her­bergi en leið mjög illa að heyra konu­greyið hrópa og hrópa og heyra að henni var svarað á ljótan hátt.“

Guðrún segir að „þarna um kvöldið ákvað ég að fara aðeins fram í setu­stofu þar sem er sjónvarp. Þá kom umræddur maður og fór að strjúka á mér bak og axlir. Mér fannst þetta virki­lega óþægi­legt þannig að rest­ina af kvöldinu var ég inn á her­bergi.

Mér voru gefin nokkur lyf þarna um kvöldið sem ég þekkti ekki. Ég spurði hvað þetta væri, þá svarar starfs­mað­ur­inn það er bara best fyrir þig að borða þetta. Ég gerði það trúandi því að þetta væri ein­hvað til að hjálpa mér. Ég var mjög ringluð af þessum lyfjum og leið illa en náði að sofna fyrir rest. Ég vakn­aði um nóttina í „panikki“ og leið eins og eitt­hvað hræði­legt hefði gerst; ég ráfaði fram í sjokki – grét og grét og var mjög ringluð. Þá kom starfs­maður sem vildi gefa mér meira af lyfjum. Það vildi ég alls ekki. Ég bað um að fá að jafna mig i friði sem ég gerði en var samt mjög skelkuð. Ég fór aftur upp í. Um morg­un­inn fóru nokkrir sjúklingar af deild­inni niður en þar má reykja á tveggja tíma fresti á dag­inn. Þarna niðri byrj­aði sami maður aftur að strjúka mér og segja ógnandi og óvið­eig­andi hluti; ég var mjög hrædd.

Guðrún hélt sig alveg inn á „her­bergi þangað til mér var loks­ins boð­inn tími hjá lækni.

Ég sagði lækn­inum að mér liði mjög illa. En hún gerði lítið ur því. Og fór að tala um hvort ég hefði verið rænu­laus að keyra um með börnin mín og annað slíkt sem er nú ekki raunin því í fyrsta lagi er ég ekki rænu­laus með börnin mín. Og keyri ekki bíl. Hún gerði lítið úr mér sem móðir og tal­aði virki­lega niður til mín. Þarna var mér nóg boðið. Ég sagð­ist vilja fara.

Þá byrj­aði hún strax að hóta því að þá yrði barna­vernd­ar­nefnd kölluð til. Ég sagði henni að hún gæti ekki notað, mér best vit­andi, þetta ágæt­isfólk sem grýlu á mig. Enda hefði ég ekk­ert að fela og börnin mín voru í faðmi fjölskyld­unar og ég hefði ekk­ert að óttast. Þá sagði hún við mig að þau væri nú oft ekki sammála, og börnin væru bara samt tekin í þeirra umsjá. Við þetta hrædd­ist ég mikið og fékk taugaáfall. Ég gat ekki verið þarna eina mínútu meir.

Enda i miklu uppnámi og fannst þetta alls engin hjálp. Ég fór í sjokki af þessum fundi og hafði sam­band við lögfræð­ing fjölskyld­unnar.“

Guðrún segir að „eftir ein­hverja sam­ræðu kemur lækn­ir­inn og segir: „Ókei, þú verður þá flutt um deild.

Já takk. Allt frekar en að vera þarna. Meðan ég beið kom hádeg­is­matur sem var eitt­hvað smott­erí. Ég sá eina starfs­stúlku fá sér eplakökubita sem hafði komið með matnum upp.

Ég fór skömmu seinna og tók lítinn bita og sett­ist útí horn. Þá kemur starfs­maður og hund­skammar mig fyrir að taka þennan bita. Þetta átti víst að vera kaffi­brauð en ekki gat ég vitað það.

Ég var miður mín.

En sem betur fer kemur fljótt starfs­maður og segir mér að ég eigi að skipta um deild; ég var hrædd, en var alla­veg­ana að kom­ast þarna burt. Þegar ég kem á hina deild­ina tekur strax á móti mér ynd­is­legt starfsfólk sem sýndi mér allt. Þarna mátti borða. Þarna mátti hafa til­finn­ingar. Þarna vinnur ynd­is­legt fólk sem leggur allt sitt að mörkun, svo að sjúkling­unum líði sem best. Þetta er eins og tveir alveg aðskildir spítalar.

Ég er ennþá að ná mér eftir dvölina á fyrri deild­inni, enda fékk ég símtal frá lögregl­unni sem sagði mér að kona hafi hugs­an­lega verið myrt meðan ég var þar.

Er ekki komið nóg?

Þessi spítali er löngu úrelt stofnun sem mesti óþverri sem ég hef kynnst er við lýði. Þarna eru ekki allir sjálfvilj­ugir. Mér er nóg boðið, ég hef getað fyr­ir­gefið allt í mínu lífi en ég mun aldrei fyr­ir­gefa þeim að hafa ekki hlustað á mig, sem varð til þess að dóttir mín dó á þeirra vakt.

Og svo miklu fleiri, því miður.“

Guðrún spyr:

„Hver ætlar að setja það i for­gang að svona margir deyi ekki af gáleysi? Hver ætlar loks­ins að standa við það að þeir sem minnst mega sín svelti ekki? Hver ætlar að standa við það að allir hafi jafna möguleika á menntun? Hver ætlar að sjá til þess að börn kom­ist beint inn á leikskóla eftir fæð­ing­ar­leyfi. Veit ekki með aðra en mér er nóg boðið og ég ætla ekki að láta draga mig á asna­eyr­unum lengur. Ég ætla ekki að taka þátt i þessum sirkus lengur. Ég hef ekk­ert til að skamm­ast min fyrir. Skömmin er þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi