„Nú hef ég sosem ekkert vit á þessu enda ekki hlutlaus, en var þessi Gísla þáttur Marteins áróðursþáttur keyptur af Samfylkingunni?“ spyr Glúmur Baldvinsson á Facebook-síðu sinni en hann kom fram í þætti Gísla Marteins í gærkvöld og var ekki skemmt:
„Og femíniskum áhrifavöldum? Hvað kom fyrir samfélagið? Þorir enginn einu né neinu hér? Erum við öll liðleskjur?“ spyr Glúmur og færir það sem hann kallar „ofbeldisfemínisma“ í tal:
„Varðandi ofbeldisfemínisma er staðan þannig svo ég tali hreint út að þá er verið að eyðileggja baráttu kvenna og barna sem orðið hafa fyrir hrottalegu ofbeldi af hálfu veikra manna. Karla og kvenna. En enginn þorir að tala um það. Aðeins frægt fólk er tekið fyrir. Af hverju lendir bara frægt fólk í hakkavél RÚV og samfélagsmiðla? Og síðan eru áhrifavaldar hafðir upp til skýjanna af RÚV. Og allir já og amen. Er þetta samfélag að sturlast án dóms og laga?“





















Athugasemdir