Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ósátt Eva segir að „allt heila helvítis kerfið er handónýtt og dómarar upp til hópa nauðgaravinir“

Ósátt Eva segir að „allt heila helvítis kerfið er handónýtt og dómarar upp til hópa nauðgaravinir“
Eva Hauks­dóttir, dóttir Dönu Mynd: Róbert Reynisson

Eva Hauks­dóttir lög­maður spyr „af hverju taka konur sig saman um að segja frá kyn­ferð­is­of­beldi á sam­fé­lags­miðlum í stað þess að kæra til lög­reglu?“

Hún svarar því þannig:

„Af því að það er til­gangs­laust fyrir fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­brota að leita réttar síns. Af því að sam­fé­lagið er gegn­sýrt af nauðg­un­ar­menn­ingu og brota­þolum ekki trúað nema ef þær skipta tugum sem benda á sama þrjót­inn. Af því brota­þolar búa við þöggun en ger­endur hafa aftur á móti greiðan aðgang að fjöl­miðlum. Af því að allt heila hel­vítis kerfið er hand­ó­nýtt, lögin sniðin að hags­munum feðra­veld­is­ins, lög­reglan ger­enda­væn, rík­is­sak­sókn­ari harð­brjósta möppu­dýr og dóm­arar upp til hópa nauð­gara­vinir.“

Og Eva gefur ekk­ert eftir, bætir við:

„Nauðg­anir eru ekki kærðar af því að brota­þolar upp­lifa aðra nauðgun af hálfu rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins. Kyn­ferð­is­brota­mál eru ekk­ert rann­sökuð heldur felld niður að geð­þótta lög­reglu. Nauð­garar eru nán­ast aldrei sak­felldir. Þá sjaldan að þeir eru sak­felldir fá þeir væga dóma, venju­lega skil­orðs­bundna. Ef ódámur­inn er á annað borð sak­felldur eru brota­þola skammt­aðar svo nánasar­legar miska­bætur að það tekur því varla einu sinni að reyna. Ofan á allt saman eiga brota­þolar svo á hættu að vera ákærðir og refsað fyrir rangar sak­ar­giftir eða dæmdir til að greiða miska­bætur vegna meið­yrða.“

Heldur áfram:

„Þetta er myndin sem dregin er upp. Sem betur fer stenst hún ekki skoðun. Ég ætla ekki að ræða meinta þöggun fjöl­miðla og ger­enda­samúð almenn­ings að sinni en bendi á nokkur atriði tengd rétt­ar­kerf­inu.

Það er ekki rétt, sem oft er haldið fram, að dómar í kyn­ferð­is­brota­málum séu venju­lega skil­orðs­bundnir. Það er sjald­gæft að dómar vegna kyn­ferð­is­brota séu að öllu leyti skil­orðs­bundnir, það er þá helst þegar um mjög væg brot er að ræða og ger­and­inn barn­ungur. Ég hef enga úttekt séð sem styður þá kenn­ingu að skil­orðs­bundnir dómar séu algeng­ari í þessum brota­flokki en öðrum.

Dómar vegna nauð­gana hafa þyngst á síð­ustu ára­tugum. Algengur dómur fyrir nauðgun án lík­ams­meið­inga er á bil­inu 18-24 mán­aða fang­elsi. Hvort það telst hæfi­legt er auð­vitað mats­at­riði en sú hug­mynd sem virð­ist algeng – að dæmdir nauð­garar fái nokk­urra mán­aða skil­orðs­bundna dóma – er ekki í takti við veru­leik­ann.“

Eva bendir á að „miska­bætur á Íslandi eru almennt lágar en í kyn­ferð­is­brota­málum eru þær með skárra móti. Margir rugla saman miska­bótum og skaða­bótum vegna fjár­tjóns og halda til dæmis að æra þess sem er rek­inn úr starfi sé meira metin en áfall konu sem hefur verið nauðgað. Í slíkum til­vikum eru bætur starfs­manns­ins að veru­legu leyti vegna launa­missis. Venju­lega er ekk­ert fjár­tjón í kyn­ferð­is­brota­málum og bæt­urnar því að öllu leyti vegna miska, hug­myndin um að nauðgun sé en öðrum mis­gjörðum ódýr­ari byggir þannig á mis­skiln­ingi.

Brota­þolar eiga ekki á hættu að vera sak­felldir fyrir rangar sak­ar­giftir þótt þeir leiti réttar síns. Í saka­málum er gengið út frá sak­leysi sak­born­ings. Það er ákæru­valdið sem þarf að sanna að sá sem sætir rann­sókn vegna rangra sak­ar­gifta hafi vís­vit­andi farið með ósann­indi, til þess að með réttu sé hægt að sak­fella hann.“

Hún segir að brota­þoli eigi heldur ekki á hættu að vera sak­felldur í meið­yrða­máli.

„Það stendur upp á stefn­anda að sýna fram á að hann hafi í raun orðið fyrir æru­meið­ingum og það telst ekki æru­meið­ing að segja sann­leik­ann. Ef orð stendur gegn orði og engar aðrar sann­anir fyrir hendi er ekki með neinum rétti hægt að sak­fella þann sem seg­ist hafa orðið fyrir broti eða orðið vitni að því. Það er aftur á móti hægt að sak­fella þann sem ekki var í góðri trú um sann­leiks­gildi orða sinna og það telst ekki góð trú í skiln­ingi laga að trúa alltaf brota­þola eða trúa öllu illu upp á ein­hvern vegna orð­spors hans eða vegna þess að hann er til rann­sóknar hjá lög­reglu. Stuðn­ings­menn brota­þola geta því átt sak­fell­ingu á hættu en ekki brota­þoli sjálfur.“

Eva talar um kerfið sem brást.

„Hefur rétt­ar­kerfið brugð­ist þolendum kyn­ferð­is­brota? Svarið er því miður já. Þessar hug­myndir um hræði­lega stöðu fórn­ar­lamba kyn­ferð­is­brota eiga sér rót í veru­leika sem er eldri kyn­slóðum í fersku minni. Viðhorf til ofbeldis hafa breyst mikið á einum manns­aldri og það á við um alla flokka ofbeldis. Það þótti venju­lega ekki til­efni til lög­reglu­rann­sóknar, fyrir 60 árum, þótt maður nef­brotn­aði í slags­málum á sveita­balli. Starfs­manni datt ekki í hug að sækja rétt sinn þótt yfir­mað­ur­inn nið­ur­lægði hann og hefði í hót­unum við hann. Einelti á skóla­lóð­inni var ekki talið vanda­mál skól­ans og for­eldrar máttu nota fleng­ingar sem upp­eld­is­að­ferð. Biðraða­káf kall­aði kannski á við­brögðin „hættu þessu ógjóið þitt“ en dón­inn var ekki rek­inn úr vinn­unni, hvað þá lands­lið­inu. Vita­skuld end­ur­spegl­aði rétt­ar­kerfið ríkj­andi við­horf til ofbeldis og kyn­ferð­is­brota.“

Eva færir í tal dæmi:

„Ömurlegt dæmi er dómur vegna hópnauðg­unar sem framin var á Skaga­strönd árið 1970. Ung­lings­strákar tóku sig saman um að nauðga 15 ára stúlku, ekki reyndar í fyrsta sinn, en þetta var í fyrsta sinn sem ákæra var gefin út. Dómarinn velkt­ist ekki í vafa um að nauðgun hefði sann­ar­lega átt sér stað en þótti rétt að skil­orðs­binda dóm­inn, ekki aðeins vegna ald­urs sak­born­inga heldur líka á þeirri for­sendu að pilt­arnir hefðu nauðgað stúlkunni svo oft áður að þeir hefðu litið á það sem „hvers­dags­legan atburð, sem hefði engin eft­ir­köst.“ Einnig nefndi dóm­ar­inn að hann hefði heyrt „við rann­sókn máls­ins af full­orðnu fólki, að vísu tengt þeim ákærðu, að stúlkan væri allra gagn, jafn drengja, sem full­orð­inna“ en tók þó fram að það ætti ekki að hafa þýð­ingu hvort þol­and­inn hefði á sér óorð. Ekki fylgdu því neinar skýr­ingar hvaða til­gangi þessi athuga­semd í dómi átti þá að þjóna.“

Og Eva segir að „engan skyldi undra þótt konur sem bjuggu við þetta rétt­ar­á­stand hafi verið tregar til að kæra kyn­ferð­is­brot.

Heimild: Vísir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi