Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tómas skurðlæknir er sannur bjargvættur: „Skurðlæknirinn er hljómsveitarstjórinn“

Tómas skurðlæknir er sannur bjargvættur: „Skurðlæknirinn er hljómsveitarstjórinn“
Tómas Guð­bjarts­son

Tómas Guð­bjart­son, lækni og pró­fessor, þekkja flestir. Oft er hann kall­aður Lækna-Tómas en hann hefur verið tals­vert í sviðs­ljós­inu síð­ustu ár og ekki bara vegna hetju­dáða sinna í vinnu sinni, heldur einnig þegar umræðu­efnið er nátt­úra Íslands og verndun þess. Blaða­maður Mannlífs sló á þráð­inn en Tómas er mjög upp­tek­inn maður eins og gefur að skilja, og tal­aði við Tómas um starfið, skot­mann­inn á Egils­stöðum sem hann bjarg­aði, óvænta lífs­björg í íshelli, ást hans á nátt­úru Íslands og sitt­hvað fleira.

„Þetta er mikil álags­vinna og sér­námið langt,“ segir Tómas, aðspurður um starfið sem hjarta­skurð­læknir og áskor­an­irnar tengdar því.

„Þetta er 6 ára lækna­nám, og svo kandi­dats ár og síðan 5 ár í almennum skurð­lækn­ingum og svo 3 ár í hjarta og lungna­skurð­lækn­ingum, þannig að þetta er langt nám.“

Þá segir Tómas að partur af nám­inu sé þjálfun í að geta unnið undir miklu álagi enda mjög mik­il­vægt að halda ró sinni í nán­ast dag­legum hjarta­skurð­að­gerðum. „Þá velj­ast menn í þetta starf sem líður vel í svona aðstæðum.“

Tómas seg­ist eiga auð­velt með að ein­beita sér og halda ró sinni en þetta sé ekki sér­grein sem henti öllum. Þeir læknar sem fara í þetta sér­nám fá reynslu af erf­iðum áverkum í stórum borgum úti í heimi og er það reynsla sem nýt­ist mjög vel. Það sem er mik­il­væg­ast fyrir hverja aðgerð segir Tómas vera það að und­ir­búa sig vel, að hafa plan B ef eitt­hvað óvænt kemur upp á í skurð­að­gerð­inni. Þá sé einnig mik­il­vægt að halda teym­inu rólegu með því „vera ekki að öska þó stressið sé mikið.“

Tómas í upp­skurði.

Hætt kominn skotmaður

Nýlega bjarg­aði Tómas lífi manns sem særð­ist í skotárás við lög­reglu en hann fékk skot í brjóst­holið. Tómas sagði frá aðgerð­inni í sjón­varps­við­tali nýverið eftir að hafa fengið leyfir frá skot­mann­inum sjálfum og aðstand­endum hans. Maðurinn var ansi hætt kom­inn.

„Hann var orð­inn mjög lágur í blóð­þrýs­ingi og búinn að tapa miklu blóði en með neyð­ar­blóði og adrena­líni var hægt að halda uppi blóð­þrýst­ingnum og koma honum lif­andi að austan og hingað suður í bæinn.“

Tómas vill endi­lega koma á fram­færi miklu hrósi til þeirra sem komu að mál­inu fyrir austan. Meðal þeirra var gam­all nemd­andi hans, ungur læknir.

„Hún hringdi strax og fékk ráð. Hún pant­aði neyð­ar­blóð frá sjúkra­hús­inu í Nes­kaups­stað og pant­aði flug­vél frá Akureyri. Sú tví­þekja er miklu hrað­ari en þyrla, það hefði tekið miklu lengri tíma að hringja eftir þyrlu og jafn­vel þurfa að stoppa á leið­inni til að taka bensín. Ég vil bara sér­stak­lega hæla fólk­inu á Egils­stöðum fyrir hár­rétt við­brögð og við­brögð þeirra á Akureyri var einnig til fyr­ir­myndar.“

Þegar flug­vélin lenti á Reykja­vík­ur­flug­velli tók neyð­arteymi á móti sjúk­lingnum og ákveðið var að fara beint með hann í hjarta­skurð­deild­ina.

„Við ákváðum það, en ekki bráða­mót­tök­una eða í mynd­rann­sóknir, til að flýta fyrir og reynd­ist það mikið heilla­spor.“

Tómas segir að þetta sé ekki bara skurð­lækn­ir­inn sem geri allt. „Skurð­lækn­ir­inn er hljóm­sveit­ar­stjór­inn sem þarf að sjá til þess að allir spili í takt. Þetta er rosa­lega stórt teymi sem kemur að svona, bæði á vett­vangi og þegar hingað á Land­spít­al­ann er komið.“

Tómas heldur áfram og segir að mað­ur­inn hafi komið inn á mjög slæmum tíma.

„Það voru Covid sjúk­lingar á gjör­gæsl­unni og fullt upp í rjáfur. Allir hjálp­uð­ust að og búið var til pláss. Ein­hvern­veg­inn gekk allt upp, öll skref sem við tókum skil­uðu okkur áfram, allan tím­ann. Við lentum aldrei í alvar­legu bakslagi.“

Aðspurður segir Tómas að skot­mað­ur­inn muni ná sér að mestu en þetta hafi verið stór aðgerð en tek­ist hafi að bjargar stærstum hluta lung­ans.

„Það bendir allt til þess að hann muni geta náð mjög góðri lík­am­legri heilsu.“

Tómas gerði á þessum tíma­punkti hlé á sam­tal­inu þar sem hann þurfti að fara í stutta skurð­að­gerð. Eftir aðgerð­ina hélt við­talið áfram.

„Hann náði alveg undra­verðum bata, miðað við alvar­leika áverkans og hversu umfangs­mikil aðgerðin var. Það eru auð­vitað góðar fréttir fyrir ekki bara hann og hans fjöl­skyldu heldur einnig lög­reglu­mann­inn sem lenti í þeim erf­iðu aðstæðum að þurfa að hleypa af skoti á mann­inn“.

Bjargaði frönskum ferðamanni við Íshelli

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tómas sinnir útkalli vegna lík­ams­árásar. Eins og frægt er orðið bjarg­aði hann Skúla Eggerti Sigurz lög­manni eftir hnífa­árás árið 2012. „Það mál hefur þró­ast út í vin­áttu. Við höldum enn sam­bandi og mér þykir mjög vænt um það.“

Þá minn­ist Tómas einnig á björgun sem hann tók þátt í þegar hann var óharðn­aður lækna­nemi, rétt um tví­tugt en þá slös­uð­ust tveir franski ferða­menn. Hér er brot úr kafla úr bók­inni Fólk á fjöllum sem Ferða­fé­lags Íslands gaf út. Þar segir hann frá slys­inu.

„Mér er einnig minn­is­stætt þegar ég kom að göngu­mönnum sem höfðu lent í miklum háska í Kverk­fjöllum. Þar voru á ferð fjórir verk­fræð­ingar frá Renault-verk­smiðj­unum. Þeir höfðu farið í leyf­is­leysi inn í íshell­inn sem þá var stór og mik­il­feng­legur. Það var gríð­ar­lega mikið í Volgu sem kemur undan Kverkjökli. Skyndi­lega hrundi risa­blokk úr jökl­inum yfir mönn­unum eins og stöðugt ger­ist. Ég var nýlagður af stað í ferð með minn eigin hóp upp skrið­jökul­inn rétt ofan við íshell­inn og við sáum þegar þetta gerð­ist. Þetta var eins og heilt ein­býl­is­hús hefði hrunið niður snar­bratt stálið rétt hjá hópnum. Ísblokk­inn tvístrað­ist og stór klumpur kastað­ist yfir fót eins fjór­menn­ing­anna með þeim afleið­ingum að hann hlaut opið bein­brot. En það var öllu alvar­legra að hann kastað­ist út í ískalda ánna vegna flóð­bylgj­unnar sem varð við hrunið. Hópurinn minn var frá Aust­ur­ríki. Ég var svo hepp­inn að tveir far­þeg­anna voru þraut­þjálfaðir skíða­göngu her­menn úr aust­ur­ríska hernum. Þetta voru lík­lega vön­ustu fjalla­menn sem ég hef nokkru sinni haft með mér í ferð. Það var því ótrú­leg til­viljun að þeir skuli einmitt hafa verið með mér þennan afdríf­a­ríka dag. Við hlupum sam­stundis niður jök­ul­sporð­inn og vorum komnir á slys­stað­inn nokkrum mín­útum síðar. Maðurinn var hálfur í ánni og við sáum strax að ástand hans var mjög alvar­legt. Við óðum þrír út ískalt vatnið sem náði okkur vel yfir mitti og náðum honum á þurrt. Í svona ísköldu vatni er hætta á ofkólnun og hjartað getur hæg­lega farið í lífs­hættu­legar tak­trufl­anir. Her­menn­irnir útbjuggu á örskömmum tíma sjúkra­börur úr göngu­stöfum og reipi sem ég hafði með mér. Ég bað strax um aðstoð þyrlu. Við bárum hann inn í rútu sem var þarna skammt undan og klæddum hann úr öllu og settum hann í þurr föt. Beinið stóð út úr fæt­inum og sandur og drulla í sár­inu. Hann var mjög þjáður vegna bein­brots­ins og ég gaf honum mor­fín sem var til í skál­anum. Þyrlan gat ekki komið okkur til hjálpar vegna roks, en þetta var óvenju hlýr hnúka­þeyr sem stóð niður af jökl­inum úr suð­ur­átt. Þór­hallur Þor­steins­son, fóstri Sig­urð­ar­skála, var staddur á Egils­stöðum og fylgd­ist vel með fram­vind­unni. Okkur þótti afar slæmur kostur að fara með stórslas­aðan mann­inn land­leið­ina til Akur­eyrar, enda ástand hans ekki gott og hætta á sýk­ingu í brotið. Ég gat verkja­stillt mann­inn og hreinsað sárið en meira var ekki hægt að gera. Það varð úr að Þór­hallur ákvað að freista þess að koma á flug­vél sinni og ná í hinn slas­aða. Þrátt fyrir stífan vind tóks Þórhalli að lenda á flug­vell­inum í Kverk­fjöllum, sem er ekki er fyrir flug­hrædda, enda ekki sá slétt­asti á hálend­inu. Við komum sjúk­lingnum fyrir í vél­inni. Ég varð að fara með sem læknir og hlúa að sjúk­lingnum á leið­inni. Við gátum komið sjúk­lingnum fyrir í far­ang­urs­rým­inu. Sjálfur sat ég í aðstoð­ar­fluga­manns­sæt­inu. Þegar við vorum að taka á loft sagði Þór­hallur að þetta gæti orðið spenn­andi. Hann væri nýbú­inn að skipta um mótor í vél­inni sem væri tveggja manna. Hann tjáði mér jafn­framt að hann hefði aldrei tekið á loft með vél­ina svona þunga frá því skipt var um mót­or­inn. Ég benti honum á það í léttum dúr við værum að reyna að bjarga einum manni en það mætti ekki leggja undir þrjú manns­líf. Þór­hallur, sem er algjör nagli, gaf allt í botn og upp fór vélin þrátt fyrir okkur þrjá í vél­inni. Stefnan var sett á Akureyri. Ferðin þangað gekk vel en ég man samt hvað það sterkur hlið­ar­vind­ur­inn tók í. Á flug­vell­inum beið sjúkra­bíll. Á sjúkra­hús­inu var byrjað á því að draga mann­inn í lið, stilla brotin saman. Svo fór hann í aðgerð. Hann náði sér fljótt og vel. Þrátt fyrir að sárið hafi verið skítugt slapp hann við alvar­lega bein­sýk­ingu.Eftir að mað­ur­inn var hólp­inn fórum við Þór­hallur aftur í loftið. Hann ákvað að reyna að koma mér aftur í Kverk­fjöll þar sem hóp­ur­inn minn beið í róleg­heitum, en þar var næstum 20 stiga heitur hnjúka­þeyr. Sú flug­ferð var ekki síðra ævin­týr. Þórhalli tókst á ótrú­legan hátt að finna gat á milli skýj­anna til að koma flug­vél­inni niður. Hann skil­aði mér í Sig­urð­ar­skála og hélt svo til Egils­staða eftir gott dags­verk. Við Þór­hallur urðum eftir þetta miklir mátar“.

„Við björg­un­ar­að­gerð­irnar og allt umstangið eyðilögð­ust föt og göngustafir brottn­uðu. Á þessum tíma var Albert Guð­munds­son kon­súll Frakk­lands á Íslandi en um leið iðn­að­ar­ráð­herra. Ég hringdi í Albert og sagði að mér þætti skítt ef Þór­hallur fengi ekki að minnsta kosti greitt bens­ínið fyrir björg­un­ara­frek sitt. Þá hefðu nokkrir far­þega minna orðið fyrir tjóni þegar föt og göngustafir skemmd­ust. Það þurfti ekki að fylla út neina beiðni. Albert hringdi umsvifa­laust til Frakk­lands og tryggði að menn fengju greiddan kostn­að­inn. Ég þekkti Albert ekk­ert á þessum tíma en dáð­ist að því hve fljótur hann var að bregð­ast við. Þetta tók örfáa daga. Við fengum einnig kveðjur og þakkir frá Renault-verk­smiðj­unum og aðstand­endum mann­anna. Það var ótrú­leg heppni að við skyldum vera á svæð­inu þegar þetta gerð­ist. Sem betur fer eru lang­flestar fjalla­ferðir án áfalla en það er gef­andi að geta sem læknir orðið að liði þegar vanda­mál kom upp. Og ég held að að ferða­fé­lögum mínum þyki ekki verra að vita af því að læknir sé með í för.

Vinnur að rannsókn á árangri aðgerða

„Ég hef verið að aðstoða Bergrósi Jóhann­es­dóttur, dokt­or­snema við að rann­saka árangur aðgerða á sjúk­lingum með áverka eftir hnífa og/eða byssu­kúlur. Sem betur fer er þetta ekki dag­legt brauð á Íslandi eins og víða erlendis, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum þar sem er hálf­gerður far­aldur hvað varðar skotárásir. Þar lát­ast 40.000 manns á ári af völdum skotárása, hluti af þeim fellur fyrir eigin hendi. Í Suður Afríku og í London eru svo hnífa­á­verkar gríð­ar­lega algengir. Við erum samt að sjá hnífa­á­verka hér á landi af og til,“ segir Tómas en bætir við að þó að slíkir áverkar séu sjald­gæfir hér sé mjög mik­il­vægt að til staðar sé góð keðja, hlekkir sem geta unnið saman og aðstæður sem bjóða upp á slíkt. „Og það hefur sýnt sig að þetta sé að virka hér eins og rann­sóknir okkar sýna. Og við höfum ýmis­legt fram yfir stóru löndin. Það tekur til dæmis ekki nema 5-6 mín­útur fyrir við­bragðs­að­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að koma sjúk­lingi frá áverka­stað og inn á sjúkra­húsið og svo er mjög góður aðgangur á Íslandi að neyð­ar­blóði.“

Notar náttúruna til að ná sé niður

Blaða­maður spurði Tómas hvort hann þurfi ekki vera ansi agaður utan vinn­unnar til að geta staðið sig í vinn­unni, „það er alveg hár­rétt hjá þér, það er mjög mik­il­vægt. Maður verður að temja sé ákveð­inn lífstíl og ég segi það við marga yngri lækna að það er mik­il­vægt að stunda hreyf­ingu og þá á ég ekki bara við til að huga að lík­am­legri heilsu heldur líka fyrir sál­ar­lífið.“ Tómas seg­ist í fram­hald­inu oft nota nátt­úr­una til að ná sér niður eftir aðgerð, „ég fer oft einn eða með kon­unni minni, stundum í stærri hópum, bara út í nátt­úr­una, til að hvíla mig og sækja orku fyrir næstu törn.“

Tekin jarð­vegs­sýni fyrir NASA í Kverk­fjöllum i byrjun júlí 2021

Björk sækir kraft sinn í íslenska náttúru

Tómas lifnar allur við í sím­anum þegar blaða­maður spyr hann út í úti­vist­ar­mál sem eru honum hug­leikin. „Úti­vistin er stór hlut af mínu lífi en pabbi er jarð­fræð­ingur og svo vann ég ein­hver 8 sumur sem fjalla­leið­sögu­maður með lækna­nám­inu. Þá hef ég einnig unnið með Ferða­fé­lagi Íslands og verið með fjalla­skíða­prógram og erf­ið­ari jökla­ferðir.“ Segist Tómas brenna fyrir nátt­úr­una og að engin hreyf­ing sé betri fyrir and­legu hlið­ina en fjall­ganga. Aukreitis segir Tómas „Það gefur mér svo mikið að fara með fólk á svæði sem það hefur aldrei komið á áður. Ég hef alltaf sagt að þetta sé besta leiðin í nátt­úru­vernd, að taka fólk á stað­inn sem það hefur ekki komið á, til dæmis upp á Kverk­fjöll. Þá sér það virði nátt­úr­unnar og sér hlut­ina með öðrum augum en það gerir kannski í Reykja­vík.“ Telur Tómas gríð­ar­lega mik­il­vægt að fá ungt fólk til að fara í ferðir upp á hálendi Íslands. „Á Sprengisand og austur og víðar og auka fræðslu í skólum og kenna meira nátt­úru­fræði. Þess vegna er Ferða­fé­lag Íslands svona mik­il­vægt. Okkur hefur tek­ist að hrista aðeins upp í félag­inu, yngja það og yngja ímynd þess, getur maður sagt, t.d. með því að bjóða upp á fjalla­skíði og land­vætti og fleira.“

Þetta segir Tómas mik­il­vægt því þetta sé fólk sem er virkt í atvinnu­líf­inu og kemur í þessar ferðir og upp­lifi nátt­úr­una og miðli svo reynslu sinni á sínum vinnu­stöðum og fyr­ir­tækjum. „Þess vegna er ég í stjórn Ferða­fé­lags Íslands og að leggja þessa auka vinnu á mig, til þess að auka virð­ingu íslenskrar nátt­úru sem ég tel ekki síður dýr­mæt en bók­mennta­arf­ur­inn og tung­málið. Náttúran er auð­vitað mik­ill inn­blástur fyrir lista­menn, það er engin til­vli­jun að lista­menn eins og Björk og Ragnar Kjart­ans­son séu eins öflug og þau eru, þau sækja kraft­inn í nátt­úr­una.“

Tjaldað á Stóra-Hrúti með útsýni yfir gosið í Geld­inga­dölum.

Óvinur Vestfjarða!

Íslensk nátt­úra og verndun hennar er mikið hugð­ar­efni Tómasar en hann hefur til að mynda skrifað pistla um nátt­úru­vernd í hverri viku inni á Vísi.is og hefur gert það sam­fleytt í um 3 ár. Þetta gerir Tómas til að kynna íslenska nátt­úru fyrir fólki. Tómas segir umræð­una um nátt­úr­una og nátt­úru­vernd oft ansi óvæga enda hags­munir miklir, til dæmis í orku­geir­anum. Aðspurður um erf­iða umræðu nefnir hann deil­una um Hval­ár­virkjun á Ströndum sem honum þótti hatrömm.

„Ég tók það ekk­ert sér­stak­lega inn á mig en þetta var fjöl­skyldu minni erfitt. Ég var útnefndur óvinur Vest­fjarða númer 1.“

Tómas segir þó að nú séu liðin nokkur ár og búið að blása virkj­un­ina af tíma­bundið en hann telji að hún muni ekki rísa úr þessu, en hann skynji breyt­ingar í hug­ar­far­inu fyrir vestan. „Ég finn mik­inn mun á umræð­unni núna og fyrir 5 árum síðan, meiri skiln­ingur. Þá séu miklu fleiri ferða­menn, bæði erlendir og svo íslenskir í Covid, farnir að skoða þetta fal­lega svæði. Nú hafa nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­miðin fest sig meira í sessi fyrir vestan en virkj­un­ar­sjón­ar­miðin að mínu mati“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi