Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján lést í Danmörku aðeins 41 árs: „Vildi að ég gæti faðmað þig, knúsað og kysst“

Kristján lést í Danmörku aðeins 41 árs: „Vildi að ég gæti faðmað þig, knúsað og kysst“

Kristján Páll Krist­jáns­son lést fyrir viku síðan á sjúkra­húsi í Esbjerg í Danmörku, eftir snarpa bar­áttu við krabba­mein. Hann lætur eftir sig eig­in­konu og tvær dætur.

Kristján ólst upp í Vesturbæ Reykja­víkur. Hann lærði raf­einda­virkjun í Iðn­skól­anum og starf­aði að mestu fyrir ýmis tölvu­leikja­fyr­ir­tæki. Ungur fékk Kristján áhuga á gítar og lék á hljóð­færið alla ævi við góðan orðstír. Árið 2018 flutti fjöl­skyldan til Dan­merkur. Kristján stefndi á að hefja nám í eðl­is­fræði með haustinu áður en krabba­meinið kom eins og þruma úr heið­skíru lofti.

Í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu kemur fram að það mik­il­væg­ast í lífi Krist­jáns Páls hafi verið fjöl­skyldan og var föð­ur­hlut­verkið honum afar kært. Þar fara for­eldrar hans hlýjum orðum um son sinn.

Blessuð sé minn­ing Krist­jáns Páls.

„Hann var kannski ekki vin­margur en traustur vinur þeirra sem hann kynnt­ist vel. Alltaf var hann til í að hlusta og gefa ráð. Kristján Páll okkar var bráð­vel gef­inn. Það var stutt í góð­vild­ina og hlýj­una og fal­lega milda brosið ef svo bar undir. Hann var mjög næmur og til­finn­inga­ríkur og lét sér annt um allt sitt fólk, vini sína og fjöl­skyldu,“ segja for­eldr­anir og bæta við:

„En nú er stundin liðin og minn­ing­arnar einar eftir til að ylja sér við. Allt er svo öfug­snúið. Ungur maður í blóma lífs­ins, 41 árs, er frá okkur tek­inn en eftir sitjum við for­eldrar hans á
átt­ræð­is­aldri og finnst hlut­irnir í algjör­lega öfugri röð í sorg okkar. Blessuð sé minn­ing
elsku­legs sonar og vinar sem nú er geng­inn.“

Ég sakna þín óend­an­lega mikið, elsku fal­legi bróðir minn

Elsta systir Krist­jáns minn­ing einnig bróður síns með mik­illi hlýju. „Algjört ljós í mínu lífi. Hefur alltaf átt hjarta mitt frá fyrstu mín­útu.  Sorgin er mikil í mínu hjarta nú, elsku hjarta­gullið mitt. Þú varst sól­ar­geisl­inn í mínu lífi en nú hefur verið dregið fyrir sólu. Vildi að ég gæti faðmað þig, knúsað og kysst, ynd­is­legi bróðir minn. Þú munt alltaf eiga stóran sess í mínu hjarta og mun ég alltaf halda minn­ing­unum um þig á lofti. Ég kem til þín þegar
minn tími kemur og við knús­umst, föðm­umst og kyssumst. Ég lofa því elsku­leg­ur­inn minn. Ég sakna þín óend­an­lega mikið, elsku fal­legi bróðir minn, en þangað til næst: Sofðu vært og rótt, elsku bróðir. Lovjú að eilífu.“

Önnur systir Krist­jáns Páls kveður litla bróður sinn með brostið hjarta. „Vegna þagn­ar­innar við öllum spurn­ingum mínum hlýja ég mér við minn­ing­arnar okkar. Ég er og verð að eilífu þakk­lát fyrir að hafa fengið þig sem bróður. Við vorum náin og góð saman. Minn­ing­arnar okkar lifa. Það voru mikil gæði í þínu stutta lífi. Baráttan, trúin, vilj­inn og
þráin eftir lengra lífi með stelp­unum þínum þremur var svo áþreif­an­lega magn­þrungin að
við, þínir nán­ustu, stóðum utan­velta, ráð­þrota og ráða­laus rétt eins og vél­vana ára­bátar úti á ólg­andi rúm­sjó. Það var vont og ný til­finn­ing að fyll­ast þessu djúpa dökka von­leysi og þessum ömur­leg­heitum að geta ekki gert neitt fyrir ykkur. Þú lifir áfram Krissi minn, í hjarta mínu og sál. Skarðið verður aldrei fyllt en ég mun reyna að fylla það með gulli góðra minn­inga. Hvíldu í ró og friði elsku litli bróðir minn. Við sjá­umst aftur ein­hvers staðar, ein­hvern tíma aftur.“

Útför Krist­jáns Páls fer fram í dag í Billund í Danmörku að við­stöddum nán­ustu fjöl­skyldu og vinnu­fé­lögum. Minn­ing­ar­at­höfn mun fara fram á Íslandi og verður tíma­setn­ing hennar aug­lýst nánar síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi