Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar: „Þar opinberar Halldór yfirlætið og hrokann sem sjóðfélagar lífeyrissjóða mega þola“

Ragnar: „Þar opinberar Halldór yfirlætið og hrokann sem sjóðfélagar lífeyrissjóða mega þola“
xx

25 millj­arðar eru ekki mjólkur­laus speni og það eru margir sem sjúga fast,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR og bætir við:

„Halldór Benjamín fram­kvæmda­stjóri SA fer mik­inn í grein sem hann kallar, hljóð og mynd fara saman. Þar opin­berar Halldór yfir­lætið og hrok­ann sem sjóð­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða mega þola og hafa mátt þola frá varð­hundum kerf­is­ins ára­tugum saman. Allt sé byggt á mis­skiln­ingi og íslenska líf­eyr­is­und­rið sé það besta og best rekna á byggðu bóli. Allur sam­an­burður stað­festi það.“

Ragnar spyr:

„Standast full­yrð­ingar Halldórs skoðun? Halldór segir að fjár­fest­ing­ar­kostn­aður – gjöld – líf­eyr­is­sjóða séu á bil­inu 0,04 – 0,05% sem hlut­fall af eignum, sem þýðir að þau hafi verið í kringum 2,3 til 2,8 millj­arðar á síð­asta ári. Ef árs­reikn­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna eru skoð­aðir kemur allt önnur nið­ur­staða í ljós eða yfir 16 millj­arðar þar sem „áætl­aður“ kostn­aður við fjár­fest­ingar er vel fal­inn í skýr­ingum árs­reikn­inga sjóð­anna og kemur ekki fram í tölum Halldórs. Af hverju ætli það sé því var­lega áætl­aður kostn­aður er sann­an­lega kostn­aður?“

Hann bendir á að „sjóð­irnir bóka þar af leið­andi ein­ungis beinan fjár­fest­ing­ar­kostnað sem er aðeins brot af heild­ar­kostn­aði og taka svo skrif­stofu og stjórn­un­ar­kostnað og setja fram sem hlut­fall af heild­ar­eignum. Sem verður auð­vitað mjög lágt. Engin til­raun er gerð til að setja aldur og stærð líf­eyr­is­sjóða­kerfa innan OECD í sam­hengi við hlut­fall af kostn­aði eða hvernig þeir færa kostnað vegna fjár­fest­ing­ar­gjalda.“

Og veltir því fyrir sér hvað Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sé „með í laun sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu? Ætli það sé sam­bæri­legt og Joe Biden er með sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu Banda­ríkj­anna? Hver ætli skrif­stofu og stjórn­un­ar­kostn­aður íslenskra líf­eyr­is­sjóða sé á hvern rík­is­borg­ara sam­an­borið við löndin innan OECD?

Hver ætli raun­veru­legur rekstr­ar­kostn­aður líf­eyr­is­sjóða sé á hvern sjóð­fé­laga? Og hvað ætli séu margir líf­eyr­is­sjóðir að með­al­tali fyrir hverja 360.000 íbúa í lönd­unum sem við berum okkur saman við? Þeir eru 21 á Íslandi!“

Ragnar segir að allur alþjóð­legur sam­an­burður sé mark­laus eða í besta falli vill­andi því kerfin séu mis­þroskuð, gömul og stór:

„Stað­reyndin situr eftir að þessi ríf­lega 25 millj­arða árlegi kostn­aður er við­ur­kenndur af sjóð­unum sjálfum og alveg ljóst að hann er var­lega áætl­aður og að öllum lík­indum miklu miklu hærri. Eiga stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna betra skilið eins Halldór vill meina? Hvað fóru líf­eyr­is­sjóð­irnir í mörg dóms­mál til að sækja bætur fyrir hönd sjóð­fé­laga í eft­ir­málum banka­hruns­ins? Hvað hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir eða stjórnir þeirra farið í mörg dóms­mál frá hruni eða hversu mörg mál hafa verið skoðuð eða kærð vegna vafa­samra við­skipta, umboðs­svika, tengsla, kyn­ferð­is­legrar áreitni eða gruns um svik­sam­lega hátt­semi gagn­vart hags­munum okkar sem eigum þessa sjóði? Hversu mörg?“

Ragnar spyr einnig „hvað gerðu stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna þegar stóru alþjóð­legu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækin greiddu skila­nefndum föllnu bank­anna him­in­háar skaða­bætur fyrir að þegja yfir því að hafa falsað árs­reikn­inga bank­anna í aðdrag­anda hruns­ins? Uppgjör sem komu nýlega í ljós.“

Og spyr líka að þessu:

„Hvað gerðu stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna þegar stjórn­endur Icelandair – sem var í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóð­anna – keyptu verð­lausan hlut í Lind­ar­vatni á tæpa tvo millj­arða sem flokks­gæð­ingar og aðrir dek­ur­kálfar skiptu bróð­ur­lega á milli sín í gegnum nokkur eign­ar­halds­fé­lög?

Hvað gerðu stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna þegar sjálftakan í kringum rekstur tölvu­kerfis líf­eyr­is­sjóð­anna – Init hneykslið – komst upp?

Hvað gerðu stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna þegar ein gróf­ustu og alvar­leg­ustu umhverf­is­brot Íslands­sög­unnar voru framin af stjórn­endum Eimskips við förgun skipa?

Hvað gerðu líf­eyr­is­sjóð­irnir þegar upp­lýs­ingar komu fram um mögu­lega mis­bresti við sölu Bakka­varar árið 2016 og kost­uðu líf­eyr­is­sjóð­ina 40 til 60 millj­arða við skrán­ingu félags­ins á breskan markað?

Hvað hafa stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna sópað mörgum óþægi­legum málum undir teppið?“

Ragnar er á því að „Halldór Benjamín og Við­skipta­blaðið geta þakkað stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir vel unnin störf en þær hafa reynst fjár­mál­kerf­inu og atvinnu­líf­inu mjög mjög vel. Bæði í formi fjár­magns þegar vel gengur og aðgerð­ar­leysis þegar illa fer. Og láta sig ekki vanta þegar svara þarf frekum lýðnum, og gera það með sama hroka og yfir­læti og af þeim er ætl­ast. Gæti ekki verið betra fyr­ir­komu­lag.“

Hann segir einnig að „25 millj­arðar í árlegan rekstr­ar­kostnað, sem er var­lega áætlað, er ekki mjólk­ur­laus speni. Og það eru margir sem sjúga fast.

Jú það ber vissu­lega að þakka stjórnum sjóð­anna fyrir með­virkn­ina, þögg­un­ina og aðgerð­ar­leysið þegar kemur að sið­leysi, spill­ing­ar­málum og sjálftöku í íslensku fjár­mála og atvinnu­lífi. Það kemur því ekki á óvart að varð­hundar kerf­is­ins glefsi ef ein­hver opnar á sér munn­inn og spyr gagn­rýnna spurn­inga.

En hvers eiga sjóð­fé­lagar að gjalda?

Af hverju hafa sjóð­fé­lagar ekk­ert um þetta að segja og af hverju er Halldór Benjamín ekki til­bú­inn að þiggja boð mitt um að báðir aðilar setji það í hendur sjóð­fé­laga að kjósa stjórnir sjóð­anna?

Flestir vita svarið við því.

Í því fel­ast engin völd.

Sjóð­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða eiga betra skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi