Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tvíburamorðið í Heiðmörk: Lárus var einungis 36 ára og skildi eftir sig sambýliskonu og þrjá syni

Tvíburamorðið í Heiðmörk: Lárus var einungis 36 ára og skildi eftir sig sambýliskonu og þrjá syni

Aðfara­nótt fimmtu­dags­ins 2. októ­ber árið 1997 urðu ein­eggja tví­burarnir Sigurður Júlíus og Ólafur Hannes Hálf­dán­ar­synir Lárusi Ágústi Lárus­syni að bana í Heiðmörk. Bræð­urnir voru 25 ára gamlir þegar þeir frömdu ódæðið. Þeir voru báðir sak­felldir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness þann 5. des­em­ber 1997, ein­ungis um tveimur mán­uðum eftir morðið. Þeir hlutu þó mis­langa dóma. Sigurður Júlíus hlaut sextán ára fang­els­is­dóm, en Ólafur Hannes fékk átta ára dóm. Ólafur Hannes krafð­ist lækk­unar refs­ingar við áfrýjun dóms­ins til Hæsta­réttar, en Hæsti­réttur taldi þess í stað ástæðu til að þyngja dóm hans. Svo fór að hann hlaut tólf ára dóm.

Skipulagt sem rán en varð að kaldrifjuðu morði

Að kvöldi dags mið­viku­dag­inn 1. októ­ber árið 1997 kom Ólafur heim til Sigurðar, bróður síns, með þann ásetn­ing að þeir færu saman út að skemmta sér. Þeir hittu Lárus Ágúst Lárusson á skemmti- og nekt­ar­dans­staðnum Vegas, en þar hafði Ólafur starfað af og til um helgar. Menn­irnir tóku tal saman en eins og segir í grein DV frá 11. októ­ber 1997 var ekk­ert sem benti til þess að menn­irnir hafi þekkst fyrir kvöldið örlaga­ríka. Samkvæmt gögnum hafi þeir ákveðið að fara saman á skemmti­stað­inn Bóhem. Það hafi þá komið til tals að Lárus hefði „tals­verða fjár­muni undir höndum“.

Svo virð­ist vera að eftir að tví­burarnir fengu þær upp­lýs­ingar hafi þeir lagt á ráðin um að ræna Lárus. Í kjöl­farið óku þeir með Lárus á bíl Ólafs upp í Heiðmörk. Ólíklegt þykir að bræð­urnir hafi ætlað að bana Lárusi, heldur hafi þeir ætlað sér að rota hann og ræna svo. Sigurður sagði sjálfur fyrir dómi að hann hafi ætlað sér að fara með hinn látna í Heiðmörk, ræna hann og láta hann svo ganga heim. Lárus hafi hins­vegar veitt þeim mót­spyrnu, enda var hann þaul­vanur íþrótta­maður og vel á sig kom­inn.

Bæði Sigurður og Ólafur sögðu frá því að ránið hefði upp­haf­lega verið hug­mynd Sigurðar, en Sigurður tók það fram að hann hefði ein­ungis viljað ræna Lárus vegna slæmrar fjár­hags­stöðu Ólafs bróður síns, eins og segir í grein Morg­un­blaðs­ins frá 29. nóv­em­ber 1997. Þrátt fyrir þessa skýr­ingu Sigurðar tók hann sjálfur 5000 krónur úr veski Lárusar, en Ólafur 3000 krónur.

Eins og áður sagði kom til átaka þegar Lárus veitti bræðr­unum mót­spyrnu við ránstil­raun­ina. Að öllum lík­indum náði Lárus að slíta sig lausan frá þeim og komst undan, en bræð­urnir náðu honum aftur og yfir­bug­uðu hann. Það var þá sem Sigurður keyrði 13 kílóa stein­hnull­ung tví­vegis í höfuð Lárusar. Að því loknu tóku tví­burarnir veski Lárusar, sett­ust upp í bíl­inn og óku því næst yfir hann þar sem hann lá á jörð­inni. Lárus var þó senni­lega þegar lát­inn á þeim tíma­punkti. Að sögn Ólafs, sem var undir stýri, hafði hann ekki ætlað sér að aka yfir Lárus, en sökum ann­ar­legs ástands síns hafi hann hvorki séð Lárus né tekið eftir því þegar hann keyrði yfir hann.

Hvor benti á annan

Þó bræð­urnir hefðu í meg­in­at­riðum verið sam­mála um aðdrag­anda morðs­ins voru frá­sagnir þeirra af verkn­að­inum sjálfum ólíkar.

Í til­fellum beggja bræðra gerðu þeir meira úr hlut hins en minna úr sínum eigin.

Þannig sagð­ist Ólafur til að mynda hafa „staðið stjarfur og horft á atlögu bróður síns að mann­inum“, eins og sagði í Morg­un­blað­inu. Sömu­leiðis tók fram­burður þeirra beggja breyt­ingum við yfir­heyrslur. Á leið­inni af vett­vagni glæps­ins keyrði Ólafur út af veg­inum og festi bíl sinn. Bræð­urnir héldu því áfram fót­gang­andi, en á leið­inni brut­ust út slags­mál á milli þeirra. Vildi Ólafur meina að það hefði gerst vegna þess að hann hefði viljað að þeir gæfu sig fram við lög­reglu. Það hafi hins­vegar ekki hugn­ast Sigurði, sem hafi reiðst mikið og látið höggin dynja á bróður sínum. Hann hætti því loks þegar Ólafur lof­aði að koma ekki upp um þá. Þessari sögu vís­aði Sigurður á bug og sagði átökin hafa komið til vegna ágrein­ings um hvenær og hvernig þeir myndu gefa sig fram og játa brot sitt. Kvöldið eftir gaf Ólafur sig fram við lög­regl­una í Reykja­vík, en sagð­ist þá hafa orðið vitni að því þegar bróðir hans myrti mann í Heiðmörk.

Deilt um sakhæfi Sigurðar

Geð­lækn­ir­inn Hannes Pét­urs­son fram­kvæmdi geð­rann­sókn á tví­burunum og var nið­ur­staða hans sú að Sigurður Júlíus væri hald­inn geð­klofa, sak­hæfi hans því skert og refs­ing skyldi taka mið af því. Hann taldi sig ekki hafa fundið neina skerð­ingu á sak­hæfi hjá Ólafi Hannesi í skiln­ingi hegn­ing­ar­laga, en tók það þó fram að Ólafur sýndi vissu­lega merki per­sónu­leika­rösk­unar og áfeng­is­sýki. Hann ætti einnig sögu um erfið sam­skipti allt frá æsku.

Sigurður hafði í tvígang verið lagður inn á geð­deild sama ár og bræð­urnir frömdu morðið. Geð­lækn­ir­inn taldi það víst að hefð­bundin refsi­vist í fang­elsi hefði ekki góð áhrif á heilsu Sigurðar og myndi ekki bera til­ætl­aðan árangur. Hann lagði í stað þess til að Sigurður yrði vistaður á rétt­ar­geð­deild, en þar fengi hann með­ferð við hæfi og gæti verið í reglu­legum tímum hjá geð­lækni, sem hann þyrfti sann­ar­lega á að halda.

Bæði Sigurður og Ólafur höfðu áður kom­ist í kast við lögin. Ljóst var að tví­burarnir höfðu átt erf­iða æsku og vímu­efni höfðu komið við sögu í lífi beggja.

Ákæru­valdið krafð­ist þess að báðir bræður væru dæmdir til hefð­bund­innar refs­ingar, þrátt fyrir geð­mat Sigurðar.

Dómur kveðinn upp

Ólafur þótti marg­saga fyrir dómi og ekki var fall­ist á að hann hefði í raun keyrt óvilj­andi yfir Lárus. Þó Ólafur vildi meina að Sigurður hefði ráðið ferð­inni allan tím­ann („Ég hef alltaf látið í minni pok­ann gagn­vart honum“ sagði Ólafur meðal ann­ars,) þótti sannað að hann hefði átt hlut í átök­unum sem leiddu til dauða Lárusar og að hann hefði getað gripið inn í og stöðvað atburða­rás­ina ef vilji hefði staðið til. Það hafi hann hins­vegar ekki gert. Eins og áður sagði hlaut hann að lokum átta ára fang­els­is­dóm í hér­aði, sem var þyngdur í tólf ár í Hæsta­rétti.

Verjandi Sigurðar krafð­ist þess að hann yrði dæmdur ósak­hæfur og hlyti því ekki refsi­dóm.

Hann sagði aug­ljóst að þar sem Sigurður væri ekki heill á geði hefði hann ekki gert sér grein fyrir afleið­ingum gjörða sinna þegar hann tók upp stein­inn í átök­unum við Lárus.

Það fór þó svo að Sigurður hlaut sextán ára dóm í hér­aðs­dómi, en dómnum var haldið óbreyttum í Hæsta­rétti eftir áfrýjun. Bræð­urnir voru einnig dæmdir til að greiða fjöl­skyldu Lárusar heit­ins sam­tals rúm­lega 8,4 millj­ónir króna auk vaxta í skaða­bætur. Auk þess voru þeir dæmdir til að greiða 850 þús­und krónur í máls- og sak­ar­kostnað. Hæsti­réttur taldi ekki frekar en hér­aðs­dómur ástæðu til að Sigurður afplán­aði dóm sinn á við­eig­andi stofnun. Þó var tekið fram að refsi­vist Sigurðar yrði í sam­ræmi við heilsu hans.

Lárus Ágúst Lárusson fædd­ist árið 1961 og var því ein­ungis 36 ára gam­all þegar hann var hrif­inn burt með eins grimmi­legum hætti og raun ber vitni. Hann skildi eftir sig sam­býl­is­konu og þrjá syni. Synir hans voru sautján, níu og tveggja ára þegar þeir misstu föður sinn.

Sigurður strýkur

Þegar Sigurður átti innan við hálft ár eftir af afplánun sinni strauk hann af áfanga­heim­il­inu Vernd. Þar átti hann að vera þar til honum yrði sleppt á reynslu­lausn, en þetta var í sept­em­ber árið 2007. Hann gekk laus í tæpa viku án þess að lýst væri eftir honum, því ekki þótti stafa hætta af Sigurði. Auk þess var verið að vernda Ólaf fyrir áreiti, en hann var á þessum tíma þegar laus úr fang­elsi. Eins og gefur að skilja voru tví­bura­bræð­urnir líkir í útliti og Ólafur gæti því ósenni­lega um frjálst höfuð strokið ef aug­lýst væri eftir Sigurði með myndum.

Nánustu aðstand­endur Sigurðar aðstoð­uðu lög­reglu við leit­ina og Sigurður náð­ist svo á leið til vina sinna á Kjal­ar­nesi.

Sigurður var undir áhrifum þegar hann fannst.

Þráinn Bj. Farest­veit, þáver­andi for­stöðu­maður Verndar, sagði það hafa legið í loft­inu í nokkurn tíma að Sigurður myndi þurfa að fara aftur á Litla-Hraun. Sigurður hafi verið allur af vilja gerður en hafði þó ekki tek­ist að fylgja öllum settum reglum á Vernd. Hann hafi verið búinn að fá áminn­ingu og að mögu­lega hefði til­hugs­unin um að þurfa að hverfa aftur á Litla-Hraun verið honum ofviða.

Samfangi Sigurðar sagði hins­vegar í sam­tali við DV stuttu eftir flótt­ann að hann væri ekki sann­færður um þá rök­semd­ar­færslu. Hann taldi mun lík­legra að Sigurður hefði verið orð­inn þung­lyndur og far­inn að finna fyrir yfir­þyrm­andi kvíða yfir því að fara aftur út í sam­fé­lagið. Hann hafi því hugs­an­lega verið að reyna að koma í veg fyrir að sér yrði sleppt.

Valtýr Sig­urðs­son, þáver­andi for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, taldi flótta Sigurðar geta haft áhrif á reynslu­lausn hans, í sam­tali við DV þann 14. sept­em­ber árið 2007. Það ætti þó eftir að koma í ljós hversu mikil áhrif; hvort reynslu­lausnin yrði aft­ur­kölluð og þá hversu lengi.

Það átti þó aldrei eftir að koma í ljós. Einungis nokkrum dögum seinna, þann 22. sept­em­ber árið 2007, lést Sigurður Júlíus Hálf­dán­ar­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi