Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hræðileg reynsla Sibbu og dætra hennar: „Þessi sjúkdómur er helvíti“

Hræðileg reynsla Sibbu og dætra hennar: „Þessi sjúkdómur er helvíti“

„Ég gekk í gegnum þetta hel­víti þegar ég var ung, ég veit ekki hversu margar ferðir með sjúkra­bíl og eitt skipti með sjúkra­flugi á spít­ala. Sárlasin og verkjuð þessir verkir eru eins og verstu þá meina ég verstu hríð­ar­verkir sem hægt er að fá nema þeir eru stans­laust og það eru engar mín­útur á milli.“ Þannig hefst frá­sögn Sibbu Arndal, en hún hefur barist við sjúk­dóm­inn endó­metríósu í 30 ár.

Á heima­síðu sam­taka um endó­metríósu, endo.is, segir að endó­metríósa sé „krónískur, fjöl­kerfa og fjöl­gena sjúk­dómur“. Hann er sagður leggj­ast mis­þungt á fólk og hafa mis­mikil áhrif á dag­legt líf þeirra sem eru með sjúk­dóm­inn.

Endó­metríósa var áður þekkt undir nafn­inu legs­límuflakk. Það kom síðar í ljós að það var ekki lækn­is­fræði­legt rétt­nefni og er heitið því ekki notað lengur. Sjúk­dóm­ur­inn leggst ein­göngu á ein­stak­linga sem fæð­ast í kven­manns­lík­ama.

Nú hafa dætur Sibbu greinst með sjúk­dóm­inn og aug­ljóst er á frá­sögn hennar að það er henni afar þung­bært að þurfa að horfa á þær þjást á sama hátt og hún hefur sjálft þurft að gera.

Sibba heldur áfram:

„Ég vildi svo óska þess að dætur mínar þyrftu ekki að ganga í gegnum þetta líka, en sú er raunin.

Þegar þetta byrj­aði hjá yngri dóttir minni vorum við fjöl­skyldan stödd á Spáni í sum­ar­fríi og yngri dóttir mín var bara 12 ára, hún lá inni í her­bergi í rúm­inu í heila viku grát­andi og öskr­andi af sárs­auka, við höfðum áhyggjur afþví að nágrann­arnir myndu hringja í lög­regl­una.“

Skólagangan í molum

Sibba lýsir því hvernig sjúk­dóm­ur­inn hafi haft gríð­ar­leg áhrif á skóla­göngu dótt­ur­innar, þá sér­stak­lega í níunda og tíunda bekk grunn­skól­ans. Dóttir hennar hafi alls ekki alltaf mætt skiln­ingi, þvert á móti hafi henni gjarnan verið sagt að harka af sér, þetta væru nú bara túr­verkir, henni sagt að aug­ljós­lega væri hún bara að reyna að sleppa við að mæta í skól­ann og þar fram eftir göt­unum. Sibba segir ástandið hafa haft mikil áhrif á and­lega heilsu dóttur sinnar og að hún hafi þróað með sér bæði þung­lyndi og kvíða.

Á heima­síðu sam­taka um endó­metríósu segir enn­fremur:

„Sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér á þann veg að endó­metríósu­frumur setj­ast á yfir­borðs­þekju á hinum ýmsu líf­færum, bregð­ast við mán­að­ar­legum horm­óna­breyt­ingum lík­am­ans og valda þar bólgum. Þannig getur ein­stak­lingur með endó­metríósu verið með inn­vortis blæð­ingar í hverjum mán­uði á þeim stöðum sem frum­urnar eru. Þar sem þetta blóð kemst ekki í burtu geta mynd­ast blöðrur á þessum stöðum. Einnig geta mynd­ast sam­grón­ingar milli líf­færa og innan kvið­ar­hols­ins eða ann­ars­staðar í lík­am­anum. Allt getur þetta valdið miklum sárs­auka.“

Sibba tekur fram að þegar mann­eskja glími við svona skelfi­lega verki þurfi við­kom­andi að taka afar sterk verkja­lyf, sem og bólgu­eyð­andi lyf. Svo mikil notkun á slíkum lyfjum valdi síðan maga­bólgum.

Um fram­halds­skóla­göngu dóttur sinnar segir Sibba:

„Hún byrj­aði svo í fram­hald­s­kóla og var mjög spennt að fara að læra draum­ur­inn hennar var að verða kenn­ari , því hún átti svo frá­bæran kenn­ara sem hún leit upp til og var ein af hennar fyr­ir­myndum í líf­inu og er enn, hún átti mjög auð­velt með að læra, en var mikið frá vegna veik­inda og á end­anum varð hún að hætta því skiln­ing­ur­inn á þessum sjúk­dómi var ekki mik­ill og ekki fékk hún leyfi til að vinna skóla­verk­efnin sín heima. Við erum mikið búin að reyna að finna út úr því hvað hún gæti lært og unnið við??“

Sibba heldur áfram:

„Hún fór út á vinnu­mark­að­inn og þar var sama staðan, hún gat illa mætt vegna veik­inda, og þar var sama staðan als­konar umtal og lít­ill skiln­ingur. En eins og gefur að skilja þá er erfitt að hafa mann­eskju í vinnu sem ekki er hægt að treysta á að hún geti alltaf mætt. Það fylgir þessu líka mik­ill kvíði og van­líðan að þurfa að hringja eina ferð­ina enn og til­kynna veik­indi.“

Legnám eina lausnin þó óvíst sé hvort það virki

Sibba segir að dóttir sín sé þegar búin að fara í eina aðgerð vegna sjúk­dóms­ins, en að sú aðgerð hafi ekki haft neitt að segja. Hún segir það vera mögu­leika að minnka veik­indi dóttur sinnar, án þess þó að lækna hana að fullu, með því að láta fjar­lægja leg hennar. Sjálf hafi hún farið í leg­nám vegna sjúk­dóms­ins, en hún hafi þó verið orðið 35 ára og búin að eiga þrjú börn. Dóttir hennar sé hins­vegar ein­ungis tví­tug og alltof ung til þess að mögu­leiki hennar á barn­eignum í fram­tíð­inni sé tek­inn af henni. Sibba segir að auð­vitað langi dóttur hennar til þess að eign­ast börn.

Vegna stöðugra veik­inda dóttur Sibbu átti hún afar erfitt með að vera á vinnu­mark­aði, eins og gefur að skilja. Launin voru orðin engin og stúlkan mikið veik, rúm­liggj­andi marga daga í mán­uði. Ásamt því að þjást af endó­metríósu hafi hún verið komin með síþreytu, þung­lyndi, kvíða og maga­bólgur, eins og áður sagði.

Neitað um bæði örorku og atvinnuleysisbætur

Þau hafi því ákveðið að sækja um örorku fyrir hana. Umsókn­inni hafi hins­vegar verið hafnað og henni bent á að leita ann­arra úrræða. Þegar þau báðu um upp­lýs­ingar um téð úrræði fengu þau engin svör.

„Hún sótti um atvinnu­leys­is­bætur en þar sem hún var búin að vera svona mikið veik þá var það sama sagan hún pass­aði ekki þar inn. Og ef hún myndi fá bætur þá væru þær mjög lágar vegna þess hún hefur aldrei getað unnið mikið vegna veik­indana,“ segir Sibba.

Sibba segir dóttur sína eiga rétt á sjúkra­dag­pen­ingum, en ein­ungis tíma­bundið. Það væri svo sama sagan og með atvinnu­leys­is­bætur, dóttir hennar hefði ekki rétt á fullum sjúkra­dag­pen­ingum þar sem hún hefði ekki verið að sinna fullri vinnu vegna veik­ind­anna. „Hvað eru 50% sjúkra­dag­s­pen­ingar mikið á dag 970kr á dag!! Það lifir eng­inn á því.“

Samkvæmt sam­tökum um endó­metríósu er talið að á Íslandi þjá­ist um 12.000 til 15.000 ein­stak­lingar af sjúk­dómnum. Þrátt fyrir þetta hafa ein­ungis um 3.000 til­felli verið form­lega greind.

Sibba segir að lokum:

„Við erum ráð­þrota hún passar hvergi inn í þessu kerfi það virð­ist ekki vera neinn staður í kerf­inu fyrir konur með endó­metríósu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi