Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallsteinn íþróttastjórnandi: „KSÍ núna í kjörstöðu til að stokka spilin upp á nýtt“

Hallsteinn íþróttastjórnandi: „KSÍ núna í kjörstöðu til að stokka spilin upp á nýtt“

Hall­steinn Arnarson hefur lokið meist­ara­námi (EMBA gráðu) í íþrótta­stjórnun (e. sports mana­gement). Í við­tali við Mannlíf ræðir Hall­steinn, sem lék áður fót­bolta með Víkingi en þó lengst af með FH, um stöðu mála hjá KSÍ, námið sitt og fleira.

Hvað finnst þér um KSÍ málið?

Mín gagn­rýni er á fag­legu og mál­efna­legu nót­unum. Ég hef verið gagn­rýn­inn á hvernig æðstu stjórn­endur KSÍ brugð­ust fyrst við í þessu máli. Nú veit ég ekki hvort þeir studd­ust við utan­að­kom­andi ráð­gjöf, en mér fannst við­brögð þeirra í fyrri yfir­lýs­ing­unni klaufa­leg, illa ígrunduð, úr takti við sam­fé­lags­um­ræð­una go senda köld skila­boð til þolenda kyn­ferð­is­brota og aðstand­enda þeirra. Maður veit ekki hvort þetta hafi verið ein­róma skoðun allra með­lima stjórn­ar­innar, en í svona erf­iðum og flóknum málum, sér­stak­lega í umhverf­inu sem við búum við í dag, verður að sýna þolendum nær­gætni, sam­kennd, skiln­ing og virð­ingu. Auk þess gerir sam­fé­lagið auknar kröfur til fyr­ir­tækja, stofn­ana og félaga­sam­taka um gegn­sæi, vönduð vinnu­brögð, nútíma stjórn­ar­hætti og svo fram­vegis.

Áran yfir KSÍ hefur ekki verið góð í tals­verðan tíma og mikið um orðróm um eitt­hvað slæmt.

Já, sögur um þessi meintu ofbeld­is­mál hafa mallað undir yfir­borð­inu í mjög langan tíma, í fjölda ára. Ég var búinn að heyra eitt­hvað af þessum sögu­sögnum sem nú hafa komið fram og mikið er um fjallað. Þær urðu útbreidd­ari og stig­mögn­uð­ust með tím­anum, voru í raun tif­andi tíma­sprengja. Ég neita að trúa því að æðstu stjórn­endur sam­bands­ins hafi ekk­ert heyrt og vitað um þessi mál, eflaust vissu sum þeirra meira en önnur, en þau höfðu alla­vega nægan tíma til að gera eitt­hvað meira í mál­unum.

Hefur KSÍ brugð­ist rétt við varð­andi orðróm­inn um ofbeldi lands­liðs­manna?

Mér finnst skrýtið að stjórnin hafi ekki kannað málin betur sjálf eða fengið óháðan aðila til að skoða þau ofan í kjöl­inn áður en þau komu fram með yfir­lýs­ing­una, þó það hefði komið seint og eftir að Hanna Björg sagð­ist hafa gögn í hönd­unum sem studdu mál­stað þolenda. En ég veit svo sem ekk­ert um hvað fór fram inn­an­húss hjá KSÍ, kannski fór ein­hver slík vinna þar fram, en svona lítur þetta bara út fyrir mér horft að utan.

Þetta snýst ekki bara um hver er vondur og hver er góður, heldur frekar við­brögð og úrvinn­nslu. Ertu sam­mála því?

Stjórn­end­urnir hjá sam­band­inu eru ekki vont fólk og ég er ekki að dæma það sem per­sónur. Það gera allir mis­tök og sum eru dýr­ari en önnur. Að mínu mati vant­aði þarna ákveðna sér­þekk­ingu og hæfni til að geta tekið öðru­vísi og betur á mál­unum og úr urðu afdrifa­rík mis­tök. Eftir að málin fóru á flug í fjöl­miðlum, ákvað stjórnin loks að kanna þau nánar og vænt­an­lega líka önnur tengd mál. Í fram­hald­inu sáu þau að sér og báð­ust afsök­unar. Seinni yfir­lýs­ing stjórn­ar­innar var fín, þar fann maður að minnsta kosti fyrir meiri auð­mýkt og ein­lægni. Einnig kom þar fram að stjórnin hefði áður haft tak­mark­aðar upp­lýs­ingar. Það sýnir skýrt hversu mik­il­vægt það er í hraða upp­lýs­inga­sam­fé­lag­inu að tryggja að maður hafi undir höndum öll helstu og rétt gögn til að geta tekið réttar ákvarð­anir.

Það er varla hægt að ætl­ast til af stjórn­endum í íþrótta­starfi að þeir séu sér­fræð­ingar í kyn­ferð­is­brota- og ofbeld­is­málum, eða hvað?

Hafa ber í huga að ÍSÍ hefur fjallað mikið um Metoo bylt­ing­una og hvernig bregð­ast skuli við í málum er snúa að áreitni, ein­elti, kyn­ferð­is­brotum og öðru ofbeldi í skipu­lögðu íþrótta- og æsku-lýðs­starfi. Hjá ÍSÍ starfar sam­skipta­ráð­gjafi, sem er sér­fræð­ingur íslenska rík­is­ins í þess háttar málum.

Ef ég skil þetta rétt þá geta eða jafn­vel eiga íþrótta­ein­ingar hér­lendis að vísa ábend­ingum og kvört­unum um meint brot sem kunna að koma upp hjá þeim til ráð­gjafans og þar eiga þolendur að fá aðstoð með sín mál. En mér skilst líka að það sé ekki nema rúmt ár síðan sam­skipta­ráð­gjaf­inn hóf störf, þannig að ég veit ekki hvernig svona mál voru með­höndluð fyrir þann tíma og hvort þolendur hafi verið sáttir við þá hjálp sem þeir fengu þá frá íþrótta­hreyf­ing­unni. Sé grunur um mögu­leg lög­brot, er vænt­an­lega æski­leg­ast að til­kynna þau lög­reglu­yf­ir­völdum.

Ég vil taka það alveg skýrt fram hér, eins og ég hef gert áður, að ég er alls ekki að gagn­rýna allt starfs­fólk KSÍ. Þar er almennt fólk að skila góðu starfi, m.a. nágranni minn sem ég veit að er fag­maður í alla staði. For­mað­ur­inn gerði vissu­lega sín mis­tök, en mér heyr­ist að þessi mál sem um er rætt hafi átt sér stað fyrir hans tíma hjá KSÍ.

Hvers vegna ákvaðst þú að skella þér í meist­ara­nám í íþrótta­stjórnun?

Það er smá saga á bak við það. Ég hætti að spila fót­bolta með FH árið 2000. Þegar ég lít til baka og ber saman stöðu knatt­spyrnu- og íþrótta­mála hér á landi þá og nú er ljóst að fram­farir hafa átt sér stað á ákveðnum sviðum. Líklega eru íþrótta­menn­irnir okkar heilt yfir betri tækni­lega og í betra lík­am­legu formi, þjálf­ar­arnir eru með betri menntun og fær­ari í sínu starfi og aðstaða til að iðka og keppa í íþróttum, sér­stak­lega knatt­spyrnu, er betri. Ennþá hallar þó á nokkrar íþrótta­greinar, til dæmis frjáls­í­þróttir, varð­andi aðstöðu­málin.

Þurfum að gera meiri kröfur til stjórnenda

En þá komum við að stjórn­end­unum í íþrótta­starf­inu. Þar hefur ríkt, að mér finnst, ákveðin stöðnun í langan tíma á sama tíma og umfangið í íþrótta­starf­semi hefur auk­ist veru­lega og starfs­um­hverfið breyst mikið. Þá á ég við að við verðum að gera meiri kröfur til stjórn­enda um að þeir hafi fag­lega þekk­ingu og hæfni til að stýra íþrótta­starfi. Ég tel og hef bent á að þetta sé mik­ill veik­leiki í íþrótta­hreyf­ing­unni almennt hér á landi og að mínu mati kom þessi vöntun á sér­þekk­ingu a.m.k. að ein­hverju leyti fram hjá stjórn­endum í KSÍ mál­inu.

Eftir að hafa starfað í fjár­mála­geir­anum hér­lendis í um 20 ár, ákvað ég að hefja meist­ara­nám í íþrótta-stjórnun (e. sports mana­gement) við Real Madrid Graduate School-Uni­versi­dad Europea. Mig lang­aði að sækja mér sér­fræði­þekk­ingu í stjórnun á íþrótta­sviði í gegnum nám sem væri í hæsta gæða­flokki og nota síðan þá þekk­ingu til að koma með nýjar hug­myndir og vinnu­brögð inn í íslenskt íþrótta­líf.

Fljót­lega eftir að ég byrj­aði í meist­ara­nám­inu varð mér ljóst hversu langt á eftir við erum hér heima varð­andi stjórn­enda­þátt­inn í íþrótta­starf­semi. Menn verða að horfast í augu við þá stað­reynd að umsvif og umhverfi íþrótt­anna hefur breyst svo mikið á síð­ustu árum að það kallar á aukna sér­þekk­ingu. Því þurfum við að fá fleira fag­fólk í stjórn­enda­stöður á sviði iþrótt­anna, sér­stak­lega í þær stöður sem krefj­ast mik­illar sér­hæf­ingar.

Hvað læra nem­endur í íþrótta­stjórnun?

Nemendur í meist­ara­námi í íþrótta­stjórnun byrja á að læra allt það sama og kennt er í hefð­bundnu EMBA stjórn­enda- og við­skipta­námi, s.s. um fjár­mál, mark­aðs­fræði, mannauðs­mál, mann­virki, sam­skipti, stjórnun, og margt fleira; það er grunn­ur­inn, en síðan læra þeir sér­stak­lega um flestallt sem við­kemur þessum málum og stjórnun almennt í íþrótta­starfi. Það er svo margt sem er öðru­vísi í íþrótt­unum en í heimi við­skipt­anna. Þegar nem­endur útskrif­ast skilja þeir vel eðli og starfs­um­hverfi íþrótt­anna og eru því vel und­ir­búnir fyrir leið­toga- og stjórn­un­ar­stöður á þeim vett­vangi. Ég get bætt því við að í nám­inu mínu var meðal ann­ars fjallað um áreitni, ein­elti, and­legt og lík­am­legt ofbeldi og aðra óæski­lega hegðun í íþrótta­tengdri starf­semi.

 Hvernig er þessum málum háttað í öðrum löndum?

Ég þekki ágæt­lega til þess­ara mála erlendis því ég er virkur með­limur í nokkrum leið­andi íþróttafag-sam­tökum á heims­vísu. Í mörgum löndum Evrópu og í Banda­ríkj­unum er oft gerð sú krafa til lyk­il­stjórn­enda í íþrótta­starf­semi að þeir hafi lokið háskóla­námi í íþrótta­stjórnun, helst á meist­ara­stigi. Til að mynda er talið æski­legt að íþrótta­stjórar (e. athletic directors) við banda­ríska háskóla, sem stýra íþrótta­starfi skól­anna, hafi meistara­gráðu í íþrótta­stjórnun. Utan land­steina Íslands er ein­fald­lega lögð rík­ari áhersla á að íþrótta­stjórn­endur búi yfir sér­fræði­þekk­ingu á því sviði.

Að lokum, hvað viltu sjá ger­ast í fram­hald­inu hjá KSÍ?

Ég vil nú alls ekki tala eins og ég hafi öll svörin á hreinu, því fer fjarri. En ég held að það væri gott að menn hafi a.m.k. nokkur atriði í huga. Í fyrsta lagi þarf að útkljá með ein­hverjum hætti þessi útistand­andi mál þannig að mögu­lega náist meiri sátt milli þolenda og ger­enda. Hluti af því hlýtur að vera að fleiri ger­endur axli ábyrgð og við­ur­kenni mis­tök sín. Það verður að setja málin í réttan far­veg svo starfs­menn sam­bands­ins geti ein­beitt sér að þeirri miklu vinnu sem er framundan.

Í annan stað og þessu tengt er að það verður að gefa starfs­fólk­inu, þ.m.t. lands­liðs­þjálf­ur­unum, frið til að geta sinnt að fullu vinnu sinni. Hlúa þarf vel að öllum starfs­mönnum sam­bands­ins og ráða inn fleiri starfs­krafta telji menn þörf á því, sér­stak­lega fólk með menntun og/eða fag­lega þekk­ingu sem nýt­ist vel á sviði íþrótta.

Þriðja atriðið sem ég vil nefna er að breyta ásýnd eða yfir­bragði sam­bands­ins til hins betra. Að menn skynji að vinnu­stað­ur­inn sé ferskur og lif­andi, ein­kenn­ist af góðum starfsanda og þar sem starfs­menn aðlaga sig fljótt og fum­laust að breyt­ingum í sam­fé­lag­inu, fylgj­ast vel með því sem er að ger­ast erlendis og eru snöggir að inn­leiða nýjar hug­myndir, bestu vinnu­brögð og tækninýj­ungar.

Er KSÍ stofnun, og ef svo er, er sú stofnun orðin stein­geld?

KSÍ hefur haft þann stimpil á sér, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, að vera stofnun. Menn tala gjarnan um KSÍ “batt­er­íið.” Að þar gangi hlut­irnir hægt fyrir sig, og svo fram­vegis. Hvort sem það er rétt eða rangt, hefur maður heyrt að þetta sé upp­lifun fólks af sam­skiptum sínum við sam­bandið og sú ímynd af sam­band­inu sem greipt er í huga margra.

Í lokin vil ég segja að þetta er ekki í fyrsta skipti sem svona stór áföll skella með þunga á íþrótta-sam­bandi eða íþrótta­ein­ingu og senni­lega ekki það síð­asta. Krísum fylgja líka tæki­færi og ég held að KSÍ sé núna í kjör­stöðu til að stokka spilin upp á nýtt. Það mun taka sinn tíma fyrir sam­bandið að end­ur­heimta traust og trú­verð­ug­leika, en með því að vinna vel í sínum málum næstu miss­eri getur knatt­spyrnu­sam­bandið síðar verið stolt af starf­inu og mögu­lega verið öðrum gott for­dæmi.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi