Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Skilmálar velflestra lána eru ólöglegir“

„Skilmálar velflestra lána eru ólöglegir“
Mynd/skjá­skot Rúv

Enn er hægt að skrá sig til þátt­töku í mála­ferlum Neyt­enda­sam­tak­anna á hendur stóru bönk­unum þremur, Arion­banka, Íslands­banka og Lands­banka. Samtökin ætla sér að fara í mál vegna meints ólög­mætis breyti­legra lána­vaxta, eins og til­kynnt var um í vor. Til þess að taka þátt þurfa neyt­endur að hafa tekið lán með breyti­legum vöxtum.

Á heima­síðu Neyt­enda­sam­tak­anna segir að neyt­endur sem tekið hafi lán með breyti­legum vöxtum geti átt rétt á end­ur­greiðslu, ef þeir taki þátt.

Þar segir um málið:

„Skil­málar vel­flestra lána eru ólög­legir að mati Neyt­enda­sam­tak­anna, þar sem ákvarð­anir um vaxta­breyt­ingar eru veru­lega mats­kenndar og ógegn­sæjar og þess vegna ekki hægt að sann­reyna hvort þær séu rétt­mætar. Neyt­enda­sam­tökin ætla að stefna bönk­unum og leita að lán­tökum sem vilja fara með mál sín fyrir dóm.

Jafn­framt eru lán­takar hvattir til þess að bregð­ast fljótt við og verja rétt sinn og fjár­kröfur.“

Neyt­enda­sam­tökin höfðu áður krafið bank­ana um lag­fær­ingu skil­mála sinna og leið­rétt­ingu á hlut þeirra lán­taka sem hallað hafði verið á. Bank­arnir höfn­uðu hins­vegar kröfum Neyt­enda­sam­tak­anna og því fór málið í þennan far­veg.

Á heima­síðu sam­tak­anna segir enn­fremur:

„Neyt­enda­sam­tökin munu fara með a.m.k. þrjú mál fyrir dóm, til að fá nið­ur­stöðu og for­dæmi fyrir önnur lán með breyti­legum vöxtum. Bönkunum verður stefnt til ógild­ingar skil­mál­anna og end­ur­greiðslu ofgreiddra vaxta til fjölda ára. Ef málin vinn­ast gæti end­ur­greiðsla hlaupið á mörg hund­ruð þús­undum króna fyrir hvert lán, jafn­vel millj­ónum. Með þátt­töku tryggir þú eins og frekast er unnt að þú glatir ekki rétti þínum. En bara ef þú bregst við og gerir kröfu á lána­stofnun þína.“

Með hækk­andi stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands hafa bankar síð­ustu miss­eri haf­ist handa við að hækka sína eigin vexti. Eins og gefur að skilja kemur þetta sér­stak­lega illa niður á fólki með óverð­tryggð fast­eigna­lán. Greiðslu­byrði þeirra gæti hækkað um tugi þús­unda á ári.

Þannig hækk­aði Arion­banki bæði inn­láns- og útláns­vexti sína í byrjun mán­aðar, en Lands­bank­inn hafði hækkað sína vexti tveimur dögum fyrr. Óverð­tryggðir breyti­legir íbúða­lána­vextir hjá Arion­banka hækk­uðu um 0,2 pró­sentu­stig og óverð­tryggðir fastir þriggja ára íbúða­lána­vextir hækk­uðu um 0,14 pró­sentu­stig.

Í til­kynn­ingu Arion­banka í upp­hafi mán­aðar sagði:

„Vaxta­breyt­ingar útlána taka mið af fjár­mögn­un­ar­kostn­aði bank­ans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlána­á­hættu. Fjár­mögn­un­ar­kostn­aður bank­ans fylgir að hluta til stýri­vöxtum Seðla­bank­ans en einnig hafa aðrar fjár­mögn­un­ar­leiðir umtals­verð áhrif, svo sem inn­lán við­skipta­vina, mark­aðs­fjár­mögnun, erlend skulda­bréfa­út­gáfa og eig­in­fjár­gern­ingar.“

Ákvarð­anir um vaxta­hækk­anir á lánum með breyti­legum vöxtum eru því, eins og Neyt­enda­sam­tökin hafa bent á, veru­lega mats­kenndar. Gagnsæi í ákvarð­ana­töku bank­anna er afar lítið.

Á heima­síðu Neyt­enda­sam­tak­anna segir:

„Neyt­enda­sam­tökin ætla að stefna bönk­unum og leita að lán­tökum sem vilja fara með mál sín fyrir dóm án end­ur­gjalds. Jafn­framt eru lán­takar hvattir til að bregð­ast við og verja rétt sinn og fjár­kröfur.“

Á heima­síðu Neyt­enda­sam­tak­anna má lesa meira um hvað málið snýst og sækja um að taka þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi