Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alvarlegar aukaverkanir vinsællar snyrtivöru – „Ég sjálf hef aldrei notað svona“

Alvarlegar aukaverkanir vinsællar snyrtivöru – „Ég sjálf hef aldrei notað svona“
Mynd/skjá­skot Mbl

Síðustu ár hafa vin­sældir svo­kall­aðra augn­hára­seruma vaxið tölu­vert. Augn­hára­serum eru snyrti­vörur í vökva­formi sem bornar eru á með­fram augn­hára­lín­unni. Þau eiga að vera þeim kostum gædd að geta lengt bæði og þykkt stutt og strjál augn­hár.

Ekki virð­ist um neina snáka­olíu vera að ræða. Ýmsar teg­undir sýna gríð­ar­legan árangur og hafa vin­sældir þeirra auk­ist í kjöl­farið.

Vörurnar virka þannig að þær lengja nátt­úru­legan vaxt­ar­tíma augn­hár­anna, sem gerir það að verkum að þau falla mun seinna og verða þar með tölu­vert lengri en áður.

Fyrsta augn­hára­serumið sem var þessum kostum gætt og bjó sann­ar­lega yfir mæl­an­legri virkni var serumið Latisse. Latisse var búið til í Banda­ríkj­unum eftir að fyr­ir­tækið sem fram­leiddi það, Allergan, komst að því að ein auka­verkun augn­dropa sem það fram­leiddi við gláku (Lumigan) var auk­inn vöxtur og lengd augn­hára sjúk­ling­anna sem not­uðu dropana.

Fyr­ir­tækið tók því til við fram­leiðslu augn­hára­serums­ins Latisse, sem inni­hélt sama virka efni og gláku­drop­arnir. Þar sem Latisse var fram­leitt sem lyf þurfti Allergan að fá það sam­þykkt af Lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna (FDA). Þegar það var í höfn bar fyr­ir­tæk­inu skylda til þess að taka fram allar mögu­legar auka­verk­anir af serum­inu eftir umtals­verðar próf­anir, eins og á við um öll lyf.

Virka efnið í Latisse er eft­ir­lík­ing af horm­ón­inu prostaglandín. Eft­ir­taldar auka­verk­anir geta komið fram við notkun á Latisse og koma til vegna virka efn­iss­ins:

Rauð augu, augn­þurrkur (sem svo getur leitt til frek­ari vanda­mála), pirr­ingur í augum, bólga í horn­himnu, lita­breyt­ingar á augn­s­væð­inu, aukn­ing á brúnu lit­ar­efni í lit­himnu aug­ans, auk­inn hár­vöxtur í kringum augun (ef efnið berst reglu­lega í húð­ina umhverfis augn­s­væðið).

Í kjöl­far vin­sælda Latisse fóru snyrti­vöru­fram­leið­endur að þróa sín eigin augn­hára­serum. Þau hafa hins­vegar almennt verið fram­leidd ein­göngu sem snyrti­vörur og því ekki farið í gegnum próf­un­ar­ferli lyfja­stofn­ana.

Þegar vel er að gáð eru þessi augn­hára­serum þó með sams­konar virk inni­halds­efni og Latisse; prostagland­ín­líki.

Mörg þeirra eru seld hér á landi í hinum ýmsu versl­unum. Dæmi um nokkur þeirra merkja sem seld eru á Íslandi eru:

Grand­elash, Revitalash og iGlow.

Prostagland­ín­líki, virku efnin í vör­unum, eru skil­greind sem líf­fræði­lega virk efni; þau hafa efna­fræði­leg áhrif á lík­amann.

Önnur minna þekkt auka­verkun prostagland­ín­líkja á augn­s­væðið er breyt­ing fitu­mynd­unar í kringum augun. Fitu­frum­urnar geta minnkað, þannig að augun virð­ast sokkin. Ekki er þekkt hversu margir fá þessa auka­verkun, en hún virð­ist ekki vera algeng. Hún hefur sést við notkun á Latisse, en hefur líka verið rædd, en ekki form­lega stað­fest, af neyt­endum eftir notkun á öðrum augn­hára­serumum.

Í sam­tali við Mannlíf stað­festir Inga Ólafs­dóttir, lyfja­fræð­ingur hjá Lyfju, að allar þessar auka­verk­anir geti sann­ar­lega fylgt notkun augn­hára­seruma með prostagland­ín­líkjum.

„Ég sjálf hef aldrei notað svona augn­hára­serum og ætla ekk­ert að vera að því,“ segir Inga.

Inga tekur fram að flestar auka­verk­an­irnar geti gengið til baka, sé notkun vör­unnar hætt, en þær geri það þó ekki alltaf.

Hún segir að lita­breyt­ingar í lit­himnu aug­ans stafi af auk­inni fram­leiðslu á melan­íni, sem geti fylgt prostagland­ín­líkjum, en melanín er lit­ar­efni húðar, hárs og augna okkar.

„Ég hef verið spurð hvort það sé snið­ugt að nota þetta til að fá brúnni augu,“ segir Inga, en þegar hún er spurð hvert svar hennar hafi verið seg­ist hún ekki hafa mælt sér­stak­lega með því. Það væru jú aðrar slæmar auka­verk­anir sem gætu fylgt með.

Samkvæmt heim­ildum blaða­manns er ekki um að ræða heillitun á aug­anu. Lita­breyt­ing­arnar geta birst á ólíkan hátt hjá fólki, til dæmis í formi brúnna flekkja á lit­himn­unni. Inga tekur undir þetta.

Inga tekur fram að alvar­leg­ustu auka­verk­an­irnar séu sjald­gæfar. Hún segir einnig að þrátt fyrir að auka­verk­an­irnar geti sann­ar­lega komið fram, sé magnið af virka efn­inu í umræddum augn­hára­serumum frekar lítið. Serumið sé líka ekki borið inn í augun, heldur með­fram efri augn­hára­lín­unni.

Ef efnið er notað rétt, á það því ekki að ber­ast inn í augun í miklum mæli. Það er hins­vegar engin leið að tryggja það og eins og gefur að skilja er alltaf lík­legt að eitt­hvað endi inni í aug­unum af vörum sem not­aðar eru svo nálægt þeim. Auk þess hafa margar þess­ara auka­verk­ana áhrif á svæðið í kringum augun, eins og áður sagði.

Inga er sam­mála því að þrátt fyrir að auka­verk­an­irnar séu sjald­gæfar, sé þetta eitt­hvað sem neyt­endur þurfi að fá upp­lýs­ingar um.

Hjá þeim fjöl­mörgu versl­unum sem selja ofan­talin augn­hára­serum á Íslandi, er hvergi minnst á þau alvar­legu áhrif sem vör­urnar geta haft.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi