Mynd sem er líklega fölsuð fer eins og eldur í sínu um veraldarvefinn. Myndin er af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur senda Stefáni Einari Stefánssyni puttann – en Þorgerður var gestur hans og Andrésar Magnússonar í nýjasta kosningaþætti Dagmála á vef Morgunblaðsins.

Margir hafa velt fyrir sér hvort myndin sé fölsuð eður ei, þar á meðal bæjarstjóri Ölfus, Elliði Vignisson, sem segir:
„Það hefur greinilega verið fjör í þessum þætti.“
Sjálfur kóngurinn, Bubbi Morthens, blandar sér í umræðuna og fer ekki leynt með aðdáun sína á Þorgerði Katrínu:
„Verð að segja, hún er töffari dauðans og ef þetta er ófölsuð mynd þá gleðst ég því Stefán er sannarlega verðugur puttans.“





















Athugasemdir