Ágúst Jóhannsson, fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta, minnist vinar síns, Stefáns Karlssonar sem lést fyrr á árinu. Stefán hefði orðið 42 ára í dag.

Ágúst segir á Facebook síðu sinni að Stefán væri frábært vinur. „Magnaður maður í alla staði og hvergi veikan blett að finna.“ Þá bætir hann við að tilhugsunin um að hitta Stefán aldrei aftur sé hrikaleg. „Stórkostleg minning lifir og það um okkar besta mann!“segir Ágúst að lokum. Af viðbrögðunum að dæma var Stefán gríðarlega vinsæll en alls hafa þegar þetta er ritað, 309 manns lýst yfir ánægju sinni við fallegu orðin.
Sjá einnig: Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir
Stefán var framkvæmdastjóri Vals í tvö ár og stjórnarmaður í handknattleiksdeild félagsins. Valur minntist Stefáns á heimasíðu hans eftir
andlát
hans, á heimasíðu sinni. Er Stefáni þar lýst sem afar vönduðum manni, góðhjörtuðum og ráðagóðum. Stefán var einnig mikill leiðtogi og tók hann á móti öllum glaðbeittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.





















Athugasemdir