Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólafur: „Af hverju er Diljá Mist ekki notuð í baráttunni og hvar eru Kristján Þór og Áslaug Arna?“

Ólafur: „Af hverju er Diljá Mist ekki notuð í baráttunni og hvar eru Kristján Þór og Áslaug Arna?“
Ólafur Arnarson vill að gerð verði ítar­leg úttekt á verkum frá­far­andi ríikis­stjórnar.

Ólafur Arnarson skrifar athygl­is­verðan pistil um kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Hring­braut, og þar kemur meðal ann­ars þetta fram:

„Athygli vekur að margir helstu fram­bjóð­endur og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa varla sést í kosn­inga­bar­átt­unni sem senn tekur enda. Flokk­ur­inn hefur valið að sýna for­mann­inn skæl­bros­andi í nán­ast öllum aug­lýs­ingum. Vara­for­mað­ur­inn hefur einnig fengið að koma eitt­hvað fram en lítið hefur farið fyrir öðrum fram­bjóð­endum. Bjarni Bene­dikts­son er sjálfur í öllum við­tölum sem bjóð­ast en öðrum fram­bjóð­endum er ekki treyst fyrir að koma fram á vegum flokks­ins.“

Og bætir þessu við:

„Sjón­varps­stöðin Hring­braut bauð þó Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, odd­vita flokks­ins í Reykja­vík, í líf­legar kapp­ræður við Gunnar Smára Egilsson. Þar sýndi Guð­laugur Þór að honum er fylli­lega treystandi til að koma fram fyrir hönd flokks­ins og hafa í fullu tré við hvern sem er í kapp­ræðum. Sama sjón­varps­stöð bauð tveimur þing­mönnum flokks­ins í þátt um stjórn­mál nú í vik­unni. Það var það fyrsta sem sést hefur til Óla Björns Kára­sonar og Brynjars Níels­sonar í kosn­inga­bar­átt­unni en þeir eru báðir í bar­áttu­sætum fyrir flokk­inn.“

Ólafur bendir á að „ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þau Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Kristján Þór Júl­í­us­son, virð­ast hafa verið í felum í aðdrag­anda kosn­inga. Kemur það á óvart. Þótt Kristján Þór sé að hætta í stjórn­málum hefði verið full­kom­lega eðli­legt að hann kæmi fram og gerði grein fyrir störfum sínum sem ráð­herra, tíund­aði póli­tísk afrek sín og svar­aði fyrir marg­hátt­aða gagn­rýni sem hann hefur mátt sæta. En svo er sem jörðin hafi gleypt hann, Áslaugu Örnu og reyndar ýmsa aðra fram­bjóð­endur flokks­ins. Hver er skýr­ingin?“ spyr Ólafur.

„Guðrún Haf­steins­dóttir, glæsi­legur fram­bjóð­andi flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, hefur lítið komið fram í fjöl­miðlum og sama má segja um Diljá Mist Ein­ars­dóttur, sem var einn helsti sig­ur­veg­ar­inn í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík. Hvers vegna ætli hún sé ekki notuð meira í kosn­inga­bar­átt­unni? Er það vegna þess hve öfga­full hún er í afstöðu til ýmissa mála – eða er það vegna þess að hún fellur ekki í kramið hjá flokks­eig­enda­fé­lag­inu sem tap­aði í próf­kjör­inu í Reykja­vík fyrir Guðlaugi Þór og henni?“

Hann heldur því fram að „með því að tefla nær ein­vörð­ungu fram for­mann­inum tekur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þá áhættu að kjós­endur rifji í auknum mæli upp vafa­sama for­tíð hans í fjár­málum Eng­eyj­ar­fjöl­skyld­unnar, þegar 200 millj­arðar á núver­andi verð­lagi töp­uð­ust í ýmsum fjár­fest­ingum, skúffu­fé­lögum og snún­ingum hér á landi og í skatta­skjólum. Kunnuleg nöfn klingja þá hugs­an­lega ein­hverjum bjöllum eins og Vafn­ingur, Máttur, Þáttur, Sáttur, Falson og fleiri.

Þetta gíf­ur­lega tap lenti að miklu leyti á líf­eyr­is­sjóðum lands­manna sem eru í eigu þjóð­ar­innar – þeirrar sömu þjóðar og nú gengur að kjör­borð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi