Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sonja: „Einkavæðing leiðir til hárrar hlutdeildar hagnaðardrifinna fyrirtækja og verri þjónustu“

Sonja: „Einkavæðing leiðir til hárrar hlutdeildar hagnaðardrifinna fyrirtækja og verri þjónustu“

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir að „nú þegar öllum ætti að vera ljóst mik­il­vægi þess að byggja upp öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi eftir ára­tuga nið­ur­skurð dynur á heil­brigð­is­starfs­fólki umræða um þjón­ustu­væð­ingu, nið­ur­skurð, stjórn­leysi og skort á skil­virkni.“

Og bætir við:

„Á þessu sama starfs­fólki og staðið hefur vakt­ina í heims­far­aldr­inum síð­ustu átján mán­uð­ina og sýnt ótrú­lega seiglu og fag­mennsku þrátt fyrir á köflum ótrú­legt álag.

Við búum í mark­aðs­hag­kerfi en það nor­ræna módel sem við höfum byggt sam­fé­lag okkar á grund­vall­ast á opin­berri almanna­þjón­ustu. Við getum verið sam­taka í því að leyfa mark­að­inum að sinna þeim þörfum þar sem fólk hefur raun­veru­legt val en mark­aðs­öflin eru alls ekki vel til þess fallin að sinna grund­vall­ar­þörfum fólks og tryggja and­legt og lík­am­legt heil­brigði. Þar hefur fólk ekki raun­veru­legt val eða þekk­ingu til að velja á milli ólíkra kosta og það á eng­inn að græða á neyð fólks.“

Hún nefnir að „það hefur verið mikil umræða um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­þjón­ust­unni und­an­farin ár. En hvers vegna ætli eig­endur fyr­ir­tækja sem rekin eru í hagn­að­ar­skyni séu svona áhuga­samir um að auka hlut­deild sína í heil­brigð­is­þjón­ust­unni?

Tveir erlendir sér­fræð­ingar sem fjallað hafa um þetta nýverið gætu hafa komið með svarið við því. Í vor flutti Marta Szebehely, pró­fessor emeritus í félags­ráð­gjöf við Stokk­hólms­há­skóla, erindi á fundi ASÍ og BSRB og fór yfir umfangs­miklar rann­sóknir sínar á áhrifum einka­væð­ingar öldr­un­ar­þjón­ust­unnar í Svíþjóð. Sú þróun hefur leitt til hárrar hlut­deildar hagn­að­ar­drif­inna fyr­ir­tækja og erlendra fjár­festa og afleið­ingin er verri þjón­usta til tekju­lægra eldra fólks og verri kjör starfs­fólks.“

Nefnir einnig að „á mál­þingi BSRB og ASÍ um heil­brigð­is­mál í síð­ustu viku tal­aði Vivek Kotecha, end­ur­skoð­andi sem hefur rann­sakað einka­rekstur í breska heil­brigð­is­kerf­inu, og sýndi með skýrum hætti að mark­mið eig­enda hagn­að­ar­drif­inna fyr­ir­tækja í heil­brigð­is­þjón­ustu er ekki þjón­ustu­væð­ing heldur auk­inn hagn­aður til eig­enda. Hagnaður sem gjarnan er byggður á skuld­setn­ingu og verri kjörum starfs­fólks. Hagnaður sem endar oft í skatta­skjólum.“

Sonja spyr:

„Er þetta það sem við viljum? Að örfáir ein­stak­lingar, inn­lendir eða erlendir fjár­festar, græði á því að þjón­usta fólk sem þarf með­höndlun vegna sjúk­dóma eða slysa, eða á fólki sem þarf á þjón­ustu að halda á eldri árum? Viljum við nota skattfé lands­manna í að greiða arð í fyr­ir­tækjum sem sinna þess­ari þjón­ustu? Eða höfum við mögu­lega eitt­hvað betra við skatt­pen­ing­ana að gera?“

Hún segir að fjöldi kann­ana sýni að almenn­ingur vill að heil­brigð­is­þjón­ustan sé fjár­mögnuð af opin­beru fé og rekin af opin­berum aðilum:

„Þetta á við um meiri­hluta kjós­enda allra flokka. Það er því ljóst að það er rof á milli vilja kjós­enda og stefnu flestra stjórn­mála­flokka þegar kemur að heil­brigð­is­málum.

Áherslur stjórn­mál­anna ein­kenn­ast af frösum en minna er fjallað um hvaða áhrif breyt­ing­arnar kunni að hafa á styrk og sam­hæf­ing­ar­kraft heil­brigð­is­kerf­is­ins, þjón­ustu við mis­mun­andi hópa sjúk­linga eftir búsetu, eftir tekjum og eftir teg­und sjúk­dóma. Og eng­inn hefur talað um áhrif á starfs­fólk í þessu sam­hengi. Starfs­fólk sem hér hefur staðið vakt­ina í eitt og hálft ár til að tryggja að við sem sam­fé­lag komumst heil í gegnum þennan heims­far­aldur.“

Sonja færir í tal að „þau sem kepp­ast nú um atkvæði okkar skulda almenn­ingi raun­veru­leg svör um hvernig þau ætla að skipu­leggja þjón­ust­una.
Einka­rekstur og útvistun til­tek­inna verk­efna heil­brigð­is­þjón­ust­unnar er ekki töfra­lausn. Stjórn­un­ar­kostn­aður eykst, eft­ir­lit er flókið og kostn­að­ar­samt og arð­sem­is­krafa leiðir til hærri kostn­aðar. Þessi hækkun er á end­anum greidd úr sam­eig­in­legum sjóðum okkar eða eykur kostnað fyrir ein­stak­linga.

Þegar umræðan er öll á yfir­borð­inu er hætta á að stjórn­mála­menn taki ákvarð­anir án þess að fyrir liggi grein­ing á áhrifum þess­ara ákvarð­ana á heil­brigð­is­kerfið til langs tíma. Við megum ekki falla í þá gildru að taka ákvarð­anir með skamm­tíma­hags­muni í huga heldur þarf að marka stefnu til lengri tíma þar sem meðal ann­ars er lagt mat á kostnað, áhrif á not­endur þjón­ust­unnar og á starfs­fólkið sem sinnir henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi