Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Friðrik telur dansinn lækna allt: „Þurfti að vinna mig tvisvar í gegnum kynferðisofbeldi“

Friðrik telur dansinn lækna allt: „Þurfti að vinna mig tvisvar í gegnum kynferðisofbeldi“
Ljós­mynd­ari: Saga Sig

„Eitt sem kemur skemmti­lega á óvart er að upp­götva það að dans­inn læknar allt. Hann bætir lík­amann, sam­hæf­ing­una og GEÐIÐ. Þú getur ekki verið þung­lyndur og dansað á sama tíma. Í alla­vega einn klukku­tíma, á meðan þú dansar, þá gleym­ist öll van­líðan af því að þú dansar yfir hana. Breytir rign­ing­unni í sól þó að ekki sé nema bara rétt á meðan dans­inn dunar.“

„Það eru mörg lög í einni mann­veru,“ segir Friðrik Agni sem seg­ist vera draum­óra­maður með mjög mik­inn metnað gagn­vart líf­inu og sjálfum sér.

„Það bítur mig stundum í afturendann en virkar samt líka þannig að ég framkvæmi mjög mikið.“

Friðrik seg­ist elska að dansa, ferð­ast, skemmta og vera með fólki; auka lífs­gleð­ina hjá sér sjálfum og fólki í kringum sig.

„Ég hef alltaf verið að fást við marga hluti til hliðar við 100% starf þannig að núna var kom­inn tími til að fást ein­ungis við mín eigin, skap­andi verk­efni.“

Í dag er Friðrik að kenna Zumba, Jalla­bina (arab­ískt dans­fit­ness) og Partý Workout á nokkrum mis­mun­andi stöðum í Reykja­vík: World Class, Dans­verk­stæð­inu og Kram­hús­inu. Auk þess kennir hann dans í Álfta­mýr­ar­skóla. Friðrik seg­ist „gigga“ oft og koma fram á við­burðum eða við ákveðin til­efni, m.a. sem veislu­stjóri en svo kom hann líka fram með gesta­at­riði á Burlesque-sýn­ingu hjá Búkalú síð­ustu helgi og flutti erindi í Hörpu á Mannauðs­deg­inum.

Fyrir utan dans og skemmtun þá er Friðrik nýfar­inn af stað með nýjan hlað­varps­þátt með

Ljós­mynd­ari: Einar Magn­ús­son

vini sínum Sig­ur­steini Mássyni þar sem þeir fjalla um geð­rænar áskor­anir. Þátt­ur­inn ber það skemmti­lega nafn GEÐSLAGIÐ og var fyrsta þætt­inum varpað úr hlaði í síð­ustu viku.

„Ég hlakka til að fylgja hlaðvarpinu eftir og næ vonandi að tengja við hlustendur og skapa uppbyggilegan vettvang þar sem fólk kryfur geðheilsu sína.“

Stolt­astur af því að vera hann sjálfur
Friðrik seg­ist ann­ars vera stolt­astur af því að þora að vera hann sjálfur.

„Ég finn það, eftir því sem ég eld­ist, hvað það er mik­il­vægt og nauð­syn­legt að vera stoltur af sjálfum sér, bara fyrir að gera og þora. Við þurfum ekki endi­lega að vera sig­ur­veg­arar í keppni eða vera með milljón fylgj­endur á sam­fé­lags­miðlum. Ég held að við þurfum að lækka aðeins „stand­ar­dinn“ og fagna litlum per­sónu­legum sigrum; sjá að við getum verið stolt, t.d. bara af því að þora að segja nei við verk­efnum ef þau henta okkur illa; verið stolt af því að vakna aðeins fyrr, stolt af því að hafa sagt „ég elska þig“ við maka eða ást­vin. Verum stolt af öllu því sem okkur finnst stundum erfitt að gera, því ber að fagna og vera stolt af þegar loks­ins við tæklum það.“

Hann seg­ist hins vegar ekki alltaf ná því að vera stoltur af öllu sem hann gerir eða standi fyrir. „En ef ég ætti að nefna nokkra svona „efn­is­lega“ hluti, eða eitt­hvað sem teng­ist verk­efnum þá get ég sagt að ég er stoltur af því að hafa gefið út ljóða­bók í fyrra. Ég er líka stoltur af því að hafa dúxað í masters­námi þótt ég hafi ekki klárað stúd­ents­próf, sem dæmi.“

Hann segir að allt teng­ist því að þora og að hann sé mest stoltur af því.

Ljós­mynd­ari: Einar Magn­ús­son

„Annars gæti ég aldrei fundið stolt ef ég myndi ekki þora neinu.“

Að auka lífs­gleð­ina hjá sér sjálfum og fólki í kringum sig. Það er Friðrik í hnot­skurn. Hann seg­ist ann­ars vegar vera mikil svona „hálsa­kot­stýpa“ og líður einna best undir sæng í hálsa­kot­inu á mann­inum sínum.

Kemur alltaf skemmti­lega á óvart
Í sumar hætti Friðrik í fastri vinnu hjá Lista­há­tíð í Reykja­vík og stofn­aði sinn eigin rekstur. Hann seg­ist alltaf vera að reka sig á eitt­hvað. Stundum kemur það honum skemmti­lega á óvart, en annað leið­in­lega, t.d. þegar hann upp­götvar eigin fáfræði eða for­dóma og skamm­ast sín fyrir að vera ekki kom­inn jafn langt og hann hélt.

„Það kemur alltaf skemmti­lega á óvart hvað það er ótrú­lega margt sem við getum lært og bætt hjá okkur sjálfum og sem sam­fé­lag. Það kemur mér samt stundum leið­in­lega á óvart hvert við erum að stefna sem menn­ing­ar­sam­fé­lag.“

Friðrik kveðst fyll­ast van­mætti við að vera á sam­fé­lags­miðlum, en á sama tíma vera virkur þátt­tak­andi á miðl­unum. „Hræsnin upp­máluð!“ segir hann. Starfs­vett­vangur hans krefst þess að hann taki þátt á sam­fé­lags­miðlum, nýti sig sjálfan sem eins konar mark­aðs­vöru til þess að kynna allt það sem hann er að bralla.

„Ef ég myndi ekki gera það þá væri ég ekki að gera neitt.“

Allt þetta tal um áhrifa­valda finnst honum vera komið út fyrir það sem orðið merkir raun­veru­lega og finnst áhuga­vert að pæla í því hvert við erum að stefna.

 Notkun orðs­ins stuðar mig
„Að mínu mati eru áhrifa­valdar frekar sölu­full­trúar eða sér­fræð­ingar í mark­aðs­setn­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Falleg módel t.d. sem selja vörur á net­inu með sam­starfi við ýmis fyr­ir­tæki. Svo hefur það auð­vitað áhrif á söl­una – og það er lík­leg­ast ástæðan fyrir við­ur­nefn­inu áhrifa­valdur. En mér finnst íslenska orðið svo sterkt; sé fyrir mér ein­hvern á borð við Vigdísi Finn­boga­dóttur – en að setja unga konu, hálf­bera að selja brúnku­krem á Instagram setta undir sömu regn­hlíf? Veit ekki alveg hvað mér finnst um það. Án þess að eitt­hvað sé að hinu síð­ar­nefnda, mér finnst það bara vera annað dæmi. Það er kannski bara notkun orðs­ins sem stuðar mig.“

Lífið er fullt af erf­ið­leikum, áskor­unum og áföllum, það fer eng­inn í gegnum lífið áfalla­laust. Friðrik segir að erf­ið­asta tíma­bilið sitt hafi verið á ung­lings­ár­unum.

„Ég þurfti að vinna mig í gegnum kyn­ferð­is­of­beldi, tvisvar sinnum á fáeinum árum og afleið­ingum þess. Ég get svarað því núna, þar sem ég hef opnað mig opin­ber­lega í þætt­inum Geðslagið. En ég hef aldrei talað um það opin­ber­lega og ekki fundið sér­staka „þörf“ fyrir það. Kannski hef ég ekki þorað því af ótta við að verða dæmdur. Það er greini­legt að skömmin er ein­hvern veg­inn kúr­andi undir allri sjálfs­vinn­unni sem maður hefur unnið sig í gegnum, und­an­farin 15 ár eða svo.“

Hann fór til sál­fræð­ings og nær­inga­fræð­ings sem ung­lingur. Það hjálp­aði honum mjög mikið en það var samt líka honum sjálfum að þakka, að hann ákvað að hann skyldi lifa en ekki gef­ast upp.

„Það er undir mér komið að standa við þá ákvörðun og vinna vinn­una. Það kannski sökkar að þurfa að leggja alla þessa vinnu á sig, en hei! Ég er á lífi þrátt fyrir að hafa lent í þessu og á mér alls kyns drauma sem eng­inn óþokki fær að taka af mér.“

Hann glímir enn við afleiðingar áfallsins og segist sennilega munu gera það út allt lífið.  Hann kveðst þurfa að tækla mikið sjálfshatur, kvíða og óöryggi.

„Ég held að ég verði bara að taka einn dag í einu. Þetta er stöðug vinna, að halda geð­inu í lagi ef maður hefur upp­lifað erf­iða hluti, sem við gerum öll á ein­hverjum tíma­punkti, bara með ólíkum hætti.“

Friðrik seg­ist eiga auð­veld­ara með að fyr­ir­gefa ger­endum sínum en sjálfum sér. Það var ekki fyrr en á síð­asta ári að hann átt­aði sig á að hann væri ennþá upp­fullur af sjálfs­hatri og skömm gagn­vart sjálfum sér, sem risti djúpt í honum. Í gegnum tíð­ina hefur hann verið svo dóm­harður og vondur við sjálfan sig í hug­anum. Í fyrra upp­lifði hann augna­blik sem hann var búinn að bíða eftir lengi og það var sjálfs­fyr­ir­gefn­ing. Frá því augna­bliki finnst honum sem hann hafi „frels­ast“ og eiga auð­veld­ara með að glíma við sjálfan sig og aðstæður.

„Ég er búinn að fyr­ir­gefa litla Frikk­anum inni í mér sem vissi ekki betur en að dæma sig og vera með nið­ur­rif. Þetta er það mik­il­væg­asta sem ég hef gert í sjálfs­vinn­unni minni. Það er þessi and­lega hreinsun sem fylgir fyr­ir­gefn­ing­unni … og við tækluðum einmitt fyr­ir­gefn­ing­una í einum þætti af Geðslag­inu.

Helstu áskor­an­irnar eru þær sem ég set fyrir sjálfan mig,“ segir Friðrik og bætir við að það sé eng­inn annar sem skemmir neitt fyrir sér nema maður sjálfur. „Þess vegna er svo mik­il­vægt að reyna tækla hvern dag og safna góðum dögum. Að taka góðar ákvarð­anir sem byggja á kær­leika en ekki ótta, það er mesta áskor­unin að mínu mati — og í mínu lífi er það að passa að ég verði ekki minn helsti óvinur.“

Eft­ir­minni­legt og dýr­mætt
Friðrik hefur búið á fjöl­mörgum stöðum og flutt á milli ólíkra landa. Hann segir að það sé  ein­stak­lega lær­dóms­ríkt en fyrir utan Ísland þá hefur hann búið í Dúbaí, Ástralíu, Svíþjóð og á Ítalíu,

„Svona litlar minn­ingar eins og að vinna í stórum danskeppnum, gift­ing­ar­dag­ur­inn, sitja í garði í París og heyra tón­list í fjarska. Þessi litlu augna­blik eru svo dýr­mæt. Ég man t.d. eftir morg­un­sól úti á túni í Ung­verja­landi í fyrra því ég var svo 100% í núinu þegar ég var staddur þar og það augna­blik get ég fram­kallað hvenær sem ég vil. Það er eft­ir­minni­legt og dýr­mætt.“

Það sem stendur upp úr getur komið á óvart því lífið felst svo mikið í litlu augna­blik­unum sem fara of oft fram­hjá okkur. Friðrik hefur gert  margt stórt og jafn­vel aðdá­un­ar­vert en það eru EKKI verk­efni og metn­aður sem skiptir mestu máli.

„Á endanum erum við öll bara mennsk. Það sem situr eftir eru þessi augnablik þar sem við finnum tengingu við náttúruna og annað fólk.“

Alls kyns spenn­andi verk­efni eru á döf­inni hjá Friðriki Agna sem tengj­ast menn­ingu, vellíðan og ferða­lögum, m.a. að halda utan um dans­hópa og taka gigg hér og þar. En nýju hlað­varps­þætt­irnir hans með Sig­ur­steini eiga hins vegar hug hans allan um þessar mundir.

Friðrik von­ast til að fólk eigi eftir að hlusta á Geðslagið og tengja við það en umfram allt vonar hann að flestir átti sig á hversu mik­il­vægt það er að hugsa um heils­una sína í heild­rænum skiln­ingi. Án þess að hann vilji hljóma eins og ein­hver predik­ari eða ein­hver sér­fræð­ingur sem hann seg­ist alls ekki  vera.

„Það skiptir ekki máli hvernig við lítum út eða hversu mörgum verk­efnum við náum að fylgja eftir. Það sem skiptir máli er að spyrja sig hvort við séum gott fólk og hvort við séum heil­brigð? Það er fyrir mér það mik­il­væg­asta af öllu. Það sem ég man alltaf eftir og ég vitna oft í er setn­ing úr mynd­inni ALFIE, af öllum myndum. Þar segir aðal­per­sónan í lok mynd­ar­innar að þú getir haft allt … en hafir þú ekki hug­arró,  hvað hef­urðu þá í raun veru?“

Friðrik tók þessi orð til sín sem ung­lingur. Hvernig öðl­ast ég hug­arró? Hvað hann varðar felst það í að huga vel að sjálfum sér lík­am­lega og sál­ar­lega. Og beita sömu hug­ul­semi gagn­vart öllu í kringum sig. „Þá held ég að maður geti lifað án eft­ir­sjár, án ótta og án sam­visku­bits.“

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ