Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alda Lóa eiginkona Gunnars Smára: „Ég er að bugast“

Alda Lóa eiginkona Gunnars Smára: „Ég er að bugast“
Myndin er af þeim feðginum, Smára og Sóley, tekin á ferða­lagi okkar fyrir nokkrum árum. Ljósmynd / Alda Lóa.

„Nokkur orð frá eig­in­konu,“ segir Alda Lóa Leifs­dóttir sem er eig­in­kona for­manns Sós­í­alista­flokks­ins, Gunnars Smára Egils­sonar:

„Það er fátt hall­æris­legra en eig­in­kona stjórn­mála­manns og ég kýs mér ekki það hlut­verk. Ætlaði ekki að blanda mér á neinn hátt í kosn­inga­bar­átt­una hans Smára. Ég er auð­vitað í Sós­í­alista­flokknum og styð mál­efnið heils­hugar, ætla að skila rauðu eins og annað fólk með gott hjarta­lag, en ég vil ekki vera á svið­inu. Mér finnst athygli ekki góð, kann best við mig með vinum mínum og fólk­inu sem ég elska.!

Alda Lóa segir að Gunnar Smári sé „öðru­vísi. Hans ver­öld er stór, svo stór að hann getur alltaf komið mér á óvart. Og ver­andi úr svona stórri ver­öld þá getur hann gefið mörgum von, blásið bar­áttu­anda í heilu her­ina, málað upp mark­mið sem fjöldi fólks heill­ast af og hjálpar honum svo við að ná. Hann hefur oft gert þetta. Þegar hann byggði upp Frétta­blaðið, þegar hann bjarg­aði fjár­hags­stöðu SÁÁ, þegar hann breytti Frétta­tím­anum í mál­gagn þeirra sem minna mega sín og þegar hann ákvað einn dag­inn að stofna Sós­í­alista­flokk Íslands. Hann gerði þetta auð­vitað ekki einn, en hann er eld­ur­inn sem kveikir upp bar­átt­una.“

Hún færir í tal að það sé „ævin­týra­legt að hafa fylgt þessum manni í meira en kvar­töld, eng­inn dagur er eins, ný ævin­týri taka alltaf við og allt hefur svo mikla merk­ingu. Þess vegna elska ég Smára. Hann er stór.“

En það er aldrei svo að það sé ljós en eng­inn skuggi, og á það bendir Alda Lóa:

„Þessu hafa fylgt skuggar. Alla þessa öld hefur skuggi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og skrímsla­deildar hans legið yfir heim­ili okkar. Þegar Smári var á Frétta­blað­inu og felldi Moggann var hann útmál­aður sem hættu­legur maður. Þegar hann var á SÁÁ var grafið undan hans góða starfi. Þegar hann var á Frétta­tím­anum var legið í þeim sem komu með honum að blað­inu um að snúa við honum baki. Þegar hann studdi fram­boð Sól­veigar Önnu í Eflingu var hann sak­aður um að ætla að ræna sjóðum stétta­fé­lags­ins. Og þegar Sanna bauð sig fram til borg­ar­stjórnar var hún spurð hvernig hún gæti verið í sama flokki og svona vondur maður. Smári þarf ekki einu sinni að vera í fram­boði til að kosn­ingar snú­ist um hann.“

Hún bætir við að „í þess­ari kosn­inga­bar­áttu hefur skrímsla­deildin elt Smára uppi, reynt að gera karakter hans vafa­saman, reynt að halda því fram að hann ætli sér allt annað en hann segir og meini allt annað en það sem hann leggur fram.

Ástæðan er auð­vitað að þau ótt­ast hann. Þau eru fá sem þola álíka árásir ára­tugum saman og halda áfram að berj­ast.“

Alda Lóa segir að hún sjálf hafi oft verið við það að „bug­ast. Það er ekki gaman að búa á heim­ili sem er undir linnu­lausum árásum valda­mesta fólks lands­ins. Stundum skil ég ekki hvers vegna það læð­ist að mér skömm yfir þessu ástandi, eins og við berum ábyrgð á því en ekki ofbeld­is­fólkið sem kemst upp með að ráð­ast á og reynir að buga allt fólk sem rís upp gegn valdi þess. Stundum er ég við það að missa trú á sam­fé­lag­inu. Og ég er þar núna, þar sem ég skrifa þetta. Kannski mun ofbeld­is­fólkið alltaf vinna. Kannski er von okkar hinna ekki nógu sterk.

Smári er hins vegar inn í stofu að ræða við fólk í flokknum um hvernig við klárum kosn­inga­bar­átt­una og Sóley dóttir okkar inni í sínu her­bergi að æfa fiðlu­konsert nr. 9 eftir Beriot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi