Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Undarlegt ástarsamband íslensku þjóðarinnar við skákmeistarann: „Þetta er bara Bobby“

Undarlegt ástarsamband íslensku þjóðarinnar við skákmeistarann: „Þetta er bara Bobby“

Bobby Fischer, var banda­rískur stór­meist­ari í skák og fyrr­ver­andi heims­meist­ari í skák undir merkjum FIDE, sem síðar hlaut íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Hann gjörsigr­aði FIDE heims­meist­ar­ann Boris Spasskíj í Einvígi ald­ar­innar í Reykja­vík 1. sept­em­ber 1972 og varð þar með fyrsti Banda­ríkja­mað­ur­inn til að vera krýndur heims­meist­ari í skák.

Heims­meist­ara­tit­ill­inn rann honum hins vegar úr greipum 3. apríl 1975, þegar hann neit­aði að verja tit­il­inn gegn áskor­and­anum Anatoly Karpov.

Bobby Fisher var þekktur sem einn iðn­asti og hæfi­leik­a­rík­asti skák­maður sög­unnar, en einnig fyrir óút­reikn­an­lega hegðun sína og öfga­fullar stjórn­mála­skoð­anir, lit­aðar af gyð­inga­hatri og fyr­ir­litn­ingu á Banda­ríkj­unum. Þrátt fyrir langa fjar­veru frá skák­k­eppnum var hann enn meðal þekkt­ustu skák­manna ver­aldar.

Árið 2002 kom í ljós að skák­meist­ar­inn Bobby Fischer hafði verið rang­feðr­aður og talan 64 reynd­ist und­ar­leg örlaga­tala í öllu lífi hans.

Einvígi allra tíma
Guð­mundur G. Þór­ar­ins­son þáver­andi for­seti Skák­sam­bands­ins gaf út bók­ina Einvígi allra tíma, en það ein­vígið var talið hafa komið Íslandi á kortið.

Í bók­inni opin­ber­aði Guð­mundur margt und­ar­legt úr lífi Fischers sem ekki hefur verið á almanna vit­orði áður.

Þar kom meðal ann­ars fram að Fischer hafi verið rang­feðr­aður og að öllum lík­indum verið sonur ung­versks stærð­fræð­ings, Paul Felix Nemenyi, en ekki sonur Hans Gerhardt Fischers, þess sem móðir Fischers, Regina Wender, var gift og skráður var faðir hans.

Skjöl FBI
Það var þó ekki fyrr en árið 2002 sem efa­semdir vökn­uðu um fað­ernið þegar leyni­skýrslur banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar FBI, sem njósn­aði um móður Fischers, voru opn­aðar.

Í skjöl­unum mátti sjá að nær úti­lokað var að Hans Gerhardt Fischer væri fað­ir­inn enda var hann búsettur í öðru landi á þessum tíma og skil­inn að skiptum við eig­in­kon­una, sem átti í ást­ar­sam­bandi við ung­verska stærð­fræð­ing­inn.

Í bók­inni Einvígi allra tíma er einnig vakin athygli á því hvernig talan 64 markar örlög Fischers.

Þannig megi lesa töl­una 64 úr und­ir­skrift hans, þegar tveir síð­ustu stafirnir eru skoð­aðir í nafn­inu Bobby.

„Þetta er auð­vitað mjög merki­legt. Fischer deyr 64 ára gam­all, en hann helg­aði lífi sínu 64 reitum á skák­borð­inu.

Hann verður heims­meist­ari á 64 breidd­argráðu. Hann deyr á 64 breidd­argráðu. Hann er jarð­aður á 64 breidd­argráðu.“

Óskilj­an­legt ást­fóstur Íslend­inga við Bobby
Annars hafa mál­efni og ferða­lag Bobbys Fischers til Íslands verið umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla um allan heim í gegnum tíð­ina og það virð­ist sama hvar borið er niður, það þykir nán­ast óskilj­an­legt að Íslend­ingar hafi tekið ást­fóstri við þennan und­ar­lega, umdeilda og yfir­lýs­ingaglaða aldna skák­meist­ara sem bæði er þekktur fyrir gyð­inga­hatur og ákaft hatur á föð­ur­landi sínu, Banda­ríkj­unum.

Nið­ur­staða fjöl­miðla er gjarnan á einn veg: CNN-frétta­stofan og banda­ríska dag­blaðið Washington Post segja Íslend­inga hrein­lega vera skák­óða þjóð og Los Angeles Times útskýrir að skák sé svo mik­il­væg hér­lendis þar sem hún hafi verið Íslend­ingum til hugg­unar og skemmt­unar á löngum, köldum vetr­ar­n­óttum.

Í við­tali við bresku frétta­stof­una BBC útskýrir Gunnar Snorri Gunn­ars­son, þáver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, að Íslend­ingar finni fyrir sam­stöðu með Fishcer ekki vegna skoð­ana hans heldur vegna þess að þessi skák­snill­ingur sé í vanda staddur.

Páll Stef­áns­son, ljós­mynd­ari hjá Iceland Review, útskýrir að Fischer sé Beckham Íslend­inga og Íslend­ingar séu þrjósk þjóð sem hafi engar áhyggjur af því hvað Banda­ríkja­stjórn finn­ist um okkar fram­gang í þessu máli.

LA Times greinir þessa ráð­gátu í tvennt: Í fyrsta lagi séu Íslend­ingar þakk­látir Fischer fyrir að hafa komið Íslandi í umræð­una og á heimskortið þegar hann tefldi hér við Spasský. Og í öðru lagi þá séu Íslend­ingar óvenju­lega umburð­ar­lyndir þegar kemur að sér­vitr­ings­hætt­inum í Fischer: þeir yppa öxlum og segja: „Þetta er bara Bobby.“

Bobby bjó í Reykja­vík til ævi­loka og lést eftir bar­áttu við alvar­leg nýrna­veik­indi. Fischer dvald­ist á sjúkra­húsi í Reykja­vík í októ­ber og nóv­em­ber 2007, en síðan á heim­ili sínu. Síðustu orð hans, sam­kvæmt Magnúsi Skúla­syni, sem sat hjá honum þeger hann lést voru: „Ekkert linar þján­ingar eins og mann­leg snert­ing.“

Fischer var jarð­settur í kyrr­þey að eigin ósk í kirkju­garði Laug­ar­dæla í Flóa þann 21. jan­úar 2008. 5. júlí 2010 var lík Fischers grafið upp til að ná í líf­sýni, sem notað var í erfða­máli, sem aðstand­endur Fil­ippseysku stúlkunnar Jinky Ong höfð­uðu. DNA-próf sýndi að Fischer var ekki faðir stúlkunnar.

Þann 8. apríl 2011 féll dómur Hæsta­réttar, sem dæmdi Myoko Watai eina erf­ingja Fischers.

Heim­ildir:
Guð­mundur G. Þór­ar­ins­son (2020). Einvígi allra tíma. Reykja­vík. Ísland
Vísir.is
Wikipedia.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi