Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Marínó segir að maðkur sé í mysunni: ,,Á stórundarlegan hátt fóru atkvæði að færast á milli flokka“

Marínó segir að maðkur sé í mysunni: ,,Á stórundarlegan hátt fóru atkvæði að færast á milli flokka“

,,Það er gott að for­maður yfir­kjör­stjórnar í NV-kjör­dæmi sé svona öruggur um að eng­inn hafi kom­ist inn í geymsl­una,“ segir Marínó G. Njálsson um kosn­inga­klúðrið sem nú skekur íslenskt sam­fé­lag, og bætir við:,,En hvernig ætlar hann þá að skýra það út, að 12 atkvæða­seðlar sem voru auðir í fyrstu taln­ingu, voru allt í einu ekki auðir í end­ur­taln­ing­unni? Varla förl­að­ist taln­ing­ar­mönnum svo svaka­lega, að mistelja um heil 12 atkvæði í 394 atkvæða bunka. Hvað þá að ógildum fjölg­aði um tæp 50%. Nei, slíkt ger­ist ekki hjá reyndu taln­ing­ar­fólki.“Heldur áfram:,,Mér finnst að kjós­endur í kosn­ing­unum eigi heimt­ingu á því að for­mað­ur­inn útskýri, hvernig taln­ing­ar­fólki gat förl­ast svona hrika­lega, að 69 atkvæði reynd­ust rangt talin og að atkvæðum hafi fjölgað um 2. Maður hefði haldið að taln­ing­ar­skýrslur hefðu átt að stemma, þannig að fjöldi atkvæða á hvern flokk og í það heila væri sá sem kom fram í frum­taln­ingu.69 atkvæði eru kannski ekki mörg atkvæði í það heila, en þetta er minnsta kjör­dæmið. Hafi sam­bæri­leg skekkja orðið í öðrum kjör­dæmum, þýðir það að í SV-kjör­dæmi gæti munað yfir 300 atkvæðum, 210 í hvoru af Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, 140 í NA-kjör­dæmi og 180 í Suð­ur­kjör­dæmi. Það gerir um 1.100 atkvæði á lands­vísu.“Marínó spyr hvort að við ,,eigum að trúa því, að lands­kjör­stjórn láti bara gott heita, að ígildi 1.100 atkvæða á lands­vísu, fær­ist á milli flokka, hætti að vera auð, verði allt í einu ógild eða bara bæt­ist við fjölda greiddra atkvæða?En það er meira: Taln­ingin var ekki í sam­ræmi við lög og því átti hún ekki að byrja fyrr en ákvæði laga voru upp­fyllt. Talning atkvæða í alþing­is­kosn­ingum er ekki einka­mál­efni for­manns yfir­kjör­stjórnar. Það eitt á að verða til þess að nið­ur­stöðu hennar ber að hafna,“ segir Marínó og gefur enn meira í:,,Loks er það rús­ínan í pylsu­end­anum og hún er eig­in­lega þess virði að henda út end­ur­taln­ing­unni: Það er alveg stór­kost­leg til­viljun að atkvæðum Við­reisnar fækkað nægi­lega mikið til þess að jöfn­un­ar­manna­hringekjan fór af stað. Samkvæmt frum­taln­ingu var Viðreisn með 1072 atkvæði af 17248 gildum atkvæðum eða með 6,2152% fylgi í kjör­dæm­inu.Svo hringekja færi af stað þurfti fylgi Við­reisnar að fara niður fylgi flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sem var við frum­taln­ingu 6,2094%. Til þess að það gerð­ist varð annað af tvennu að ger­ast: a) gildum atkvæðum að fjölga í kjör­dæm­inu um a.m.k. 32 án þess að neitt þeirra rynni til Við­reisnar; b) atkvæðum greiddum Viðreisn að fækka um a.m.k. 2, en fjöldi gildra atkvæða í kjör­dæm­inu héld­ist óbreyttur. Og svo sam­bland af þessu tvennu. Við þetta fyrra myndi fylgi Við­reisnar lækka í 6,2043% og væri komið undir fylgið í Suð­ur­kjör­dæmi. Það lítur hins vegar illa út að allt í einu dúkki upp 32 atkvæði, þannig að þá var það leið b) ásamt því að tvö atkvæði fund­ust, eins og dreg­inn upp úr hatti töfra­manns­ins.“Hann nefnir einnig að ,,á stór­und­ar­legan hátt fóru atkvæði að fær­ast á milli flokka. Mestar voru hreyf­ing­arnar hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í atkvæðum talið, en það er hlut­falls­lega hreyf­ingin sem skiptir meira máli. Þær voru svona raðað eftir lista­bók­staf (Flokkur; Atkvæði; Breyting á atkvæðum; hlut­falls­leg breyt­ing):Framsókn; 4443; 5; 0,11%Viðreisn; -9; 1072; -0,84%Sjálf­stæð­is­flokkur; 3887; 10; 0,26%Flokkur fólks­ins; 1513; -3; -0,20%Sós­í­alista­flokkur; 721; 7; 0,97%Mið­flokkur; 1283; -5; -0,39%Frjálsl. lýð­ræð­isfl.; 72; 1; 1,39%Píratar; 1082; -1; 0,09%Sam­fylk­ing; 1196; -1; -0,08%VG; 1979; -1; -0,05%Ég verð bara að segja eins og er, að þetta hefði ekki getað gengið betur upp, þó þessi atburð­ar­rás hefði verið hönnuð af ein­hverjum sem gjör­þekkir kerfið. Viðreisn lendir í því, eins og töfra­sprota hafi verið veifað, að missa þrefalt meira fylgi en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eykst og um tífalt það fylgi sem flokkar með svipað atkvæða­magn missa. Ég átta mig á því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn fær meiri fylg­is­aukn­ingu en nemur fylgis­tapi Við­reisnar, en Sós­í­alista­flokk­ur­inn skiptir engu máli meðan hann fékk ekki kjör­dæmis­kjör­inn mann.Væri allt eðli­legt, ættu fylg­is­breyt­ingar Við­reisnar hefðu að vera í dúr við breyt­ing­arnar hjá Pírötum og Sam­fylk­ingu, enda allir flokk­arnir með svipað fylgi.“Marínó er mjög ósáttur og færir í tal að ,,því miður lyktar þessi ,,end­ur­taln­ing“ af algjöru rugli og holl­ast er fyrir alla að hún verði aft­ur­kölluð. Svona breyt­ingar, sem sjást í töfl­unni að ofan, eru ein­fald­lega ekki trú­verð­ugar, sér­stak­lega í ljósi þess hvernig staðið var að því að vernda atkvæði fyrir óleyfi­legum aðgangi og að kjör­kassar hafi verið hreyfðir, hvað þá opn­aðir, án þess að umboðs­menn ALLRA fram­boða hafi verið komnir á svæðið. Hver og einn getur dregið sína ályktun, en í mínum huga er þetta bull.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi