Meira en 40 jarðskjálftar hafa mælst í um 1 til 1,5 kílómetra fjarlægð frá Keili síðan á miðnætti, en í gær var voru þeir yfir hundrað jarðskjálftarnir Hrinan þessi hófst á laugardaginn og hefur farið vaxandi.Stærsti jarðskjálftinn hingað til var 3,0 að stærð rétt fyrir klukkan tvö í
nótt.
Jarðskjálftarnir eru á 5 til 7 kílómetra dýpi.
Samkvæmt Lovísu Mjöll Guðmundsdóttur náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, er ekki enn vitað hvort þetta séu flekahreyfingar eða kvikuhreyfingar,en ekki séu nú merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Jarðskjálftarnir eru nyrst í kvikuinnskotinu sem tengist eldgosinu í Fagradalsfjalli, rétt við Grindavík, og ekki ólíklegt að það sé tenging á milli, en það er þó ekki hægt að fullyrða um slíkt með vissu eins og staðan er núna, en eitthvað sé greinilega í gangi.





















Athugasemdir