Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rakel kaupir helst ekki húsgögn: „Lesstólinn í stofunni notaði langafi minn við miðilsstörf“

Rakel kaupir helst ekki húsgögn: „Lesstólinn í stofunni notaði langafi minn við miðilsstörf“
Mynd úr einka­safni

Rakel Garð­ars­dóttir er fram­leið­andi hjá leik­hópnum Vest­ur­port, aktí­visti og stofn­andi og fram­kvæmda­stýra sam­tak­anna Vakandi. Vakandi eru sam­tök sem vinna ötult að vit­unda­vakn­ingu um sóun mat­væla. Rakel er sömu­leiðis stofn­andi og eig­andi húð­vöru­merk­is­ins Verandi. Verandi fram­leiðir hágæða húð- og hár­vörur, en til fram­leiðsl­unnar end­ur­vinnur og end­ur­nýtir fyr­ir­tækið hrá­efni sem falla til við aðra fram­leiðslu, sem ann­ars yrði hent. Fyr­ir­tækið notar ein­ungis hrá­efni sem eru skað­laus umhverf­inu og lík­am­anum við fram­leiðslu vara sinna og leggur sitt á vog­ar­skál­arnar við að sporna gegn offram­leiðslu og sóun.

Rakel er Neytandi vik­unnar í helg­ar­blaði Mannlífs.

Hvar kaupir þú eða fjöl­skylda þín helst inn mat og rekstr­ar­vörur til heim­il­is­ins og hversu hár er sá kostn­aður að jafn­aði á mán­uði?

Við verslum til skiptis í þessum helstu versl­unum: Bónus, Nettó og Krónunni. Kjöt kaupum við alltaf í Kjöt­höll­inni og fisk­inn hjá Fúsa. Það er mis­mun­andi hverju við erum að eyða – en það er alltof mikið, þar sem mat­vöru­verð á Íslandi er fárán­lega hátt.

Hvaða aðferðum beitir þú til að nýta mat sem best?

Við reynum að kaupa inn bara það sem okkur vantar og það sem við ætlum að borða. Svo erum við dug­leg að nýta afganga, t.d dag­inn eftir í hádegs­mat eða í kvöld­mat. Ég elska súpur og þar er alveg full­komið að henda allskyns græn­meti sem er kannski farið að slapp­ast í þær. Svo frysti ég nán­ast allt og reyni að vera dug­leg að muna eftir því.

Hvert er þitt helsta sparn­að­ar­ráð?

Að reyna að forð­ast freist­ingar.

Er allt rusl flokkað heima hjá þér? Ef svo er, hvaða verk­lag hefur reynst þér eða fjöl­skyldu þinni best til að tryggja að allt rusl sé flokkað?

Já ég flokka allt – blöð, plast, gler, kerti og svo fram­vegis. Ég fer fram­hjá grennd­ar­gámi á hverjum degi og kippi með mér í hann því sem þangað á að skila. Í vinn­unni minni eru svo tunnur fyrir batt­erí og perur sem ég nota líka, dós­irnar fara í Skátana og það tau sem ekki fær fram­halds­líf hjá vinum og vanda­mönnum fer í Rauða kross­inn.

Hvaða hreinsi­efni eru notuð heima hjá þér?

Ég nota bara efni sem eru ekki skað­leg heilsu manna og umhverf­inu – vel þau mjög vand­lega og vel og reyni að nota sem allra minnst af þeim.

Kaupir þú helst ný eða notuð hús­gögn?

Það fer eftir hvað það er. Ég kaupi nú afar sjaldan hús­göng – en sófa og rúm hef ég keypt nýtt. Öðru er svona safnað héðan og þaðan. Borð­stofustól­arnir eru úr leik­mynd Vest­ur­ports, stofu­borðið var í geymslu hjá vinum okkar og við pússuðum það upp, les­stóll­inn í stof­unni er stóll sem langafi minn not­aði við mið­ils­störf og við létum bólstra upp á nýtt – þannig að þetta er svona allskyns bland.

Átt þú bíl? Hve miklu eyðir þú að jafn­aði í sam­göngur á mán­uði?

Við eigum svona bíl sem keyrir á raf­magni og bens­íni – þannig að dags­dag­lega erum við bara á raf­magn­inu en ef við förum lengri leiðir þá er það því miður bensín… dreymir um að fá mér Teslu sem er alfarið á raf­magni.

Leggur þú fyrir? Ef svo er, í hvaða formi er sparn­að­ur­inn?

Nei, ég legg ekki fyrir. Ætti lík­leg­ast að gera það.

Hvernig finnst þér verð­lag á Íslandi?

Það er fárán­lega dýrt – það er allt rosa­lega dýrt hér, sem er miður.

Ert þú með fast­eigna­lán? En önnur lán?

Já, er með fast­eigna­lán – engin önnur.

Hvaða breyt­ingu myndir þú vilja sjá sem neyt­andi?

Ég myndi vilja sjá mun lægra vöru­verð og mun meira af íslenskum mat­vælum. Svo finnst mér að það ættu að vera mun strang­ari reglur með merk­ingar á vörum sem eru skað­legar fyrir okkur og umhverfið – og helst bara ekki sjá þær vörur í íslenskum versl­unum.

Er eitt­hvað annað sem þú vilt koma á fram­færi að lokum?

Hvet alla til að vera með­vit­aðir neyt­endur og deila með okkur í Vakandi á feis­bók­inni hug­myndum og ráðum um það hvernig við getum nýtt mat­inn okkar betur og dregið úr sóun.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi