Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flóki hefur bjargað fjórum mannslífum: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hnoða lífi í einhvern“

Flóki hefur bjargað fjórum mannslífum: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hnoða lífi í einhvern“

Gunnar Flóki Sig­urðs­son hefur bjargað fjórum manns­lífum á sein­ustu tveimur mán­uðum, sem er meira en flestir gera á heilli ævi.

Flóki, eins og hann er yfir­leitt kall­aður, er búsettur í Lissabon á Portúgal, ásamt fjöl­skyldu sinni, þar sem hann starfar sem tuktuk bíl­stjóri. En Flóki keyrir með túrista og kynnir þá fyrir borg­inni.

Kominn tími til að prufa eitthvað nýtt

Það var í júlí 2019 sem Flóki flutti til Lissabon ásamt portú­gal­skri konu sinni og tveimur börnum þeirra. „Elsta stelpan mín býr enn á Íslandi og barna­barnið mitt, en það var kom­inn tími fyrir okkur hin að breyta aðeins til,“ segir Flóki í sam­tali við Mannlíf.
Þá höfðu þau hjónin búið saman á Íslandi í 13 ár og segir hann það hafi verið tíma­bært fyrir fjöl­skyld­una að prufa að búa saman í hinu heima­land­inu.

En hvernig vildi það til að hann gerðist tuktuk bílstjóri?

„Ég var bara að rölta niðri í bæ með kon­unni minni þegar við rák­umst á einn tuktuk bíl­stjóra sem ég fór að spjalla við. Ég spurði hann um starfið og launin og hann benti mér á fyr­ir­tækið sem hann vann fyrir.
Ég ákvað að slá til og sótti um, fékk við­tal og var í raun bara ráð­inn á staðnum.“ Þetta var í nóv­em­ber 2019.
Flóki seg­ist elska starfið sitt og víl­aði það ekki fyrir sér þó hann hafi ekk­ert þekkt borg­ina þegar hann flutti út.
„Ég þekkti borg­ina ekki neitt og þurfti að lesa mér til um hvað væri merki­legt og hvað ég gæti sýnt fólk­inu. Þetta var allt alveg glæ­nýtt fyrir mér,“ segir hann og heldur áfram.
„En þetta er æðis­legt starf, ég er úti að keyra um borg­ina, alltaf að hitta nýtt fólk og spjalla við nýtt fólk, þetta er bara geggjað.“

„Ég þekkti borg­ina ekki neitt og þurfti að lesa mér til um hvað væri merki­legt og hvað ég gæti sýnt fólk­inu.“

Réttur maður á réttum stað

Fyrir viku síðan má segja að Flóki hafi heldur betur verið réttur maður á réttum stað, þar sem ungur maður hné niður.

Flóki varð ekki vitni að atvik­inu, en tók eftir því, þar sem hann var úti að brasa í tuktuknum sínum, að allir í kringum hann voru að horfa í sömu átt.

„Ég lít upp til að vita á hvað fólkið í kring er að horfa og sé þá konu vera gera lífs­björg­un­ar­til­raun á ungum manni sem liggur með­vit­und­ar­laus á jörð­inni,“ segir Flóki.

Hann hljóp umsvifa­laust til kon­unnar og bauð fram aðstoð sína, sem hún þáði.

„Konan biður mig um að hnoða og hún sér um að blása.“ Flóki fer strax í að hnoða mann­inn, sem á þessum tíma­punkti var líf­vana.

„Það liðu um tíu til fimmtán mín­útur, frá því ég byrj­aði að hnoða mann­inn og þar til sjúkra­bíll mætir á svæðið og flytur hann í burtu.“
Hafði Flóka og kon­unni tek­ist að hnoða líf í mann­inn og var lífs­mark með honum þegar sjúkra­flutn­inga­menn­irnir tóku við.

Varð að fá að vita hvort væri í lagi með manninn

„Um hálf­tíma seinna fékk ég gíf­ur­legt adrena­lín­sjokk. Ég ætl­aði að reyna halda áfram að vinna, en sam­starfs­fé­lagi minn sá að ég var hrein­lega ekki í standi til þess eftir þetta og sagði bara „Flóki það er ekki allt í lagi með þig.“ Sem var rétt og ég fór bara heim og fékk huggun og stuðn­ing frá kon­unni minni.“

Segir Flóki mann­inn ekki hafa vikið úr huga sér og það hafi verið erfitt að fá ekki að vita hvort það væri í lagi með hann.

„Síðan bara tveimur dögum seinna fékk ég skila­boð frá vin­konu minni.“ Vinkonan sendi Flóka Instagram reikn­ing ungs manns sem hana grun­aði að væri mað­ur­inn sem Flóki bjarg­aði.

„En þetta er í fyrsta skipti sem ég hnoða lífi í ein­hvern. En ég kunni réttu hand­brögðin og vissi hvað ég átti að gera.“

„Og þetta var hann, þannig ég ákvað að senda honum skila­boð. Ég varð að athuga hvort það væri í lagi með hann, ég hugs­aði ekki um annað.“

Maðurinn svar­aði honum og þakk­aði honum kær­lega fyrir lífs­björg­un­ina og vill gjarnan fá að hitta Flóka.

„Hann vissi sjálfur ekk­ert hvað gerð­ist, en það kom í ljós að hann reynd­ist vera með und­ir­liggj­andi hjarta­sjúk­dóm, sem hann hafði ekki hug­mynd um. Hann gekkst undir aðgerð og er kom­inn með gangráð og er á bata­vegi.“

Flóki gerir ráð fyrir að hitta mann­inn sem hann bjarg­aði þegar mað­ur­inn hefur heilsu til.

Ótrúleg viðbrögð

Flóki við vinnu á sól­ríkum degi

„Þetta var væg­ast sagt mjög skrýtin upp­lifun. Það er liðin rúm vika síðan og ég er enn ekki búinn að ná mér eftir þetta. Þessi til­finn­ing er ennþá í mér að ég hafi náð að bjarga honum og að hann sé enn lif­andi,“ segir Flóki og auð­heyr­an­legt að þessa lífs­reynsla hefur haft mikil áhrif á hann.

„Við­brögðin sem ég hef fengið eftir þetta eru líka ótrú­leg.“

En Flóki seg­ist ítrekað hafa lent í því síð­ustu daga að öku­menn bíla sem keyri fram hjá honum berji á bring­una á sér og kalli til hans „respect.“

„Maður sem býr rétt hjá mér, sá mig fyrir utan á þriðju­dag­inn og kom bara út til þess að óska mér til ham­ingju með að hafa bjargað manns­lífi. Svo hef ég fengið fullt af skila­boðum, en vin­kona mín skrif­aði um atvikið á sam­eig­in­legt net­svæði tuktuk bíl­stjóra hér á svæð­inu.“

„Maður veit aldrei hvað gerist næst“

Þá segir Flóki að portú­gölsk kona hafi haft sam­band við sig og beðið hann um að taka þátt í kennslu á fyrstu hjálpar nám­skeiði fyrir tuktuk bíl­stjóra.

„Við erum út um allt og erum svo nálægt fólki. Maður veit aldrei hvað ger­ist næst,“ segir Flóki og segir því afar gott að kunna réttu hand­brögðin og við­brögðin ef ein­hver þurfi á aðstoð að halda.

Sjálfur starf­aði Flóki í Slökkvi­lið­inu á Íslandi í 10 ár, hann hefur einnig verið í Slysa­varna­skóla sjó­manna og fleira og hefur því mikla reynslu af end­ur­lífgun.

„En þetta er í fyrsta skipti sem ég hnoða lífi í ein­hvern. En ég kunni réttu hand­brögðin og vissi hvað ég átti að gera.“

Bjargaði þremur ungmennum frá drukknun

Í ágúst síð­ast­liðnum var Flóki líka réttur maður á réttum stað, þegar hann bjarg­aði þremur ung­mennum frá drukknun.

„Ég var með fjöl­skyld­unni minni á strönd­inni, þegar konan mín kallar á mig að hún haldi að það séu krakkar að drukkna. Ég rauk af stað og næ að drösla þessum krökkum upp úr sjónum.“

Segir Flóki krakk­ana hafa verið sirka 15 til 16 ára, en algengt sé að fólk í Portúgal sé ósynt.

„Þau voru bara að leika sér og höfðu farið aðeins of lang og kunnu ekki að synda.“

Skjót og góð við­brögð Flóka í báðum þessum til­vikum eru væg­ast sagt mögnuð og þeim lík­leg­ast að þakka að þetta fólk er á lífi í dag.
„Ég ætla ekki að standa og horfa á, vit­andi að ég gæti gert eitt­hvað, en gera það ekki. Það væri það versta,“ segir þessi magn­aði maður að lokum.

Hægt er að fylgj­ast með áhuga­verðu lífi Flóka á Snapchat, en hann heldur úti reikn­ingnum Flóki í Portugal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi