Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Villandi verð á vefsíðu Sports Direct: „Skil ekki hvernig þetta hreinlega er leyfilegt.“

Villandi verð á vefsíðu Sports Direct: „Skil ekki hvernig þetta hreinlega er leyfilegt.“

Vefsíða Sports Direct sýnir ekki rétt verð fyrir íslenskan markað, jafn­vel þó Ísland sé sér­stak­lega valið og hluti vef­síð­unnar á íslensku.

Meðal ann­ars er bent á þetta í Facebookhópnum „Vertu á verði – eft­ir­lit með verð­lagi“, en þess ber að geta að Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ er stofn­andi hóps­ins og hefur yfir­um­sjón með honum.

Það er kona að nafni Inga sem bendir á vill­andi þjón­ustu Sports Direct í færslu í hópnum.

Þar lýsir hún því hvernig dóttir hennar hafi fundið skó á vef­síðu Sports Direct sem hana lang­aði til að kaupa. Verðið á skónum var merkt í krónum á vef­síð­unni, en upp­gefið verð var ann­ars vegar 14.235 krónur og hins­vegar 21.158 krónur. Þegar mæðgurnar fóru í Sports Direct kom það hins­vegar í ljós að skórnir kost­uðu tæp­lega 36.000 krónur. Sá sem aðstoð­aði þær í versl­un­inni tjáði þeim að verðin sem þær hefðu séð á net­inu væru verðin í Bret­landi. Engu breytti að á síð­unni væru þau merkt í krónum.

„Síðan er is.sportsdirect þannig ég skil ekki hvernig þetta hrein­lega er leyfi­legt,“ segir Inga í færslu sinni.

Með færsl­unni fylgja myndir til sönn­unar. Þar er ekki hægt að sjá annað en nákvæm­lega það sem Inga lýsir, að skórnir séu sann­ar­lega á lægra verð­bil­inu, í íslenskum krónum. Undir hvorri teg­und af skóm eru merk­ing­arnar:

NIKE – Air Max 97 – Dömur Striga­skór. Undir lýs­ing­unni eru svo verðin í krónum: 14.235 kr og 21.158 kr.

Ekkert við lýs­ing­una gefur til kynna að um sé að ræða annað en íslensk verð sem eigi við verslun Sports Direct á Íslandi. Til að mynda má sjá orðin „stærð“, „litur“ og „stærð­ar­tafla“.

Þegar slegið er inn „Sports Direct Ísland“ í leit­ar­vél er síða undir lén­inu is.sportsdirect.com það fyrsta sem kemur upp. Þegar smellt er á hlekk­inn kemur sann­ar­lega upp síða sem virð­ist til­heyra íslenskum mark­aði. Þar má meðal ann­ars sjá val­mögu­leik­ana: „Herrar“, „Konur“, „Krakkar“, „Íþróttir“ og „Vöru­merki“. Neðst á síð­unni er hægt að velja Ísland sem markað og íslenskar krónur sem gjald­miðil.

„Þetta er samt rosa­lega loðið sér­stak­lega fyrir krakka þegar þú velur iceland þá kemur upp lindir og alles þannig það er mjög erfitt að sjá að þetta sé bresk síða,“ segir Inga í athuga­semd undir færsl­unni.

Aníta tekur upp hansk­ann fyrir Sports Direct í athuga­semd sinni:

„Breskur vefur, breskt verð. Getur pantað þaðan, það er fljótt að koma, en þarft að borga send­ingu og toll við komu. Þeir aug­lýstu fyrir nokkru síðan að þetta væri ekki þeirra síða og ekki hægt að sækja til þeirra það sem er pantað… Endar lík­lega í svip­uðu verði eða nálægt því…“

Inga bendir á enn eitt mis­ræmið á verðum versl­un­ar­innar:

„Svo ef þú ferð í bret­land ekki ísland á síð­unni ertu kom­inn með þriðja verðið á þessum blessuðu skóm 12þ þarna ef þú setur yfir í íslenskt.“

Fleiri eru óánægðir með þjón­ustu og verð­merk­ingar Sports Direct, eins og Jóhann:

„Var einu sinni að versla þarna með vini mínum og það var vit­laus verð­miði á bol sem hann ætl­aði að kaupa. Bolurinn var dýr­ari en þessi verð­miði sýndi en þeir vildu ekki taka ábyrgð á þessum mis­tökum, og hann þurfti að borga „rétta verðið“.“

„Ef þessi aug­lýs­ing er á ein­hverju auto-translate, en í raun á vegum þeirra í Englandi þá er lítið hægt að gera í því. Ef hún er búin til af íslenska fyr­ir­tæk­inu þá er hægt að gera eitt­hvað – en líkur eru ekki sterkar. Hins­vegar finnst mér þessi verð­munur ansi slá­andi, svona á milli landa,“ segir Hall­gerður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi