Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendar kanónur mæta á friðarráðstefnu Höfða

Erlendar kanónur mæta á friðarráðstefnu Höfða
Mynd/skjá­skot: Reyk­vík­ur­borg

Árleg frið­ar­ráð­stefna HÖFÐA Frið­ar­set­urs fer fram föstu­dag­inn 8. októ­ber næst­kom­andi í Veröld – Húsi Vigdísar í sam­starfi við utan­rík­is­ráðu­neytið, Stofnun Sæmundar fróða og Jafn­rétt­is­skól­ann (GRÓ GEST). Í ár er áherslan á mik­il­vægi trausts fyrir sjálf­bæran frið og frið­ar­menn­ingu.

HÖFÐI Frið­ar­setur er sam­starfs­verk­efni Reykja­vík­ur­borgar og Háskóla Íslands og er vett­vangur fyrir þver­fag­legt og alþjóð­legt sam­starf með áherslu á hlut­verk borga, smá­ríkja og almennra borg­ara í að stuðla að friði, frið­ar­menn­ingu og frið­ar­fræðslu.

Í ljósi sög­unnar þótti við hæfi að setrið fengi nafnið HÖFÐI og hefði því skírskotun til þess tíma er Ísland gegndi veiga­miklu hlut­verki í hugum margra sem hlut­laust ríki í deilum tveggja stór­velda.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa lýst því yfir að árið 2021 skuli vera alþjóð­legt ár trausts og friðar,

en krefj­andi tímar hafa verið vegna heims­far­ald­urs og mikið reynt á traust til alþjóða­sam­starfs.

Frið­ar­ráð­stefnan í ár sam­anstendur af fjórum mál­stofum sem snúa með ólíkum hætti að mik­il­vægi trausts fyrir sjálf­bæran frið og frið­ar­menn­ingu.

Meðal fyr­ir­les­ara á ráð­stefn­unni verða: Helen Clark, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands og var yfir­maður Þró­un­ar­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna á árunum 2009-2017,

Fawzia Koofi, fyrr­ver­andi afganskur stjórn­mála­maður og aktví­visti

Fawzia Koofi, fyrrum þing­kona á afganska þing­inu og bar­áttu­kona fyrir rétt­indum kvenna, Pakist­anska bar­áttu­konan Gulalai Ismail, stofn­andi sam­tak­anna Aware Girls, Hindou Oumarou Ibrahim, land­fræð­ingur og sér­fræð­ingur á sviði lofts­lags­mála og frum­byggja,Mexíkóski rit­höf­und­ur­inn Juan Pablo Villa­lobos, höf­undur bók­ar­innar Veislan í gren­inu og Sanam Naraghi-And­erl­ini, for­stöðu­kona Centre for Women, Peace and Security við LSE og stofn­andi og stjórn­ar­for­maður International Civil Society Action Network (ICAN).

Árangur alþjóð­legra stofn­ana byggir á að ríki og almenn­ingur treysti þeim

og líti á ógnir sam­tím­ans sem alþjóð­legar ógnir sem leysa þurfi í sam­ein­ingu. Hefur traust til alþjóða­sam­starfs dvínað? Ef svo er, hvernig getum við þá tek­ist á við stærstu áskor­anir og ógnir sam­tím­ans? Hvernig þróum við alþjóð­lega borg­ara­vit­und með almenn­ingi og virkjum almenna borg­ara til aðgerða?

Efla rann­sóknir á friðar- og örygg­is­málum
Hlutverk HÖFÐA Frið­ar­set­urs er að styrkja Reykja­vík sem borg friðar og vera til ráð­gjafar um hvernig borgin geti unnið að frið­ar­málum hér heima og að heiman. Stór þáttur í starf­semi set­urs­ins felst einnig í því að efla rann­sóknir á friðar- og örygg­is­málum, og byggja þannig upp fræði­grunn sem nýt­ist langt út fyrir fræða­sam­fé­lagið, en eitt af mark­miðum set­urs­ins er að koma á fót náms­braut í átaka- og frið­ar­fræðum við Háskóla Íslands.

HÖFÐI Frið­ar­setur starfar innan Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands en stofn­unin er þver­fræði­leg stofnun á sviði alþjóða­mála sem til­heyrir Félags­vís­inda­sviði og Hug­vís­inda­sviði við Háskóla Íslands. Önnur setur sem heyra undir stofn­un­ina eru Rann­sókna­setur um norð­ur­slóðir og Rann­sókna­setur um smá­ríki.

Stofn­unin stendur fyrir fjölda mál­þinga og fyr­ir­lestra inn­an­lands sem utan, gefur út fræði­rit og kennslu­bækur, tekur þátt í rann­sókna­störfum á sviði alþjóða­mála og rekur sum­ar­skóla undir hatti Rann­sókna­set­urs um smá­ríki ár hvert.

Sanam Naraghi-And­erl­ini

Sanam Naraghi-And­erl­ini, er ein þeirra sem flytur erindi á frið­ar­ráð­stefn­unni í ár.

Sanam er for­stöðu­kona Centre for Women, Peace and Security við London School of Economics and Political Science (LSE), stjórn­ar­for­maður International Civil Society Action Network (ICAN) og rit­höf­undur.

Sanam hefur 24 ára reynslu sem frið­ar­ráð­gjafi og málsvari kvenna í aðstæðum þar sem brot­ist hafa út átök og öfga­hyggja, fyrir hönd frjálsra félaga­sam­taka, rík­is­stjórna  og Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hún situr bæði í stýrinefnd um aðgerð­ar­á­ætlun Bret­lands hvað varðar konur, frið og öryggi og pall­borði sér­fræð­inga breska sam­veld­is­ins um aðgerðir gegn ofbeld­is­fullri öfga­hyggju.

Sanam hefur verið gríð­ar­lega öfl­ugur tals­maður þess að leggja áherslu á mál­efni kvenna í frið­ar­um­leit­unum og lagt áherslu á þetta mik­il­væga mál­efni með skrifum fræði­greina og pistla, með þátt­töku í fjöl­miðlaum­fjöllun og í störfum sínum innan alþjóða­stofn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi