Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

VERÐKÖNNUN – Augabrúnalyfting tröllríður snyrtivöruheiminum – 100 prósenta verðmunur

VERÐKÖNNUN – Augabrúnalyfting tröllríður snyrtivöruheiminum – 100 prósenta verðmunur

Það getur kostað þig 100 pró­sentum meira að versla auga­brúna­lyft­ingu hjá dýr­ustu snyrti­stof­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, miðað við þá ódýr­ustu. Í Graf­ar­vogi getur þú fengið með­ferð­ina á 7.000 krónur en dýrasta með­ferðin kostar tvö­falt meira, eða 14 þús­und krónur.

Ef við reiknum með því að ein­stak­lingur fari annan hvern mánuð í auga­brúna­lyft­ingu þá getur við­kom­andi sparað sér 42 þús­und á ári með því að versla við ódýr­ustu stof­una. Fyrir það getur við­kom­andi fengið sér til að mynda sjö litla rjóma­ísa í brauði með ídýfu í mán­uði eða 85 slíka á árinu.

Svo­kallað brow lamination eða brow lift hefur verið að ryðja sér til rúms und­an­farið í snyrti­vöru­heim­inum og virð­ist ekk­ert lát þar á.

Um er að ræða nokk­urs­konar permanent fyrir auga­brúnir, þó til­gang­ur­inn sé sann­ar­lega ekki að krulla brún­irnar, heldur móta þær og greiða á ákveð­inn hátt með svip­aðri tækni, svo þær hald­ist þannig. Sömu­leiðis er hægt að fara í sams­konar með­ferð á augn­hárum, svo­kallað lash lift.

Með­ferðin er nokkuð ný af nál­inni á Íslandi, en vin­sældir hennar hér á landi hafa auk­ist hratt í rúm­lega ár, eða þar um bil.

Þykkar og miklar auga­brúnir hafa verið í tísku síð­ustu ár og í kjöl­farið vakn­aði gam­alt förð­un­ar­trend af værum blundi: sápu­brúnir (e. soap brows). Það virkar nokkurn veg­inn eins og það hljómar: sápu­stykki er notað sem gel fyrir auga­brún­irnar og sápan greidd í með auga­brúna­bursta, til þess að móta brún­irnar og fá þær til að sýn­ast fyllri og meira… flöffí?

Brow lift, eða auga­brúna­lyft­ing eins og með­ferðin verður kölluð í þess­ari grein, er í raun með­ferð sem nær fram líku útliti og er svo vin­sælt að öðl­ast með sápu­stykk­inu, en virkar á svip­aðan hátt og permanent og end­ist því vikum saman – allt upp í sex vikur. Endingin er þó ein­stak­lings­bundin.

Í ljósi gríð­ar­legra vin­sælda auga­brúna­lyft­inga síð­ustu miss­eri, fór Mannlíf á stúf­ana og kann­aði hvernig tíu snyrti­stofur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verð­setja með­ferð­ina. Kannað var ann­ars vegar verð á auga­brúna­lyft­ingu einni og sér og hins­vegar verð á auga­brúna­lyft­ingu ásamt litun brún­anna og plokkun/vaxi.

Sumar af stof­unum buðu ein­ungis upp á annan þess­ara tveggja mögu­leika – auga­brúna­lyft­ingu eina og sér eða auga­brúna­lyft­ingu með litun og plokkun/vaxi.

Í ljós kom að snyrti­stofan Royal Beauty var með lægsta verðið á auga­brúna­lyft­ingu. Stofan, sem stað­sett er í Graf­ar­vogi, býður með­ferð­ina á 7.000 krónur.

Dýrasta stofan, þegar kemur að auga­brúna­lyft­ingu einni og sér, er Dek­ur­stofan (Hjá Sunnu), sem stað­sett er í Kringl­unni. Þess ber þó að geta að hún er mjög naum­lega dýr­ari en Laugar Spa, en Dek­ur­stofan verð­setur með­ferð­ina á 11.000 krónur, á meðan með­ferðin kostar 10.990 krónur hjá Laugar Spa.

Stof­urnar Dimmalimm, Paradís og Snyrti­stofan Fegurð bjóða ekki upp á auga­brúna­lyft­ingu eina og sér á verð­skrá sinni, heldur ein­ungis með litun og plokkun/vaxi inni­földu í verði.

Þegar kemur að besta verð­inu á auga­brúna­lyft­ingu ásamt litun og plokkun/vaxi er snyrti­stofan Paradís langódýr­ust, en stofan býður þennan pakka á 9.000 krónur. Þar sem Paradís er ekki með auga­brúna­lyft­ingu eina og sér í verð­skránni sinni, náði hún ekki á blað í þeim lið, þó reikna megi með að þar væri stofan annað hvort ódýr­ust eða í öðru sæti, ef verð­hlut­fallið væri svipað.

Dýrasta stofa þeirra tíu sem skoð­aðar voru, í þessum pakka, er aftur Dek­ur­stofan (Hjá Sunnu), með verð­miða upp á 14.000 krónur. Snyrti­stofan Fegurð og Snyrti­stofan Kopar eru þó litlu ódýr­ari, en sú fyrri býður með­ferð­ina á 13.500 krónur og sú seinni á 13.490 krónur.

Þær snyrti­stofur sem ekki eru með auga­brúna­lyft­ingu, litun og plokkun/vax í einum pakka í verð­skrá sinni eru Laugar Spa, Royal Beauty og Beauty Salon.

Þess ber að geta að verð­könn­unin segir ekk­ert um gæði með­ferð­anna. Einungis við­skipta­vinir þeirra stofa sem eru í verð­könn­un­inni geta vitnað um gæðin, þjón­ust­una og end­ingu með­ferð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi