Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn var eini fjöldamorðingi Íslands – Kynfærunum morðingjans hent í fang óléttrar konu

Björn var eini fjöldamorðingi Íslands – Kynfærunum morðingjans hent í fang óléttrar konu

Björn Pét­urs­son er eini fjöldamorð­ingi Íslands­sög­unnar svo vitað sé um. Hann var betur þekktur undir nafn­inum Axlar-Björn, kenndur við bæinn Öxl í grennd við Búðir á Snæ­fells­nesi. Grimmd hans var með ólík­indum. Heim­ildum ber ekki saman um fjölda fórn­ar­lamba en þau eru ýmist talin níu eða átján. Sumir töldu að þau hefðu jafn­vel verið mun fleiri en það.

Jón Árnason skrif­aði ítar­legan þátt um Axlar-Björn eftir frá­sögn séra Sveins Níels­sonar.

Axlar-Björn fædd­ist í kringum 1555, yngstur þriggja systk­ina. Sagt var að móðir hans hefði haft óslökkvandi löngun í manna­blóð á með­göng­unni. Þegar hún gat ekki falið þessa löngun lengur sagði hún Pétri manni sínum frá. Hann lét allt eftir konu sinni og dró blóð úr fæti til að slá á þorsta hennar.

Björn þótti snemma dulur og harð­lyndur og framdi hann ungur sitt fyrsta morð, 14 ára að aldri. Hann beitti exi við að myrða fjósam­ann að Knerri, þar sem hann var í vist, og dysjaði í flór. Þar kynnt­ist hann fóst­ur­bróður sínum, Guðmundi Ormssyni, synir Orms ríka, valda­mesta manns sveit­ar­innar. Urðu þeir miklir vinir. Á Knerri kynnt­ist hann einnig vinnu­konu sem hann síðar kvænt­ist. Heim­ildir eru ekki sam­hljóða en talið er að hún hafi heitið Steinunn eða Þórdís.

Björn byggði bú að Öxl ásamt konu sinni í boði Guð­mundar Orms­sonar. Þau lifðu góðu lífi á þeirra tíma mæli­kvarða en mörgum þótti aftur á móti nokkuð furð­ur­legt hve marga hesta Björn átti og fór sá grunur af stað ekki væri þeir allir heið­ar­lega fengnir. Brátt fór af stað pískur manna á meðal að Björn rændi fólk og myrti. Enginn þorði þó að fara lengra með málið þar vegna vin­fengis Björns við Guðmund.

Það reynd­ist rétt því Björn myrti ferða­menn og far­and­verka­menn sem áttu leið um land hans. Suma mun hann hafa myrt til að ræna, aðra til að fela ill­virki sín en menn höfðu það á orði að það væri stór­hættu­legt að gista á Öxl.  Virðist morð­heigð hans bæði hafa stjórn­ast af blóð­þorsta og fégræðgi. Hann los­aði sig við lík fórna­lamba með því að sökkva þeim í tjörn fyrir neðan túnið á Öxl. Aðrar heim­ildir segja að manna­bein hafi einnig fund­ist að Öxl, í fjósi og hey­garði. Björn mun hafa útskýrt það með að hann hefði fundið látið fólk en ekki nennt að koma lík­unum til kirkju. Fáir lögðu trú á þá skýr­ingu.

Í þætti Jóns Árna­sonar eru hrotta­legar lýs­ingar eins og þegar tveir vinnu­menn koma til morð­ingj­ans:

„En þegar þeir komu að Öxl og Björn sá, að þeir voru vel útbúnir, og höfðu væna hesta, bauð hann þeim með sér út í fjós. Þar var myrkt, en þó sér annar þeirra glampa á eitthvað í hendinni á Birni“

Að því kom að kona nokkur blá­fá­tæk, ásamt þremur börnum, sínum bað um gist­ingu að Öxl. Segir sagan að gömul kona hafi setið í bað­stof­unni ásamt móður og börnum og reynt að vara  þau við með að raula eft­ir­far­andi vísu:

Gisti eng­inn hjá Gunn­birni
sem klæðin hefur góð.
Ekur hann þeim í Ígul­tjörn.
Rennur blóð
eftir slóð
og dilla ég þér jóð.

Björn lokk­aði aftur á móti til sín börnin, eitt af öðru, og myrti. Móðirinn náði að sleppa úr klóm Björns og segja til hans.

Björn var tek­inn höndum ásamt konu sinni sem Björn hélt stað­fast­lega fram að hefði aðstoðað hann við morðin með því að bregða um fórn­ar­lömbin snæri eða rota þau með sleggju. Stundum hefði hún líka notað það úrræði að kyrkja þau með háls­klútnum sínum.

Björn og Steinunn/Þórdís voru dæmd til dauða. Mun Björn hafa verið festur niður og útlimir hans brotnir með sleggju. Hann var síðan afhöfð­aður, bút­aður niður og ein­stakir lík­ams­partar stjak­settir, meðal ann­ars höfuð hans. Kyn­fær­unum var hent í fang Stein­unnar/Þórdísar sem var látin fylgj­ast með aftöku bónda síns. Aftöku hennar var frestað þar sem hún var þunguð en ann­ars hefðu dagar hennar endað á sama veg og bónda hennar. Hún var síðar hýdd fyrir glæpi sína.

Ekki var glæpa­saga fjöl­skyld­unnar öll, því að sonur Björns, Sveinn „skotti“ land­hlaup­ari, var hengdur fyrir nauðg­un­ar­til­raun og Gísli „hrókur” sonur Sveins og barna­barn Axlar-Björns, var einnig hengdur og þá fyrir þjófnað.

Mun fjórt­ándi hver Íslend­ingur vera komin af ætt Axlar-Björns og geta lands­menn flett upp í Íslend­inga­bók til að sjá hvort þeir eigi rætur að rekja til eina fjöldamorð­ingja Íslands­sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi