Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sá sem er orð­inn 140 til 150 kg hefur alger­lega séð um það sjálfur að fitu­smána sig“

„Sá sem er orð­inn 140 til 150 kg hefur alger­lega séð um það sjálfur að fitu­smána sig“

„Sá vinur minn, sem orð­inn er 140 til 150 kg. á þyngd, hefur alger­lega séð um það sjálfur að fitu­smána sig. Á við engan annan en sjálfan sig að sakast og getur til einskis ann­ars leitað en fyrst og fremst til sjálfs sín að takast á við það vanda­mál sitt með árangri og með ann­ari hjálp, sem hinn fitu­smáði verður þó sjálfur og einn að bera sig eft­ir.“

Svo segir í pistli Sighvats Björg­vins­sonar, fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra með meiru, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær.

Í pistl­inum gagn­rýnir Sig­hvatur harð­lega umræðu um fitu­smánun og við­brögð við umfjöllun Kveiks um vax­andi offitu barna á Íslandi.

Eins og sjá má í til­vitn­un­inni hér að ofan vill Sig­hvatur meina að feitt fólk beri sjálft ábyrgð á fitu­smánun, en í dæm­inu um vin­inn segir hann að umræðan í sam­fé­lag­inu núna sé á þann veg að ef hann bendi téðum vini á að sá sé orð­inn of feitur og sé þannig að valda sjálfum sér og sínum nán­ustu sál­ar­tjóni, sem og sjálfum sér heilsutjóni, sé Sig­hvatur sekur um að fitu­smána vin sinn að ósekju. Þessum mála­til­bún­aði er Sig­hvatur ósam­mála.

Sighvati hugn­ast ekki heldur að ábyrgð á heilsu barna sé sett á heilsu­gæsl­una eða stjórn­völd. Hann vísar því sömu­leiðis til föð­ur­hús­anna að aukið aðgengi að gos­drykkjum og sæt­indum sé söku­dólg­ur­inn.

Sig­hvatur vill meina að ábyrgð á heilsu og holda­fari barna liggi alfarið hjá uppalendum, en eftir að við full­orðn­umst liggi ábyrgðin hjá okkur sjálfum og engum öðrum.

Telja pistilinn ofureinföldun

Pistill Sighvats hefur vakið nokkra athygli, meðal ann­ars í Facebookhópnum Pírata­spjallið 2. Þar deilir Jón Oddur grein­inni og skrifar um hana sínar eigin vanga­veltur.

Hann telur málið alls ekki vera eins ein­falt og Sig­hvatur vill vera að láta.

„Getur það stað­ist að börn séu orðin svona miklu feit­ari í dag heldur en þegar Sig­hvatur Björg­vins­son var alast upp vegna þess að börn fái mun lak­ara upp­eldi í dag heldur en börn fengu í gamla daga?“

Jón Oddur telur mun fleiri breytur vera að baki.

„Mér finnst hæpið að heil kyn­slóð for­eldra nú standi sig mun verr í upp­eld­is­hlut­verk­inu en for­eldrar gerðu fyrir hálfri öld síðan. Höfum einnig í huga að þetta er alþjóð­legt mynstur. Börn í Banda­ríkj­unum og í Evrópu eru almennt feit­ari í dag en þau voru fyrir 50 árum. Það væri auð­vitað ekki eðli­legt að fría for­eldra alfarið ábyrgð á offitu­vanda barna en það hlýtur eitt­hvað meira að liggja að baki,“ segir Jón Oddur.

Jón Oddur telur það sama eiga við um vax­andi offitu full­orð­inna síð­ustu ár:

„Eru full­orðnir svona miklu feit­ari í dag vegna þess að full­orðnum nú, ólíkt full­orðnum fyrir 50 árum síðan, skortir vilja til að halda sér innan heilsu­sam­legra þyngd­ar­marka? Auðvitað skiptir vilji ein­stak­lings­ins máli en ég held að þetta sé ekki alveg svona ein­falt.“

Í athuga­semdum við færsl­una veltir fólk vöngum yfir þessu og þó sumir séu sam­mála því að um for­eldra­vanda­mál sé að ræða, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, eru flestir sam­mála um að í pistli sínum ger­ist Sig­hvatur sekur um að ofurein­falda flókið sam­fé­lags­mál.

„Það er ein­fald­lega meiri og betri aðgangur að óholl­ari fæði í dag en var fyrir 40 árum,“ segir Þórður Reyr.

Þor­steini þykir ekki mikið til pistils Sighvats koma:

„Þetta er slík ofurein­földun hjá Sighvati að það hálfa væri nóg. Ekki einu sinni svara­vert. Eða hvað með breyttar neyslu­venjur? Gíf­ur­lega aukn­ingu á unnum mat­vælum? Skyndi­bita? Hreyf­ing­ar­leysi? Breytt þjóð­fé­lags­mynstur? Og þetta eru bara nokkrir þættir.“

Jón Eggert kemur með nýjan og athygl­is­verðan punkt í umræð­una:

„Þegar hann var ungur var tölu­vert af fólki sem reykti tóbak. Það eykur fitu­brennslu og getur stuðlað að grönnum lík­ama. Ég er viss um að feita fólkið í dag er heil­brigð­ara en granna fólkið í þá daga. 1970s kúr­inn mun byrja dag­inn á sígó og svörtu kaffi. Verða svo fök­urt af þessu og taka eina sígó í við­bót til að hressa sig við. Síðan er kjöt­súpa borðuð á kvöldin til þess að kítta betur i æða­kerfið sem reyk­ing­arnar fyrr um dag­inn náðu ekki að kítta í. Og svo dó fólk langt um aldur fram af þessum lífs­stíl sínum. En það dó grannt og fal­legt.“

Jón Eggert heldur áfram:

„Ég er á því að hugsa þetta aðeins öðru­vísi. Ég er viss um að við erum heil­brigð­ari að öllu leiti en kyn­slóðin hans Sighvats. Þannig að aft­ur­hvarf til hans siða eins og tíðk­uð­ust þá er aft­ur­för en ekki fram­för. Við erum að upp­lifa það að heil­brigður lík­ami er feitur lík­ami. Eitthvað sem við vissum ekki áður þegar við átum og reyktum fitu­brennslu­vörur eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Næsta skref er að verða enn heil­brigð­ari en við erum núna en grennri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi