Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átök á Matartips vegna áfengisauglýsingar Sverris: „Hvar er admin???“

Átök á Matartips vegna áfengisauglýsingar Sverris: „Hvar er admin???“

„Nyja­vin­bu­din.is er bresk vef­verslun með áfengi á allt að 50% betra verði, við sendum heim sam­dæg­urs og fólk getur sótt til okkar sama dag.“

Svo hljóðar upp­haf færslu Sverris Einars Eiríks­sonar, en í henni aug­lýsir hann áfeng­is­net­verslun sína, sem valdið hefur nokkru fjaðrafoki í umræð­unni um ein­okun og frelsi á áfeng­is­mark­aðnum.

Í færslu sinni segir Sverrir versl­un­ina stöðugt vera að bæta við sig vörum, en að hann vilji gjarnan fá upp­á­stungur neyt­enda að vörum sem þeim þyki ómissandi. Versl­unin muni svo gera sitt besta í að koma til móts við ábend­ing­arnar.

Hvorki meira né minna en 345 ummæli hafa verið skrifuð við færsl­una þegar þessi frétt er rituð.

Neyt­endur kepp­ast þar við að vekja athygli á sínum upp­á­halds áfengu veigum og Sverrir svarar mörgum athuga­semd­unum og tekur vel í til­lög­urnar.

Þó eru margir sem nýta tæki­færið og gagn­rýna versl­un­ina eða sýna van­þóknum sína með einum eða öðrum hætti.

„Er þetta að breyt­ast í áfengis síðu? Ég því mót­fall­inn,“ segir Einar til dæmis.

Sumir mat­gæð­ingar síð­unnar telja að þarna séu reglur hóps­ins, sem leggja blátt bann við aug­lýs­ingum, þver­brotnar. Í regl­unum segir:

„Aug­lýs­ingar bann­aðar án þess að hafa sam­band við admin.“

Sverrir kærir sig koll­óttan og svarar með eft­ir­far­andi hætti:

„Þetta smellpassar.“

Aðrir benda þó á að þarna sé um að ræða færslu sem greini­lega veki áhuga og ánægju með­lima hóps­ins og því ætti að leyfa henni að standa.

„Það munar 0,4%, það er nú ekki mikið“

Bjarni er óánægður með að Sverrir skuli bera saman verð á bjórnum Stellu Artois í rík­inu og þeirri Stellu Artois sem net­versl­unin selur. Þetta sé ekki sama varan. Stellan sem seld sé í rík­inu sé með 5,0 pró­sent áfeng­is­magn á meðan Stellan sem Sverrir selur sé með 4,6 pró­sent áfeng­is­magn. Það snú­ist ekki bara um áfeng­is­pró­sentu, heldur sé bragðið ekki það sama af þessum tveimur bjórum.

„Berið ykkur saman við vöru sem er langt í frá að vera sama varan og þyk­ist svo vera miklu ódýr­ari. Hversu fyndið. Verið með sömu vöru í verð­sam­an­burð ykkar,“ segir Bjarni.

Sverrir blæs á þessar aðfinnslur Bjarna:

„Það kemur nú skýrt fram pró­sentan, það munar 0,4% það er nú ekki mikið.“

Birgitta nokkur bendir Sverri á reglu­gerð um bann við áfeng­is­aug­lýs­ingum:

„Sæll Sverrir Einar Eiríks­son. Það er kannski eitt­hvað í þess­ari reglu­gerð sem þú átt eftir að lesa.“

Í kjöl­farið upp­hefj­ast nokkrar rök­ræður með­lima Mat­ar­tips um inni­hald þess­arar reglu­gerðar. Sumir vilja meina að þar sem Facebook sé erlend síða sé í góðu lagi að aug­lýsa áfengi inni á hópum þar. Aðrir segja það alrangt og að þegar hópar séu íslenskir eigi reglu­gerðin við.

Hvar er admin?

Sigga nokkur stígur stærra skref í að tjá óánægju sína með færslu Sverris:

„Ef þú gætir sleppt því að aug­lýsa hérna þá væri það fínt. Enda bannað að aug­lýsa áfengi og svo hef ég ekki áhuga á að sjá and­lit­inu þínu bregða fyrir miðað við sögur sem ég hef heyrt.“

Stefán tekur undir það:

„Bara hár­rétt hjá Siggu Lilju og hann er líka með á sig kæru frá ÁTVR.

Hvar er ADMIN ????????“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi