Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Konur íhuga hópmálsókn vegna bólusetninga: „Engin kona tekin til líkamlegrar rannsóknar.“

Konur íhuga hópmálsókn vegna bólusetninga: „Engin kona tekin til líkamlegrar rannsóknar.“

Konur sem skor­uðu á Land­lækni að rann­saka áhrif bólu­setn­inga gegn Covid-19 á tíða­hring kvenna, hug­leiða nú hóp­mál­sókn gegn íslenska rík­inu.

Konurnar, sem stofn­uðu á sínum tíma fjöl­mennan Facebookhóp í kringum málið, eru slegnar yfir nið­ur­stöðu nýrrar rann­sóknar Lyfja­stofn­unar og Land­læknis, en óháð nefnd sem rann­sak­aði málið gaf út nið­ur­stöðu sína í fyrra­dag, þann 7. októ­ber. Í þeim kemur fram að nefndin telji „að ekki sé með óyggj­andi hætti hægt að úti­loka tengsl nokk­urra til­fella sem áttu sér stað í kringum tíða­hvörf og hluta til­fella sem vörð­uðu óreglu­legar og langvar­andi blæð­ingar við bólu­setn­ingar.“

Nefndin telji hins vegar að tengsl milli bólu­setn­ingar og fóst­ur­láta hér á landi sé ólík­leg.

Einungis 38 mál skoðuð

Í rann­sókn­inni voru mál ein­ungis 38 kvenna skoðuð, en þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru birtar hafði Lyfja­stofnun borist um 800 til­kynn­ingar er varða röskun á tíða­hring kvenna í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn Covid-19.

Í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar segir meðal ann­ars:

„Fram kemur í nið­ur­stöð­unum að milli­blæð­ingar og blæð­inga­óregla sé algengt vanda­mál hjá konum á frjó­sem­is­skeiði. Vegna þess sé það fyr­ir­sjá­an­legt að þegar svo stór hluti þessa ald­urs­hóps sé bólu­settur á nær sama tíma sé óhjá­kvæmi­legt að ein­hverjar þess­ara kvenna fái óreglu á blæð­ingar á sama tíma­bili og bólu­setn­ing á sér stað.“

Þekkja líkama sinn

Ótal konur hafa þó lýst því yfir í ofan­greindum Facebookhóp að þær séu þess full­vissar að röskun á tíða­hring þeirra sé ekki á nokkurn hátt eðli­leg eða innan þess­ara skekkju­marka á frjó­sem­is­tíma­bili.

Þær séu full­orðnar, þekki lík­ama sinn og hafi reglu­legar blæð­ingar. Margar þeirra segj­ast aldrei hafa upp­lifað slíka breyt­ingu á tíða­hring sínum, ásamt öðrum auka­verk­unum honum tengdum. Sömu­leiðis virð­ast kven­sjúk­dóma­læknar þess­ara kvenna ein­göngu benda á bólu­efnin sem ástæðu breyt­inga, ef marka má orð Rebekku Óskar Sváfn­is­dóttur, en hún er for­svars­kona hóps­ins sem telur nú um 600 félaga.

Rebekka er allt annað en sátt við rann­sókn­ina og nið­ur­stöð­urnar.

„Ég er ekki nógu sátt við þessar nið­ur­stöður og hóp­ur­inn minn er ekki sáttur við þessar nið­ur­stöður heldur vegna þess að það var ekki ein kona tekin til rann­sóknar við gerð þess­arar rann­sóknar. Það var hringt í örfáar konur og þær voru spurðar um leyfi til þess að skoða sjúkra­skýrslur, það var hringt í örfáar konur af þessum sem var hringt í og spurt nán­ari spurn­inga af kven­sjúk­dóma­lækni á vegum þess­arar rann­sóknar, ekki allar. Og við sjáum ekki hvernig rann­sókn getur skilað eðli­legum nið­ur­stöðum þegar að engin kona er tekin til lík­am­legrar rann­sóknar.“

Rebekka segir kon­urnar vera að íhuga næstu skref, sem mögu­lega verði mál­sókn á hendur íslenska rík­inu.

„Það er fundur með lög­manni á mánu­dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi