Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt: Hópslagsmál og gamnislagur

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt: Hópslagsmál og gamnislagur
Lög­reglan

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði nóg að gera í miðbæ Reykja­víkur í nótt. Töluvert var um lík­ams­árásir og slags­mál.

Ekið var á bif­reið í miðbæ Reykja­víkur, en öku­maður bif­reið­ar­innar sem ekið var á til­kynnti lög­reglu um málið. Þegar lög­regla kom á stað­inn höfðu þrír menn, sem ollu árekstr­inum, farið úr sinni bif­reið og látið sig hverfa. Aug­ljós­lega hugn­að­ist þeim ekki að hitta lög­reglu, en ekki kemur fram hvort bif­reiðin hafi verið gerð upp­tæk. Líklegt þykir að við­kom­andi aðilar muni þurfa að fara í gegnum lög­reglu, vilji þeir bif­reið­ina til baka. Ef hún er þá yfir höfuð þeirra eign.

Aðili sem var við­rið­inn lík­ams­árás í mið­bænum neit­aði að gefa lög­reglu upp nafn sitt eða kenni­tölu og þrjóskað­ist við þar til hann var hand­tek­inn í þágu rann­sóknar máls­ins og fluttur á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu. Þegar þangað var komið veitti hann loks upp­lýs­ing­arnar, en með athæfi sínu hefur hann nú tryggt sér kæru fyrir að segja ekki til nafns eða fram­vísa skil­ríkjum að kröfu lög­reglu.

Árás­armaður veitt­ist að aðila fyrir utan skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur og skall­aði hann í and­litið – svo tennur í við­kom­andi brotn­uðu. Þegar lög­regla kom á stað­inn var saka­mað­ur­inn á bak og burt, en brota­þoli var sendur með sjúkra­bíl á slysa­deild til aðhlynn­ingar.

Leigu­bíl­stjóri þurfti að aka ofurölvi far­þega bein­ustu leið upp á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu, þegar í ljós kom að far­þeg­inn gat ekki með nokkru móti gert grein fyrir sér eða ferðum sínum, eða greitt far­gjaldið. Svo fór að far­þeg­inn var vistaður í fanga­geymslum sökum ann­ar­legs ástands hans.

Par var í nótt hand­tekið eftir að hafa ráð­ist á far­þega í leigu­bif­reið. Auk þess að ráð­ast á far­þeg­ann skemmdu þau leigu­bif­reið­ina og þegar lög­regla kom á vett­vang neit­uðu þau að fara eftir fyr­ir­mælum. Annar aðil­inn reyndi einnig að koma í veg fyrir að lög­regla gæti unnið störf sín. Parið reynd­ist hafa fíkni­efni í fórum sínum og voru báðir aðilar vistaðir í fanga­klefa.

Lögregla fór í eina af hús­vitj­unum sínum þar sem til­kynnt hafði verið um slags­mál í heima­húsi. Þegar hús­ráð­endur komu til dyra voru hins­vegar allir á staðnum hlæj­andi og bros­andi. Það kom fljót­lega í ljós að um gamn­islags­mál hafði verið að ræða og allir á staðnum perlu­vinir.

Það vekur upp spurn­ing­una hver það hafi verið sem til­kynnti athæfið – hvort nágranna hafi hrein­lega sýnst vera um að ræða ósvikin og hörð átök, eða hvort þarna hafi ein­hver legið í leyni og fylgst með fjör­inu, súr yfir að vera ekki boðið með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi