Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vanda Sig og Kim Larsen: „Herskáa Vanda, ég þori ekki öðru en að gera það sem þú segir“

„Kjartans stóra gæfa á þessum árum var að kynn­ast Vöndu sem varð hans umönn­un­ar­að­ili.“ Svo segir Margrét Kjart­ans­dóttir í fal­legri sögu um Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur, nýkjör­inn for­mann KSÍ, en Vanda varð fyrir margt löngu umönn­un­ar­að­ili fatl­aðs syst­ur­sonar Mar­grétar þegar dreng­ur­inn var 9 ára gam­all. Hún segir frá því að á þessum tíma hafi Kjartan, syst­ur­sonur hennar,

Vanda Sig og Kim Larsen: „Herskáa Vanda, ég þori ekki öðru en að gera það sem þú segir“
„Kjartans stóra gæfa á þessum árum var að kynn­ast Vöndu sem varð hans umönn­un­ar­að­ili.“

Svo segir Margrét Kjart­ans­dóttir í fal­legri sögu um Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur, nýkjör­inn for­mann KSÍ, en Vanda varð fyrir margt löngu umönn­un­ar­að­ili fatl­aðs syst­ur­sonar Mar­grétar þegar dreng­ur­inn var 9 ára gam­all.

Hún segir frá því að á þessum tíma hafi Kjartan, syst­ur­sonur hennar, verið að stíga sín fyrstu spor sem fatl­aður ein­stak­lingur. Hann hafi enn gengið í almennan barna­skóla og hafi ávallt farið í Ársel, frí­stunda­mið­stöð fyrir börn, að skóla­degi loknum. Um kynnin af Vöndu og starf hennar með Kjartani segir Margrét:

„Hún var ekki bara að vinna vinn­una sína heldur tók hún Kjartani opnum örmum og varð hans besta vin­kona, hún fann enda­laust upp ein­hver spenn­andi verk­efni fyrir Kjartan til að glíma við og er okkur í fjöl­skyld­unni minn­is­stætt þegar Vanda varð sér úti um tví­menn­ings­hól og hjólaði með Kjartan út um allan bæ, það var ekk­ert sem stopp­aði Vöndu í því að gera dag­inn skemmti­legan fyrir Kjartan.“

Átrúnaðargoðið Kim Larsen

Hún rifjar upp að á þessum tíma hafi goð syst­ur­sonar hennar verið tón­list­ar­mað­ur­inn danski, Kim Larsen. Á þessum tíma hafi stór­stjarnan hins­vegar ekki verið orðin þekkt á Íslandi.

„Ég hafði komið heim með kassettu frá Kaup­manna­höfn árið 1984 og um leið og Kjartan heyrði lögin varð Kim Larsen að átrún­að­ar­goði. Þessi kassetta var spiluð frá morgni til kvölds og Kim Larsen varð að hálf­gerðri þrá­hyggju hjá Kjartani, hvað skyldi Kim Larsen segja um þetta eða hitt, um það voru enda­lausar umræður og vanga­veltur.“

Vanda tekur málin í sínar hendur

„Ekki er vitað hvernig Vanda fór að því að grafa upp heim­il­is­fang Kim Larsens, en það gerði hún og skrif­aði honum bréf. Hún sagði frá ungum aðdá­enda hans hér á Íslandi og bað Kim að skrifa Kjartani bréf. Skömmu seinna kom árituð mynd af danska goð­inu en ekk­ert bréf.

Vanda var ekki ánægð með þetta og skrif­aði Kim aftur og sagði að hún hefði ekki verið að biðja um mynd, hún vildi bréf.

Það leið ekki á löngu þar til að póst­ur­inn færði Vöndu hand­skrifað bréf, fyrst til hennar þar sem Kim skrifar;

„Herskáa Vanda, ég þori ekki öðru en að gera það sem þú segir og hér kemur bréfið.“

Svo fylgdi þetta líka fína bréf sem fyllti heila síðu, því miður finnst ekki bréfið í dag, en það var lengi geymt í hand­saum­uðu umslagi sem Kjartan saum­aði sjálfur og þetta bréf geymdi hann í umslag­inu sínu í fjölda mörg ár.“

Margrét er afar ánægð með ráðn­ingu Vöndu í for­manns­stól Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands.

„Það var okkur í fjöl­skyld­unni mikið gleði­efni þegar Vanda var ráðin til að taka við stjórn KSÍ, hún á án efa eftir eftir að setja hjarta sitt og sál í verkið eins og hún gerði þegar hún var að ann­ast hann Kjartan okkar fyrir þrjá­tíu árum síðan.“

„Ég óska Vöndu hjart­an­lega til ham­ingju með starfið og óska henni vel­farn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi