Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna: „Feðraveldið snýst um að arðræna, kúga og pína verkakonur“

Sólveig Anna: „Feðraveldið snýst um að arðræna, kúga og pína verkakonur“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

„Feðra­veldi íslenskrar nýfrjáls­hyggju snýst fyrst og fremst um að arð­ræna, kúga og pína verka og lág­launa­konur.“

Svo segir í pistli Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gær.

Í pistl­inum útskýrir Sólveig Anna merk­ingu svo­kall­aðs feðra­veldis í nútíma­sam­fé­lagi. Hún segir nýfrjáls­hyggju hafa breytt femín­isma og gert hann ein­stak­lings­mið­aðan; sam­staða kvenna allra stétta hafi með til­komu nýfrjáls­hyggj­unnar verið á bak og burt.

Sólveig Anna segir að í okkar flókna nútíma­sam­fé­lagi sé nauð­syn­legt að velta fyrir sér hvers konar „feðra­veldi“ við búum í og hvaða afleið­ingar það hefur í lífi okkar, eftir því hvaða hópum við til­heyrum. Í það minnsta sé það nauð­syn­legt og áhuga­vert fyrir þá sem trúa á mik­il­vægi kven­frels­is­bar­átt­unnar.

„Á Íslandi er það svo að engar laga­legar hömlur eru til staðar sem gætu komið í veg fyrir að kona taki pláss/sæti ofar­lega eða efst í stig­veldum. Enda eru konur komnar í fjöl­margar af mik­il­væg­ustu valda­stöðum sam­fé­lags­ins. Vissu­lega er menn­ing­ar­legar hömlur eftir til að gera frama­braut kvenna erf­ið­ari en karla, en þær hverfa líka ein af annarri (séu viss skil­yrði upp­fyllt).

En þrátt fyrir þetta er þó enn not­ast við sam­fé­lags­legt stýri­kerfi sem kalla má feðra­veldi. Það kyn­bundna ofbeldi sem konur þurfa að þola í per­sónu­legu lífi sínu og í opin­berum rýmum, og sú sjúka þöggun sem fengið hefur að við­gang­ast um ýmis brot manna gegn konum er afleið­ing feðra­veldis.“

Sólveig Anna segir að annað mik­il­vægt dæmi sem sanni að við búum í feðra­veldi sé hug­mynd um að vest­rænt frelsi manna og kvenna eigi ekki síst að vera okkur sjá­an­legt í fjölda­fram­leiddu klámi, „þar sem konur sem hópur (women as a class) hafi verið „leystar“ undan þeim sammann­legu „skorðum“ sem til­vist sálar og hjarta í lík­ama af holdi og blóði hafa sett homo sapi­ens, og Menn hafa fengið frelsið til að „njóta“ þess­ara ham­skipta fyr­ir­bær­is­ins Konu.“

Sumar konur raunverulega frjálsar og aðrar raunverulega ófrjálsar

„Við búum sem­sagt inn í sam­fé­lagi sem er fullt af margs­konar furðum og þver­sögnum. Sam­fé­lagi þar sem kven-frelsi og kven-kúgun bland­ast saman, þar sem sumar konur eru raun­veru­lega frjálsar og aðrar konur eru raun­veru­lega ófrjálsar.

Þetta er sam­fé­lag mótað af gildum hins risa­vaxna og ein­stak­lega árang­urs­ríka menn­ing­ar­stjórn­unar-verk­efni kap­ít­al­ism­ans, því sem kallað er nýfrjáls­hyggja. Og það feðra­veldi sem nú er við lýði er feðra­veldi sem lifað getur í inni­legu sam­bandi við nýfrjáls­hyggj­una.

Ein helsta ástæðan fyrir því að nýfrjáls­hyggjan er svo árang­urs­ríkt hugs­ana og hug­mynda­stjórn­un­ar­tæki, þrátt fyrir alla ömurð­ina og allt órétt­lætið sem raun­gerst hefur í „valda­tíð“ hennar er hin ein­stak­lings­mið­aða nálgun þegar kemur að „frelsi“.“

Auðveldara að fagna því að einstaka kona nái langt

Sólveig segir að ann­arrar bylgju femín­ismi tutt­ug­ustu ald­ar­innar hafi breyst með til­komu nýfrjáls­hyggju.

„Stór­kost­leg hreyf­ing um kven­frelsun, sem í fyrstu var rót­tæk og inni­hélt magn­aðar útópískar hug­myndir um mögu­leika kvenna til að ákveða regl­urnar um eigin til­veru breytt­ist; mið­læg hug­mynd bar­átt­unnar um sam­stöðu kvenna þvert á stétt og bak­grunn hvarf, og inn í femín­is­mann kom í hennar stað ein­stak­lings­hyggja nýfrjáls­hyggj­unnar.

Krafan um sam­stöðu hvarf, dýrkun á sigrum ein­stakra kvenna inn í kap­ít­al­ism­anum kom í stað­inn. Það er erfitt að berj­ast fyrir rót­tækum breyt­ingum á risa­vöxnum sam­fé­lags­legum skala ( hvað þá „útópíu“…), það er auð­veld­ara að fagna því að ein­staka kona nái langt.“

Sólveig segir þessa full­yrð­ingu sína auð­sann­aða. Hún segir lítið hafa batnað í lífi kvenna sem vinni við hin hefð­bundnu „kvenna­störf“ og hafi ekki sér­staka menntun. Þær séu kerf­inu algjör­lega ómissandi, en þrátt fyrir það séu þær ber­sýni­lega minnst virði af öllum á vinnu­mark­aði.

„Þær eru, þrátt fyrir að nú hafi í tölu­verðan tíma ýmsar konur stjórnað ýmsu og haft ýmis völd, enn ofur-arð­rændar og með slíkum þrótti að sífellt fleiri úr þeirra stétt lifa við fátækt og heilsu þeirra hrakar hratt eftir að þær ná miðjum aldri, bæði and­legri og lík­am­legri.

Þær valda­konur sem stjórnað hafa fyr­ir­tækjum eða póli­tík hafa ekki sýnt áhuga á að koma þessum kyn­systrum sínum til aðstoðar; sá þáttur, það inni­halds­efni sem sam­kvæmt femín­ism­anum gerir stöðu lág­launa­kvenna sér­stak­lega slæma (þær eru konur að vinna sögu­lega van­metin kvenna­störf) býr ekki til neina sjá­an­lega löngun hátt settra kvenna til að sanna að „Konur eru konum bestar“ í sam­skiptum við lág­launa og verka­konur.“

Kapítalisminn þarf á ódýru kven-vinnuafli að halda

„Hvers vegna ger­ist ekk­ert slíkt? Vegna þess að það er tabú í kap­ít­al­ism­anum að frelsa konur undan arðráni.

Kap­ít­al­ism­inn þarf á ódýru kven-vinnu­afli að halda til að geta rekið umönn­un­ar­kerfin sem gera verð­mæta­fram­leiðsl­una mögu­lega, en fram­leiða þó engin „verð­mæti“ sjálf.

Á Íslandi er það eitt helsta og á end­anum lang­mik­il­væg­asta hlut­verk sveit­ar­fé­lag­anna, hins opin­bera, að bjóða atvinnu­líf­inu upp á aðgang að konum á útsölu­verði til að gæta barna og ann­ast gam­alt fólk, án þess að atvinnu­lífið axli nokkra ábyrgð á að fjár­magna stofn­an­irnar þar sem þessi vinna fer fram.

Ófor­skömmuð atlaga hálauna-kon­unnar Aldísar Haf­steins­dóttur gegn ómissandi starfs­fólki sveit­ar­fé­lag­anna, mest lág­launa­konum í umönn­un­ar­störfum er ein­stak­lega góð dæmi­saga; Aldís telur að versta bölvun sem hægt er að hugsa sér sé að borga kven-vinnu­afl­inu laun og sýnir með fram­ferði sínu (hvað eftir annað) að lág­launa­konur geta aldrei treyst á það að kona í stjórn­un­ar­stöðu muni nota völdin sín til að bæta þeirra hag, sér­stak­lega ekki ef það kostar. Það er nákvæm­lega engin sam­fé­lags­leg, kven­rétt­inda­leg krafa um að hálauna-kon­urnar noti plat­formin sín og völdin til að lið­sinna lág­launa­kon­unum.“

Samfélagsleg sátt um að halda láglaunakonum föngnum

„Semsagt: Öllum konum er nú frjálst að spreyta sig á því að kom­ast áfram frama­braut við­skipta­lífs­ins eða stjórn­mál­anna. Og engin kona sem „nær langt“ skuldar þeim konum sem fátækar eru, kúg­aðar, arð­rændar, nokkurn skap­aðan hlut.

Engin fem­inísk krafa um sam­stöðu hátt­settra kvenna með lágt settum konum er til staðar. Aðeins mestu brjál­æð­ing­arnir, félags­legir end­ur­fram­leiðslu-marx­istar og rad-femmur, láta sér detta til hugar að setja fram slíka kröfu.

Það er sam­fé­lags­leg sátt um að „ófag­lærðar“ konur, konur sem vinna við að skúra, passa börn, hjálpa gömlu fólki eigi ekk­ert betra skilið en það að lifa í efna­hags­legri kúgun, fangar hinnar þrot­lausu biðar efir mán­að­ar­mótum, fangar hús­næð­is­mark­aðar, fangar ömur­legra sam­banda sem þær geta ekki sloppið úr, fangar þeirrar óham­ingju sem fylgir því að geta ekki veitt afkvæmum sínum það sem önnur börn fá. Fangar þess­arar gömlu og grjót­hörðu reglu feðra­veld­is­ins; allt það sem kell­ingar hafa gert í gegnum tíð­ina er einskis virði og bók­staf­lega galið að ætl­ast til þess að valda­stéttin, pen­inga­leg og póli­tísk, eigi að axla nokkra ábyrgð á að til­vistar-skil­yrðum Konunnar sem kyndir ofn­inn.

Sú óþol­andi gella á að halda áfram að vinna verk sín hljóð og ekki trufla stjór­ana, hvort sem þeir eru karlar eða með eggja­stokka og leg eins og hún.

Semsagt: Feðra­veldi íslenskrar nýfrjáls­hyggju snýst fyrst og fremst um að arð­ræna, kúga og pína verka og lág­launa­konur.

Þær eiga ekk­ert inni hjá neinum. Engan pen­ing og enga sam­stöðu. Sweet not­hing indeed. Samstaða með þeim kostar of mikið. Bæði fjár­hags­lega og líka í per­sónu­legum, póli­tískum skil­ingi; hátt settar konur í valda­kerf­inu verða að sýna að þær skilji að efna­hags­leg frelsun lág­launa­kvenna er tabú.

Það er próf sem þær verða að stand­ast. Geri þær það eru þeim allir vegir færir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi