Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísabet í harða neyslu 16 ára og var nauðgað: „Mér finnst ég vera óhæf móðir“

Elísabet í harða neyslu 16 ára og var nauðgað: „Mér finnst ég vera óhæf móðir“
Elísabet Hauks­dóttir

Elísabet Hauks­dóttir ólst upp fyrir norðan og flutti um fjög­urra ára gömul til Reyka­víkur og svo flutti hún til frænku sinnar fyrir vestan þegar hún var 13 ára. 14 ára flutti hún með kærasta sínum til Borg­ar­ness. Hún flutti síðan með öðrum kærasta til Búð­ar­dals og lauk svo 10. bekk á Selfossi en þá bjó hún hjá einni frænku sinni um tíma. Hún hefur síðan þá meira og minna búið í Reykja­vík.

Hún var 14 ára þegar hún fékk sér fyrsta sopann og drakk hún eftir það aðal­lega um helgar. „Það var algengt að maður færi á götu­fyll­erí þar sem maður var ekki nógu gam­all til að fara á skemmti­staði. Ég var þó farin að fara inn á skemmti­staði þegar ég var 17 eða 18 ára.“

Hún fór út í harð­ari neyslu þegar hún var um 16 ára. „Þá fór ég að reykja annað heldur en sígar­ettur og það sem ég sótt­ist mest í var að reykja og drekka og svo til að koma mér aftur á sporið þá tók maður oft í nefið. Mestu veik­leikar mínir voru í raun og veru áfengi, spítt og hass.“

Mestu veik­leikar mínir voru í raun og veru áfengi, spítt og hass.

Þunglyndið

Elísabet er ein­stæð móðir og á þrjá syni og er sá elsti 11 ára. Hún fór að finna fyrir þung­lyndi eftir að hún eign­að­ist hann en segir þó að hún hafi áður fyrr fundið fyrir þung­lyndi en hafi ekki við­ur­kennt það fyrr en þá. „Það var rosa­lega mikið tabú að við­ur­kenna að það væri eitt­hvað að; það voru allir að tala um hvað það fylgdi því æðis­leg til­finn­ing að vera mamma en ég fann ekki þessa æðis­legu til­finn­ingu. Ég var oft gröm, mér fannst hann gráta of mikið og ég kunni ekk­ert á hann. Mér finnst ég vera óhæf móðir og að ég ætti í raun og veru ekk­ert að vera með hann.“

Hún er í dag á þung­lynd­is­lyfjum. „Það koma slæmir dagar þar sem þung­lyndið er slæmt og fíknin kemur upp og þá finnst mér eina lausnin fel­ast í að fá mér bjór og fara á fyll­erí sem ég geri þó ekki enda búin að vera edrú í um þrjú ár. Það kemur fyrir að íbúðin lítur út eins og það hafi verið gerð sprengju­árás af því að ég hef mig ekki upp í að taka til. Svo dag­inn eftir get ég verið meira hyber en allt sem hyber er og liggur við að ég hangi í ljósakrón­unni.“

Mér finnst ég vera óhæf móðir og að ég ætti í raun og veru ekk­ert að vera með hann

Nauðgunin

Synir Elísa­betar eru fimm, 10 og 11 ára. „Tveir elstu synir mínir eiga sama föður og ég varð edrú þegar ég kynnt­ist honum án þess að fara í með­ferð og var næstum því edrú í 10 ár á meðan við vorum saman. Það hrundi allt þannig séð þegar við hættum saman og þá féll ég í svo­lít­inn tíma.“ Hún var í um tvö og hálft ár með hæl­is­leit­anda og eign­að­ist með honum yngsta son­inn.

„Síðasta fyll­er­íið mitt var 22. febr­úar árið 2018.“ Maður sem hún kann­að­ist við nauðg­aði henni á heim­ili hennar og í kjöl­farið slitn­aði upp úr sam­bandi hennar og barns­föður hennar. „Ég tók ákvörðun eftir þetta að þetta gengi ekki lengur og ákvað að verða edrú aftur; þá var ég búin að vera í drykkju on og off í svo­lít­inn tíma. Ég fór svo ekki í með­ferð inn á Teig fyrr en nokkrum mán­uðum síðar þegar ég fann að ég var farin að fá löngun til að drekka. Ég fór í dag­með­ferð af því að ég þurfti í raun og veru ekki að afeitra mig þar sem ég var búin að að vera edrú frá því dag­inn eftir að mér var nauðgað.“

Elísabet kærði nauðg­un­ina en segir að kæran hafi verið felld niður þar sem þetta var orð á móti orði. Hún áfrýj­aði dómnum og seg­ist enn vera í bið hvað það varðar. „Ég var spurð hvort ég hafi barist á móti en ég gerði það ekki; það eina sem ég hugs­aði allan tím­ann var að ég mætti ekki vekja börnin mín en strák­arnir mínir voru sof­andi. Ég vildi ekki opna munn­inn en mað­ur­inn var drukk­inn fyrir utan að vera undir áhrifum ann­arra vímu­efna. Ég vissi ekki hvað hann myndi gera gagn­vart börn­unum mínum og ég vildi ekki að hann kæmi nálægt þeim. Ég fraus í raun og veru.“

Ég var spurð hvort ég hafi barist á móti en ég gerði það ekki; það eina sem ég hugs­aði allan tím­ann var að ég mætti ekki vekja börnin mín en strák­arnir mínir voru sof­andi.

Elísabet segir að eftir nauðg­un­ina hafi hún haft á til­finn­ing­unni að allir vissu um hana. „Mér fannst allir hofa á mig og ég var í eigin augum orðin ónýt mann­eskja. Ég bjóst aldrei við að fara í sam­band aftur. Ég bjóst aldrei við að karl­maður myndi vilja tala aftur við mig. Mér leið eins og ég væri skítug. Ég kenndi sjálfri mér um þetta og fannst að ég hefði ekki átt að vera í þeim fötum sem ég var í þetta kvöld. Sekt­ar­kenndin var eig­in­lega öll mín megin.“

Elísabet fór að hugsa öðru­vísi út í hlut­ina eftir að hún fór í með­ferð á Teigi og gerði hún sér grein fyrir að þetta var alls ekki hennar sök. „Ég má klæða mig í það sem ég vil. Ég má haga mér eins og ég vil. En það má eng­inn fara yfir mín mörk.“

Fátæktin

Jú, Elísabet er edrú en hún seg­ist taka einn dag fyrir í einu. „Og ég er í raun og veru þakk­lát fyrir það sem ég er núna.“ Hún er í end­ur­hæf­ingu hjá VIRK og fer í Tinnu, sem er fyrir ein­stæða for­eldra, og Pepp, gras­rót fólks í fábækt, og gerir ráð fyrir að fara í 20% starf síðar í haust. „Ég veit ekki hvert ég fer eða hvað mun ger­ast. Ég fer í atvinnu með stuðn­ingi og svo kemur í ljós hvort ég muni geta farið aftur út á vinnu­mark­að­inn. Miðað við hvernig skrokk­ur­inn er búinn að haga sér upp á síðkastið þá eru hverf­andi líkur á því að það muni ger­ast. Ég er með gömul meiðsli á hné, ég er með gömul meiðsli á putta og svo hef ég verið að kljást við bak­verki. Svo er and­lega hliðin ekki sú stabílista í heimi en ég er bæði með kvíða og þung­lyndi. Svo er að halda sér edrú en það er vinna út af fyrir sig og tek ég eitt skref í einu af því að það er margt sem getur trig­gerað mig; sumir dagar eru mjög slæmir og þá langar mig bara veru­lega að detta í það. Það er ljótt að segja það en þegar maður er fík­ill þá fær maður í raun og veru oft meiri stuðn­ing heldur en í dag sem edrú mann­eskja með þrjú börn. Ég er með þrjá ein­stak­linga sem ég ætla að koma út í lífið á góðan hátt og það er vinna.“

Fátæktin. Elísabet, sem býr í félags­legri íbúð, þekkir fátækt­ina af eigin raun. Á tíma­bili var hún á göt­unni með syn­ina þrjá á tveimur með­lögum og fjár­hags­að­stoð sem nam um 180.000 krónum á mán­uði.

„Ég hef í gegnum tíð­ina neitað mér um margt eins og tann­lækna­kostnað; ég er með hand­ó­nýtar tennur í raun og veru en ég hef ekki efni á að fara til tann­læknis og láta gera við þær.“ Hún talar um að syn­irnir hafi þurft að kenna á bágri, fjár­hags­legri stöðu hennar. „Þessar elskur hafa alveg fengið að finna fyrir fátækt­inni þar sem ég hef til dæmis oft neitað þeim um að fara til dæmis með gjafir í afmæli sem þeim er boðið í þar sem ég hef ekki haft efni á að kaupa afmæl­is­gjafir sem þeir gætu gefið og ég hef jafn­vel mútað þeim; sagt að þeir fengju tvo sleikjóa ef þeir slepptu því að fara í afmælið.“

Ég hef í gegnum tíð­ina neitað mér um margt eins og tann­lækna­kostnað; ég er með hand­ó­nýtar tennur í raun og veru en ég hef ekki efni á að fara til tann­læknis og láta gera við þær.

Hún hefur verið virk hjá Pepp-sam­tök­unum og unnið sjálf­boða­liða­starf á kaffi­húsi þeirra í Mjódd sem á að fara að loka. „Það er ofsa­lega sárt að það eigi að loka kaffi­hús­inu en það hefur gefið mér mikið að vera þar. Ég fór þangað alltaf á dag­inn bæði sem skjól­stæð­ingur og sjálf­boða­liði og sat stundum og fékk mér kaffi og með­læti og spjall­aði við fólkið. Þetta gaf mér rosa­lega mikið félags­lega. Kaffi­húsið og það að vera innan um fólk hefur bjargað mér hvað varðar þung­lyndið. Við ætlum að berj­ast fyrir því að finna annað hús­næði. Það er alveg á hreinu.“ Þess má geta að sunnu­dag­ur­inn 17. októ­ber er alþjóða­bar­áttu­dagur gegn fátækt.

Kaffi­húsið og það að vera innan um fólk hefur bjargað mér hvað varðar þung­lyndið.

Neysla, nauðgun, kvíði og þung­lyndi, fáækt… Hvað með lær­dóm­inn af þessu öllu? Elísabet tengir tvær setn­ingar við lær­dóm­inn – setn­ingar sem eru á púðum sem hún á: „Góðir hlutir ger­ast  hægt“ og „gerðu dag­inn í dag betri“.

Sunnu­dag­ur­inn 17. októ­ber er alþjóða­bar­áttu­dagur gegn fátækt
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi