Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bakarinn sem fékk ofnæmi fyrir hveiti: Stefán berst með hundinum sínum við mannýgar rottur

Bakarinn sem fékk ofnæmi fyrir hveiti: Stefán berst með hundinum sínum við mannýgar rottur
Stefán og Freyja Mynd: Aðsend

Stefán Gaukur Rafnsson starfar sem mein­dýra­eyðir ásamt hund­inum sínum, Freyju. Þá kennir hann einnig skot­fimi en í ár hlotn­að­ist hann sá heiður að verða Íslands­meist­ari í skot­fimi. Hann segir Mannlífi frá starf­inu sem er ekki fyrir alla og veiði­dell­unni.

Stefán Gaukur, sem er 32 ára, er fæddur og upp­al­inn Reyk­vík­ingur, bjó mest af í Graf­ar­vog­inum. Á hann að eigin sögn ynd­is­lega konu og tvö börn. Hann er í grunn­inn með menntun sem bak­ari þó hann hafi alltaf stefnt á að verða kokkur.

„Svo fór maður að spyrja sig þess­arar klass­ísku spurn­ingar, hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orð­inn stór?“

Stefán byrj­aði í kokk­inum en fór svo yfir í bak­ar­ann en varð að hætta af pín­legri ástæðu. Hann reynd­ist með ofnæmi fyrir hveiti. Fyrst um sinn fór hann að vinna við að selja hveiti. „Þetta var ynd­is­legur tími en ég er samt og hef alltaf verið innst inni algjör drullum­all­ari, vil helst vera í skítugum fötum.“

Hann hafði átt erfitt með að finna tíma til að vera úti í nátt­úr­unni eins og hann elskaði en fór þá að hugsa með sér, „hvað er full­komin vinna? Það er að sjálf­sögðu að veiða, drepa og bjarga fólki. Þá datt mér í hug mein­dýra­eyðir­inn.“ Segist Stefán ekki sjá eftir einni mín­útu frá því að hann byrj­aði í þeim bransa.

„Þá kemur aukapungur í mann“

Fyrsta verk­efnið sem Stefán fékk sem mein­dýra­eyðir var ekki af létt­ara tag­inu. „Fyrsta verk­efnið var risa­stórt geit­ungabú og ég hafði ekki hlotið neina þjálfun í því. Þannig að það var bara að gera eitt­hvað. En svo kemur þetta bara með reynsl­unni. En þetta er ekki starf fyrir hvern sem er.“

Aðspurður hvort hann sé ekk­ert smeykur við geit­unga seg­ist Stefán ekk­ert vera vel  við þá en „þegar þú ert kom­inn í gall­ann og ert að fara að bjarga fólki, þá kemur bara auka­pungur í mann.“

Stefán Gaukur rekur mein­dýra­eyð­is­þjón­ust­una Ókindina sem hann stofn­aði fyrir tveimur árum. Stefán hefur þó verið við­rið­inn slíka þjón­ustu í gegnum tíð­ina. Hann er ekki eini starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins því hund­ur­inn Freyja hjálpar honum endrum og eins.

„Hún er fínn félags­skapur en svo nota ég hana líka þegar ég er lít­ill í mér og sendi hana á rott­urnar.“

Hundurinn Freyja á skilið hærri laun

Aðspurður segir Stefán alveg hafa lent á auð­veldum rottum í fagi sínu en svo hefur hann lent í þeim erf­ið­ari. „Maður hefur alveg lent í rottum sem eru mannýgar. Þá gengur maður bara frá því og fær svo gæsa­húð á eftir,“ segir Stefán en bætir við að þetta sé svo sem bara vinna eins og hvað annað.

Hann segir enn­fremur að stundum þurfi mein­dýra­eyðir­inn að sinna hálf­gerðri áfalla­hjálp og nefnir dæmi.

„Eitt skipti fékk ég sím­tal frá manni sem bjó í kjall­ara­í­búð niðri í bæ en hann var í miklu upp­námi. Hann hafði verið sof­andi en vaknað við það að verið var að klóra honum á bak­inu. Reyndist það vera rotta.“

Rott­urnar segir Stefán, eru ein­stak­lega útsjóna­samar skepnur og erfitt sé að veiða þær í gildrur. „Þú þarft eig­in­lega að hugsa eins og þær, þær fara ekk­ert í gildr­urnar, þú þarft að veiða þær í gildr­urnar.“ Freyja hjálpar honum þegar rott­urnar eru erf­iðar og þá gengur hún bara í verkið og rífur þær í tvennt.

„En aðal­lega fer Freyja með mér til að finna kvik­indin, hún er mjög góð í því enda einn besti hundur sem Ísland hefur eign­ast. Freyja er þýskur pointer og ein­stak­lega góður alhliða veiði­hundur. Hún er bara full­komið heim­il­is­dýr, vinnu­fé­lagi og veiði­fé­lagi.“

Freyja veiðir sem sagt með Stefáni og vinnur algjör­lega fyrir kaup­inu sínu. „Hún hefur synt eftir seli, hún nær í gæsir og endur og finnur rjúpur fyrir mig. Það er eig­in­lega synd að ég skuli ekki borga henni betri laun en bara hunda­fóður,“ segir Stefán og hlær.

Freyja

Lífseig kvikindi

Nú hafa kakka­lakk­arnir bæst í skor­dýraflóru lands­ins þó þeir séu nú ekki búnir að dreifa sér um allt land. Stefán segir þá þróun nokkuð eðli­lega í ljósi fjölgun ferða­manna til land­ins. „Fyrir 10 árum síðan voru sára­fáir ferða­menn að koma til lands­ins en nú hafa verið að koma 3 millj­ónir og ekk­ert skrítið að þeir beri með sér alls­konar kvik­indi.“

Kakka­lakk­arnir eru ekki einu óvær­urnar sem hingað hafa sest að að und­an­förnu. „Bed bugs eða veggja­lýs er annað dæmi, það er komið hel­vítið mikið af þeim, því miður.“ Stefán virð­ist mikið í mun að fá blaða­mann Mannlífs til að fá gæsa­húð og nefnir dæmi um kakka­lakka­út­kall sem hann fór eitt sinn í. „Þá var ég kall­aður út vegna eins kakka­lakka í skúffu en þegar ég opn­aði skúff­una stukku á mig tugir kvik­inda.“ Það hafa aðal­lega verið tvær teg­undir kakka­lakka sem Stefán hefur þurft að glíma við, sá þýski og sá spænski en sá síð­ar­nefndi hefur oftar komið upp. „Þetta eru lífseig kvik­indi.“

Þegar Stefán er spurður út í eft­ir­minni­leg­asta mein­dýrið sem hann hefur glímt við verður hann hugsi. „Ég lenti einu sinni á rottu sem var ein­stak­lega gáfuð, hún gekk fram­hjá öllum gildrum og það tók mig langan tíma að ná henni. Ég setti upp mynda­vél og sá að hún æddi fram­hjá öllum gildr­unum eins og hún væri háskóla­gengin.“ Að lokum varð hann að nota hagla­byss­una á hana.

Veiðieðlið kviknaði snemma

En Stefán er ekki aðeins flinkur mein­dýra­eyðir, hann er einnig stoltur Íslands­meist­ari í skot­fimi en hann byrj­aði í skot­fimi aðeins tví­tugur að aldri. „Það er svo geggjað að geta kallað sig Íslands­meist­ara,“ sagði Stefán sposkur. Aðspurður sagði Stefán að veiði­mennskan hafi komið á undan sport­inu, „veiði­mennskan kom bara þegar ég var fjög­urra ára að murrka lífið úr murtum við Þing­valla­vatn.“ Fór hann oft að veiða með pabba sínum sem barn. „Pabbi er algjör veiði­gedda og tók okkur öll börnin að veiða þegar við vorum yngri, til þess að fá að fara að veiða því mamma leyfði honum aldrei að veiða einn. Ég er að finna fyrir því í dag hvernig honum leið karl­grey­inu.“ Svona dvöldu börnin með pabba sínum í æsku og þannig fékk Stefán veiði­dell­una.

Á góðri stundu

Grátleg framkoma við íþróttafólk

Stefán hefur einnig verið að kenna skot­fimi en nýlega var skot­svæð­inu lokað.

„Svæðinu var lokað vegna ein­hverrar kergju. Þetta er bara þannig með suma hópa, þeir eru á móti öðrum hópum og þarna erum við að eiga við bæði ríkið og einn ein­stak­ling í Kolla­firð­inum. Og þannig er búið að leggja niður eitt íþrótta­starf á Íslandi, mér finnst þetta alveg klikkað. Það hafa ákveðnir aðilar viljað loka svæð­inu og að lokum fundu þeir eina gilda ástæðu. Svæðið er sem sagt ekki á deilu­skipu­lagi borg­ar­innar. Það eru mörg hús og mörg fyr­ir­tæki, sum þeirra í eigu rík­is­ins sem ekki passa við deilu­skipu­lagið á ýmsum svæðum. Þetta er mjög skrítið mál.“ Málið skiptir Stefán miklu máli en hann bætir því við að Skot­fé­lag Reykja­víkur sé eitt elsta íþrótta­fé­lag á land­inu og þarna sé fólk sem meðal ann­ars keppir fyrir Íslands hönd erlendis. Þetta er grát­leg fram­koma við íþrótta­fólk,“ segir Stefán Gaukur, Íslands­meist­ari í skot­fimi og mein­dýra­eyðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi