Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan taldi að íslensk stúlkubörn á aldrinum 12-16 ára væru komin út í vændi

Lögreglan taldi að íslensk stúlkubörn á aldrinum 12-16 ára væru komin út í vændi
Ástandið

Ástandið er notað yfir tíma­bil á Íslandi.
Í seinni heims­styrj­öld­inni, 1940–1945, komu her­menn frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi til Íslands. Íslenskir karl­menn voru ekki par sáttir við komu þeirra og töldu þá hafa áhrif á íslenskt kven­fólk.
Hermenn á Íslandi urðu á einu tíma­bili svo margir að þeir voru nærri því jafn margir og íslenskir karl­menn.

Þá segir sagan að her­menn­irnir hafi reynt við íslenskar konur og hrif­ist mjög af þeim og ekki hafi íslenskum konum þótt her­menn­irnir síður heill­andi.
Útkoman er sú að áætlað er að þús­undir íslenskra kvenna hafi gifst her­mönnum.

Sam­skipti íslenskra kvenna og her­manna féllu aldeilis ekki vel í kramið hjá íslensku karl­mönn­unum. Voru þær konur sem gift­ust her­mönnum sak­aðar um föð­ur­lands­svik og vændi.

Árið 1940 komu þrjú bresk her­skip til lands­ins. Fjöldi Reyk­vík­inga fór niður að höfn til þess að sjá nýju gest­ina sem sögð­ust vera mættir til þess að verja landið.
Daginn eftir komu þeirra birt­ist grein í Alþýðu­blað­inu þar sem lög­reglan lýsti yfir óánægju sinni með hversu nær­göngular sumar íslensku kvenn­anna hafi verið við her­menn­ina.
Þá leist þeim ekki heldur á hegðun her­mann­anna sem gáfu sig helst til mikið á tal við íslenskar konur. Falaðist lög­regla eftir auknu valdi til að geta spornað við þeirri þróun sem var í upp­sigl­ingu að hennar mati.

Her­menn­irnir voru dug­legir að halda dans­leiki. Þá tóku mennta­skóla­piltar upp á því að skrá nöfn stúlkna sem mættu á ballið og birt­ist svo list­inn dag­inn eftir. Einnig hittu her­menn­irnir íslensku stúlk­urnar á skemmti­stöðum og hót­elum. Íslensku pilt­arnir urðu svo afbrýði­samir að stundum kom til handa­lög­mála.

Í júlí 1941 kom banda­ríski her­inn til þess að leysa breska her­menn af hólmi. Var umtalað hversu snyrti­legir banda­rísku her­menn­irnir væru, þá þóttu þeir fjall­mynd­ar­legir og áttu pen­inga.

Sögu­sagnir um vændi höfðu aldrei verið jafn tíðar og skrif­aði þáver­andi land­læknir, Vil­mundur Jónsson, bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna þessa.
Þar sagði hann að lög­reglan teldi að stúlku­börn á aldr­inum 12-16 ára væru sum komin út í vændi.
Rík­is­stjórnin kom þá með þá hug­mynd að her­menn skyldu flytja inn vænd­is­konur fyrir lið sitt, en af því varð þó ekki.
Mála­lyktir urðu þær sú að Ástands­nefndin var stofnuð og í henni áttu sæti þrír karl­menn, þar á meðal Sig­ur­björn Ein­ars­son biskup.

Eftir mán­aða vinnu skil­aði nefndin skýrslu. Í skýrsl­unni var listi yfir 500 konur á aldr­inum 12 til 61 árs. Þessar konur voru taldar hafa mjög náin sam­skipti við her­menn og voru um 150 konur 17 ára eða yngri. Þá væru hið minnsta 129 kvenn­anna orðnar mæður og börnin um 255.
Í lok skýrsl­unnar sagð­ist lög­reglu­stjór­inn halda að þessar tölur mætti marg­falda með fimm til að nið­ur­staðan gæti talist mark­tæk.

Þó nokkur mót­mæli urðu vegna skýrsl­unnar, bæði vegna gagn­anna og þess að þrír karl­menn hefðu setið í nefnd­inni en engin kona.
Banda­ríski her­inn varð ekki síður ósáttur við skýrsl­una og rann­sakði ástandið líka. Nið­ur­stöður hans voru hvergi nálægt nið­ur­stöðu íslend­ing­anna.

Margar til­raunir voru gerðar til þess að taka á ástand­inu. Lagt var til að stofn­aður yrði ung­linga­dóm­stóll, hæli fyrir ung­linga voruð opnuð, en var þeim flestum lokað innan tveggja ára. Lands­menn frá 12 ára aldri þurftu að ganga með skil­ríki á sér.
Þessar til­raunir báru þó lít­inn árangur og þóttu ekki nægi­lega ígrund­aðar.

Kynni her­mann­anna og íslensku kvenn­anna leiddu af sér bæði börn og brúð­kaup. Her­manna­brúð­kaup hér á landi voru þó nokkuð mörg, eða 332 tals­ins. Talið er að tölu­verður fjöldi íslensku kvenn­anna hafi flutt með her­mönn­unum til Banda­ríkj­anna þegar stríð­inu lauk, árið 1945.

Per­sónunjósnir hafa þó aldrei verið umfangs­meiri en í ástand­inu. Þá má ætla að lög­reglan hafi njósnað um allt að 1.000 konur árið 1941.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi