Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna Álfheiður myndlistarkona: „Í draumkenndu ferðalagi“

Anna Álfheiður myndlistarkona: „Í draumkenndu ferðalagi“

„Að ákveða að vera mynd­list­ar­maður er eitt og sér, stór ákvörðun. Það er mikil áskorun að vera lista­maður, en á sama tíma eru svo margir góðir kostir, sér­stak­lega ef ástríða liggur á bak við það sem maður tekur sér fyrir hendur, en það einmitt gerir starfið svo miklu skemmti­legra.“ Þetta segir Anna okkur og margt fleira mjög áhuga­vert þegar við hittum hana í spjalli um lífið, list­ina og sýn­ing­una sem hún var að opna.

Anna Álf­heiður Brynj­ólfs­dóttir mynd­list­ar­kona opn­aði sína fyrstu einka­sýn­ingu, sem er að Skóla­vörðu­stíg 5 á dög­unum. Verkin hennar eru gerð á árunum 2018-2021 og má segja að þau séu ein­hvers konar „tri­bute“ til geometr­í­unnar eða strang­flat­ar­ins. Verkin eru bæði í tví­vídd og þrí­vídd þar sem línu­laga form eru í for­grunni.

Í senn draum­kennd og rök­föst
Nafnið á sýn­ing­unni, Núll­vigur, kemur frá orð­inu „vigur” sem er hug­tak í stærð­fræði notað til að lýsa stærð eða lengd og birt­ist sem mynd­rænt tákn eða strik milli tveggja punkta. Núll­vigur er aftur á móti stærðin núll og óskil­greind stefna.

„Mér fannst þetta nafn passa vel við verkin þar sem þau eru draum­kennd á sama tíma og þau eru rök­föst og stærð­fræði­leg.“

Verkin snú­ast um hið sjón­ræna ferða­lag lín­unnar, þar sem tveir pólar lín­unnar; hinn draum- og flæðis­kenndi og hinn strang­flata og stærð­fræði­legi eru ýmist í sam­hljómi eða takast á.

„Mér finnst áhuga­vert að skoða sam­bandið þarna á milli þegar margar mis­mun­andi línur koma saman í mis­mun­andi sam­hengi lita og rýmis. Ef til vill mætti sjá þetta fyrir sér í stærra sam­hengi, eins og t.d. í sam­tali á milli þess mann­lega og stað­reynda sem gera engar mála­miðl­anir. Þessir and­stæðu pólar eiga kannski sam­leið, eins og dagur og nótt, him­inn og haf, eða tví­eggja sverð í draum­kenndu ferða­lagi í kringum sjálft sig.“

Í þessum anda hefur Anna verið að vinna að nýjum verkum, en hefur þó verið með annan fót­inn við sýn­ing­una sína sem er enn í gangi og verður opin til 20. októ­ber næst­kom­andi.

Einstæð móðir með tvær ungar dætur
Anna Álf­heiður er fædd árið 1977 og upp­alin í Reykja­vík. Eftir útskrift af mynd­list­ar­braut í Fjöl­braut í Breið­holti sótti hún um í Lista­há­skóla Íslands og útskrif­að­ist með BA-próf í mynd­list árið 2009.

„Aðstæð­urnar hjá mér eftir útskrift voru þannig að mér fannst ég ekki geta leyft mér að fara alfarið út í mynd­list­ina þar sem ég var ein­stæð móðir með tvær ungar dætur og þurfti að fá traustar tekjur. Þar af leið­andi sökkti ég mér í skrif­stofu­vinnu sem ég ílengd­ist í.“

Á þessum tíma lét hún sig dreyma um að geta notað tím­ann betur og blómstrað í ein­hverju sem hún hefði ástríðu fyrir á sama tíma og sköp­un­ar­kraft­ur­inn, sem hafði alltaf blund­aði í henni, gæti fengið útrás.

„Þrátt fyrir það, átti ég svo litla orku eftir í lok vinnu­dags­ins að ég sló draumnum enda­laust á frest. Árið 2018 lét ég svo slag standa, fór að mála með akrýl­máln­ingu á striga og þá var ekki aftur snúið. Sama ár ákvað ég svo að hefja kenn­ara­nám í lista­kennslu við Lista­há­skóla Íslands og lauk því, vorið 2020.“

Anna Álf­heiður tók þá ákvörðun að fara alfarið í mynd­list svo hún gæti unnið við eitt­hvað sem tengd­ist því að miðla mynd­list og hún segir að það séu for­rétt­indi að geta miðlað því sem maður elskar mest að gera. Námið var henni lær­dóms­ríkt og krefj­andi og fjall­aði útskrift­ar­rit­gerð hennar um flæði og núvit­und sem fólk upp­lifir oft við mynd­sköpun, þar sem sköp­un­ar­kraft­ur­inn virkj­ast í átt að vellíðan og betri heilsu.

Sköp­un­ar­kraft­ur­inn getur haft mik­inn heil­un­ar­mátt
„Rann­sóknir hafa sýnt fram á það að heila­stöðvar og „gleði­boð­efni“ virkj­ast í sköp­un­ar­flæð­inu. Ég las mikið um heila­rann­sóknir fyrir MA-rit­gerð­ina mína og komst að því að sköp­un­ar­kraft­ur­inn getur haft mik­inn heil­un­ar­mátt og að mynd­mennt­ar­kennsla geti skipt jafn­miklu máli og lestur og stærð­fræði. Mynd­list­ar­nám­skeið ættu því að vera í boði fyrir ein­stak­linga á sama hátt og heim­il­is­læknar vísa á sál­fræð­inga og gefa út hreyfiseðla.“ Hún er hugsi, en útskýrir svo fyrir okkur hvar áhug­inn á list hófst.

„Ég hef alltaf verið mjög list­hneigð, en ég ólst upp við það að for­eldrar mínir teikn­uðu og mál­uðu bæði mikið og sóttu mynd­list­ar­nám­skeið. Það þótti bara ósköp eðli­legt að teikna, mála og skapa á heim­il­inu og mér fannst alltaf skemmti­leg­ast í mynd­mennta­tímunum í skól­anum. Bræður mínir, sem mennt­aðir eru í aug­lýs­inga­brans­anum, hafa líka alltaf verið dug­legir við að mála og teikna. Svo það má kannski segja að þetta sé ósköp skap­andi fjöl­skylda. Dætur mínar hafa þetta líka í sér og eru afar list­hneigðar og skap­andi, en vilja þó ekki leggja list­ina fyrir sig sem atvinnu. Við höfum oft grín­ast með það að halda sýn­ingu öll saman, sem væri nú ekk­ert galin hug­mynd.“

Ein­stak­lings­miðað nám
„Ég var um 22 ára, með eitt barn þegar ég hóf nám í FB á mynd­list­ar­braut, í kvöld­skóla. Það var í raun þá sem ég fann að mig lang­aði til þess að vera mynd­list­ar­maður. Að mínu mati var mynd­list­ar­hluti náms­ins mjög vand­aður og fjöl­breyttur.

Þegar ég fór svo sjálf að kenna, fannst mér mik­il­væg­ast að hvetja til ein­stak­lings­bund­innar nálg­unar. Mér hefur fund­ist sú aðferð gagn­leg­ust. Að kenna nem­end­unum að upp­götva sína eigin styrk­leika og hjálpa þeim að virkja þá. Nemendur vita ekk­ert endi­lega alltaf af sínum styrk­leikum, þess vegna er þetta svo mik­il­vægt.

Ég fór þó ekki að vinna almenni­lega að list fyrr enn árið 2018, eins og fram hefur komið, en þetta tók allt sinn tíma, sem er bara allt í lagi, því allt hefur sinn til­gang.“

Skapandi hugsun er nær­andi
Það sem hefur komið Önnu mest á óvart er að finna hvað listin gefur mikið til baka.

„Þetta hljómar ef til vill mjög klisju­kennt en ég er greini­lega á réttri braut.“

Anna fann sig ein­hvern veg­inn aldrei 100% í vinnu sem er ekki skap­andi. Skapandi hugsun að hennar mati er nær­andi fyrir alla.

„Það er líka gaman að velta því fyrir sér hvað það er að vera skap­andi. Fyrir mitt leyti er skap­andi hugsun ekki ein­ungis tengd því að vinna að listum, heldur er hægt að nálg­ast þessa hugsun í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er hugsun, mál­efni, atvinnu­greinar eða þver­fag­lega,“ segir Anna upp­lýsandi.

Gott sam­spil í hinu stóra sam­hengi
Sýningin hefur fengið frá­bærar við­tökur og hefur farið fram úr hennar björt­ustu vonum, bæði varð­andi áhuga fólks og sölu á verk­unum.

„Ég er afar þakk­lát fyrir það, því það er ekki sjálf­gefið, en ferlið krafð­ist mik­illar þol­in­mæði og seiglu og mik­illar nákvæmn­is­vinnu í útfærslu verk­anna.“

Það sem stóð upp úr sköp­un­ar­ferl­inu er sú til­finn­ing þegar maður hefur áorkað ein­hverju sem maður er búinn að sjá fyrir sér og vinna hörðum höndum að lengi. Hún segir að það hafi ekki endi­lega allir í kringum hana skilið ferlið og það sem hún var að koma fram með. „Það getur verið frekar kómískt að hugsa um, þegar ég hugsa til baka,“ útskýrir hún.

Það var svo ánægju­leg til­finn­ing þegar hug­mynd­irnar og pæl­ing­arnar birt­ust henni og öðrum í „kosmó­inu.“ Þróunin er ein­stak­lega skemmti­leg og maður verður eitt­hvað svo sáttur innra með sér, segir hún.

Næstu miss­eri fara í að pæla, þróa og mála verkin fyrir næstu sýn­ingu og kennslu. Og er hún með auga­stað á öðrum sýn­ing­ar­sal fyrir næsta haust og vonar að sýna aftur sem fyrst.

„Ég ætla að vera með sam­sýn­ingu á næst­unni, en það er nauð­syn­legt að plana fram í tím­ann, þó svo að það sé spenn­andi að skilja eftir smá rými fyrir hið óvænta, það er gott sam­spil í hinu stóra sam­hengi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi