Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katrínu var nauðgað af manni sem hún treysti: „Hann játaði tvisvar en samt var málið fellt niður“

Katrínu var nauðgað af manni sem hún treysti: „Hann játaði tvisvar en samt var málið fellt niður“

Katrín Von Gunn­ars­dóttir segir frá hræði­legri reynslu sem hún varð fyrir:„Fyrir nákvæm­lega ári síðan var mér nauðgað af manni sem ég treysti. Daginn áður en það gerð­ist hringdi ég grát­andi í hann af því að mér leið ömur­lega yfir deg­inum, 15.okt, sem er afmæl­is­dagur mömmu minnar sem lést 2013 eftir langa og erf­iða bar­áttu við and­leg veik­indi.“Katrín hringdi „í þennan mann af því að þarna var hann sú mann­eskja sem ég treysti einna best af fólk­inu í kringum mig. Kvöldið eftir nauðg­aði hann mér á mínu eigin heim­ili. Staðnum sem ég á að vera örugg­ust á. Hvort hann hafi nýtt sér við­kvæmni mína þennan til­tekna dag veit ég ekki en það breytir engu,“ segir hún og bætir við:„Hann fékk gist­ingu hjá mér eftir djamm þetta kvöld og tók það skýrt fram áður en hann kom að hann vildi EKKI stunda kyn­líf með mér. Eftir að hann kom var allt eins og vana­lega. Hann kom með í hest­húsið og við kláruðum að setja hrossin sem ég var með í tamn­ingu inn og gefa þeim fyrir nótt­ina. Eftir að við komum inn og vorum komin upp í rúm til þess að SOFA var ég í sím­anum að skoða sam­fé­lags­miðla eins og flest önnur kvöld áður en ég fer að sofa.“Þá færði mað­ur­inn sig upp á skaftið og Katrín „fann að hann byrj­aði að strjúka á mér lærið sem ég man að mér fannst mjög óþægi­legt og lagði frá mér sím­ann og þótt­ist vera farin að sofa. Ég þótt­ist svo vera sofnuð þegar hann byrj­aði að reyna meira af því að mér leið illa og ég vildi bara fara að sofa enda hafði ég engan áhuga á neinu öðru með þessum manni.“Hún bætir við:„Ég man hvernig hann snerti mig og hvísl­aði í eyrað á mér: “segðu bara já eða nei, þú þarft ekki að vakna”. Með þessum orðum gerir hann það ansi skýrt að hann heldur að ég sé sof­andi. Ég svar­aði honum ekki enda leið mér mjög illa í þessum aðstæðum og þorði ekk­ert að segja. Ég bara fraus, lam­að­ist og kom ekki upp úr mér orði. Honum var aug­ljós­lega skít­sama um það hvort ég væri vak­andi eða sof­andi og nauðg­aði mér á meðan ég “svaf”. Ég safn­aði svo kjarki í það að snúa mér við svo hann næði ekki að halda áfram og þannig hætti þetta. Hann fer að grenja, spyr sjálfan sig að því af hverju hann gerði þetta og tekur upp vasa­hníf í her­berg­inu mínu til þess að ég best veit, skaða sig. Þá fyrst næ ég að segja honum að sleppa hnífnum og drulla sér út.“

Katrín gerði síðan það rétta í stöð­unni:„Fyrstu við­brögð hjá mér eftir þetta er að segja vinum mínum frá sem allir trúðu mér strax og voru ekk­ert nema góðir við mig. Ég kærði hann svo 7 dögum seinna með játn­ingu frá honum í skila­boðum, vini mína sem ég tal­aði við þetta kvöld sem vitni og einnig sam­eig­in­lega vin­konu okkar ger­and­ans sem vitni þar sem hann ját­aði líka fyrir henni. 9 mán­uðum seinna var málið mitt fellt niður með þeim rökum að “ég var ekki nógu hrædd” á meðan þessu stóð. Ég kærði nið­ur­stöð­una og í dag, 12 mán­uðum eftir atburð­inn, fékk ég að vita að kæran var end­an­lega felld niður og að það er ekk­ert sem ég get gert meira í þessu. Rökin í dag voru “orð á móti orði,“ segir Katrín og heldur áfram:„HVERNIG er það orð á móti orði ef að ég sem fórn­ar­lamb er með TVÆR fokk­ing játn­ingar frá ger­anda. Hans orð á móti eru þau að “hann hafi sagt þetta til að róa mig niður”.Síðan hvenær róar það fólk niður að segj­ast hafa fokk­ing nauðgað því??? Og hver eru þá fokk­ing rökin fyrir því að hafa játað þetta fyrir vin­kon­unni???Hvernig í and­skot­anum er þetta orð á móti orði ef þol­andi segir að ger­andi nauðg­aði sér og ger­andi játar tvisvar að hafa nauðgað þol­anda?!Hvernig í and­skot­anum er rétt­látt að fella niður kæru með tvær játn­ingar frá ger­anda af því að þol­andi var “ekki nógu hrædd” á meðan þetta átti sér stað?!“Katrín nefnir að eftir nauðg­un­ina hafi líf hennar gjör­breyst til hins verra:„Er ekki nóg að ég hafi ekki sofið í 4-5 mán­uði eftir þetta? Er ekki nóg að ég hafi þurft svefn­lyf en SAMT ekki getað sofið? Er ekki nóg að ég hafi byrjað að skaða sjálfa mig?Er ekki nóg að ég hafi þurft að hitta geð­lækni? Er ekki nóg að ég hafi þurft að byrja á þung­lyndis- og kvíða lyfjum? Er ekki fokk­ing nóg að mér hafi liðið það illa eftir þetta að ég lok­aði á nán­ast alla fjöl­skyldu og vini mína og byrj­aði að haga mér eins og fífl vegna van­líðan?Hvernig mögu­lega eiga þolendur að vinna svona mál ef að tvær játn­ingar frá ger­anda eru ekki nóg???Hvernig í and­skot­anum er sann­gjarnt að hann fái að lifa sínu lífi eðli­lega án þess að þurfa að gjalda eitt eða neitt fyrir gjörðir sínar.Hvernig í fokk­anum er sann­gjarnt að ég þurfi að eyða mínum lífi í að vinna upp öryggi og sjálfs­traust eftir að hann gjör­sam­lega stút­aði því.Ekki mis­skilja mig samt, það eiga allir að fá séns til að gera betur og takast á við sín vanda­mál en fólk þarf þá að byrja á því að TAKA FOKKING ÁBYRGÐ!!!Hvaða fokk­ing kjaftæði er Íslenska rétt­ar­kerfið í alvöru fokk­ing talað!“Katrín segir að lokum að fólk eigi að trúa þolendum og vill að sem flestir deili frá­sögn hennar:„Trúum þolendum! Takk fyrir að lesa þetta. Mér þætti afskap­lega vænt um það ef þú tækir þér tíma í að deila þessu fyrir mig.Og til ger­anda: Ég vona að þú eigir ömur­legt líf þangað til þú gerir eitt­hvað í þínum málum. Taktu þig saman í fokk­ing and­lit­inu og gerðu það rétta í stöð­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi