Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður var við dauðans dyr í Rúmeníu: „Spítalinn sá sjúklingum ekki fyrir vatni né klósettpappír“

Sigurður var við dauðans dyr í Rúmeníu: „Spítalinn sá sjúklingum ekki fyrir vatni né klósettpappír“

Sigurður Páll Sig­urðs­son segir að það sé „merki­leg reynsla að hafa verið á sjúkra­húsi í Rúmeníu og á sjúkra­húsi á Íslandi með sama sjúk­dóm­inn; Covid.Ég vissi að fengi ég sjúk­dóm­inn, þá mundi hann leggj­ast hart á lungun í mér, þau hafa alltaf verið minn veiki punktur. En ég treysti frekar á mitt nátt­úru­lega ónæm­is­kerfi heldur en til­rauna­lyf frá lyfj­arisum sem taka enga ábyrgð á bólu­efn­unum sínum.“Hann bætir við að hann hafi verið svo „óhepp­inn að vera staddur í Rúmeníu þegar ég smit­ast. Þar fer ekki gott orð af heil­brigð­is­kerf­inu, og mér sagt að ef þú ferð á spít­ala þar með Covid, þá kem­urðu lík­lega ekki aftur heim. Ég smit­ast lík­lega 15. sept, en leggst ekki í rúmið fyrr en 19. sept.

Eftir það hrakar mér hratt, og tek sjálfs­próf 22. sept sem stað­festir Covid. Ég byrja að taka vítamín, stein­efni og þau lyf sem lækn­ir­inn minn á Íslandi ráð­leggur mér. Það var þrauta­ganga að nálg­ast sum lyfin vegna tungu­mála- og menn­ing­ar­þrösk­ulda, en að lokum var ég kom­inn með grunn­pakka.“Næstu 7-10 daga var Sigurður „eig­in­lega með óráði, stöðugan höf­uð­verk, náði varla and­anum og svitn­aði eins og hross. Einföld kló­sett­ferð tók úr mér alla orku og loft. Ég byrj­aði að fylgj­ast með súr­efn­is­mettun í blóði, og var í 7-10 daga með undir 80% mettun.

Þegar ég segi lækn­inum mínum það, þá brá honum og skip­aði hann mér að hringja á sjúkra­bíl og fá súr­efni; ég væri að skemma heila og hjarta. 6. októ­ber leggst ég því inn á sjúkra­hús í bænum Braila í Rúmeníu.“Og heldur áfram:„Rúmenía er mjög stórt land og ætti á alla vegu að vera mjög auð­ugt land. Rækt­ar­lönd og auð­lindir ættu alla jafna að gefa fólki mjög gott líf, en eftir komm­ún­ismann hefur spill­ing og einka­að­ilar rænt landið…og ræna enn!Þetta kemur niður á alþýðu þannig að fátækt er almenn og mik­ill sjálfs­þurft­ar­bú­skapur heldur líf­inu í fólki. Öll þjón­usta er af skornum skammti og rekin fjársvelt og und­ir­mönnuð. Þar komum við að heil­brigð­is­kerf­inu.“

Hann segir að „sjúkra­húsið var ótrú­lega stórt og ein­falt frá komm­ún­ism­anum, með gömul rimla­rúm, ekk­ert heitt vatn, engri þrif­að­stöðu (sturtan orðin að geymslu), fáu starfs­fólki (nokkrar hjúkr­un­ar­konur og restin “aðstoð­ar­fólk”) sem var stöðugt hlaup­andi átta­villt um gang­ana kallandi fyr­ir­mæli á milli hæða og stundum hrein­lega í rifr­ildum.“Bætir þessu við:„Á fyrstu 2 dög­unum mínum á sjúkra­hús­inu fyllist það af sjúk­lingum og starfs­fólk virt­ist ekki ná að hafa undan. Öll vinnu­brögð ein­kennd­ust af fári og stjórn­leysi, hver hjúkkan gríp­andi inn í hjá hinum, hlaup­andi fram á gang, kom­andi aftur inn reyn­andi að muna hvað hún var að gera, með 6-7 hand­skrifuð blöð með lyfja­skömmtum dags­ins og bland­andi lyfja­kok­teila hver ofan í aðra, þannig að lík­lega fengu ein­hverjir sjúk­lingar tvö­falda skammta og aðrir engan. Spít­al­inn sá sjúk­lingum ekki fyrir vatni né kló­sett­pappír, matur bragð­laus og af mjög skornum skammti (konan færði mér vatn, mat og ávexti), ein­falda grunn­hluti sjúkra­húsa vant­aði alger­lega, t.d. grindur til að hengja upp drip-poka. Tveir læknar virt­ust starfa á öllu sjúkra­hús­inu (annar byrj­aði 2 dögum eftir að ég kom). Á nótt­unni var örygg­is­hurðum læst og sumar nætur lá sjúkra­húsið and­vaka þar sem sjúk­lingar voru öskr­andi og grenj­andi, berj­andi í hurð­arnar að reyna að ná athygli ein­hvers (sjá vídeó). Þetta var eins og í lélegri bíó­mynd af geð­spít­ala á 19. öld. En mitt aðal­á­hyggju­efni var að ég fékk nán­ast engar upp­lýs­ingar þar sem eng­inn tal­aði ensku og ég var raun­veru­lega týndur á þessum risa-spít­ala og útlitið varð alltaf dekkra.Sigurður fékk þá vondar fréttir.„Eftir 7 daga af óvissu og verri líðan var mér til­kynnt að mér væri að hraka. Út um glugg­ann á stof­unni minni voru lík­bílar og ætt­ingjar í röðum að sækja látna fjöl­skyldu­með­limi. Líklega dóu um 10 manns á dag á þessu sjúkra­húsi. Ég verð að við­ur­kenna að ég fyllt­ist ekki bjart­sýni á þessum tíma.Herbert vinur minn hafði sett sig í sam­band á fyrsta degi inn­lagnar minnar við SOS Europe, þar sem ég er tryggður. Þeir gengu beint í það að fá upp­lýs­ingar um stöðu mína og með­ferð, en fengu engin svör. Eftir viku af engum við­brögðum og versn­andi líðan minni ákváðu þeir að koma mér heim til Íslands, og var mér flogið heim eftir 9 daga á sjúkra­hús­inu í Braila.“Sigurður er þakk­látur fyrir íslenska heil­brigð­is­kerfið eftir að hafa kynnst því rúm­enska:„Ég get varla lýst mun­inum á þjón­ustu, fag­mennsku og aðstöðu á þessum tveimur löndum. Þetta var eins og að koma út úr mið­öldum inn í nútím­ann.Ég er búinn að fá fyrsta flokks þjón­ustu, allt ger­ist skipu­lega og yfir­vegað, mér gefnar allar upp­lýs­ingar um leið og þær birt­ast og mér er sinnt af nær­gætni og hlý­hug. Mér hefur strax skánað tölu­vert og and­inn er mun létt­ari. Bara það að kom­ast í sturtu eftir 10 daga var frelsandi!! Ég get varla með orðum lýst þakk­læti mínu að vera kom­inn heim og í heil­brigð­is­kerfi sem virkar, þó það séu deilur um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi