Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ég veit að þessar hugsanir eru ekki réttar …

Ég veit að þessar hugsanir eru ekki réttar …

Ég vinn á 21. hæð, í opnu rými í 23 hæða bygg­ingu. Þegar ég geng inn í bygg­ing­una fer ég alltaf að vinstri lyft­unni, en það eru tvær lyftur í bygg­ing­unni.

Á hverjum morgni stend ég fyrir framan lyft­una og bíð eftir ein­hverjum sem er á leið­inni upp, því ein­hverra hluta vegna finnst mér óþægi­legt að fara inn í lyft­una ein. Ég bíð þá bara þol­in­móð eftir næstu lyftu. Um leið og dyrnar opn­ast fer ég inn og kem mér fyrir, aft­ast í lyft­unni þó svo að flestir reyni það líka. Aftast í lyft­unni get ég nefni­lega fylgst með öllum. Ég passa mig alltaf á því að ýta aldrei á hæð 21 heldur bíð ég eftir því að ein­hver annar geri það. Ef eng­inn fer út á 21. hæð þá er ég í lyft­unni þar til að ein­hver ýtir á hæð­ina mína. Þessi þrá­hyggja er að fara með mig, en ég eyði óþarfa miklum tíma í að flakka á milli hæða þangað til ein­hver fer út á sömu hæð. Allir snúa sér í átt að dyr­unum. Það gengur inn og muldrar lágt; góðan dag­inn, og tekur svo upp far­sím­ann.

Það veitir mér eng­inn athygli en ég þekki þau öll. Ég fylgist með hnakk­anum, háls­inum og þá sér­stak­lega far­síma­skjánum þeirra. Ég hef verið að leika mér með að flokka fólkið sem kemur í lyft­una niður í þrjá flokka: óáhuga­vert fólk, áhuga­vert fólk og svo eru það herra­menn­irnir. Þeir eru nokkrir herra­menn­irnir sem taka lyft­una og þeir sem gera það, eru eins og rokk­stjörnur turns­ins. Ég veit að þessar hugs­anir eru ekki réttar, en ég kemst ekki hjá því að fylgj­ast með fólk­inu. For­vitnin er að fara með mig. Kári á 6. hæð er t.d. nýbú­inn að skipta um ilm­vatn. Rúnar á 2. hæð er að ganga í gegnum skilnað. Matti á 13. hæð er í megrun, en upp­á­haldið mitt er hann Lárus. Lárus er með­al­hár, svo­lítið fölur á að líta, en með ljós­brúnt hrokkið hár og sér­stak­lega fal­lega nær­veru. Hann er þög­ull og ilmar svo vel. Það er auð­velt að finna ilm­inn þegar maður er í svona litlu lok­uðu rými. Lárus vinnur á 21. hæð eins og ég, en að sjálf­sögðu hefur hann aldrei tekið eftir mér.

Það rignir mikið þennan mánu­dag og gólfið í lyft­unni er orðið blautt. Ég er komin á 8. hæð og er orðin frekar óþreyju­full að finna ein­hvern sem er að fara á mína hæð. Í þetta sinn, er ég að gef­ast upp þegar ég kem auga á hönd sem heldur í hurð­ina. Það er hann Lárus.

– Ég er orð­inn svo seinn útaf rign­ing­unni. Hvaða hæð? spyr Lárus?

– Tutt­ugusta og fyrsta.

Ég hef fylgst með honum í margar vikur en hann hefur aldrei tekið eftir mér. Hann hallar sér að hlið­ar­veggnum og eins og allir aðrir fer hann beint í sím­ann sinn. Ég nota tæki­færið til að fylgj­ast með því hvað hann er skoða í sím­anum sínum. Hann lítur virki­lega vel út. Hann er með ferskt yfir­bragð og fal­leg brún augu. Lyftan fer af stað hljóð­lát­lega eins og venju­lega, en skyndi­lega fellur lyftan og ég missi jafn­vægið og dett á blautt gólfið. Ég sé að Lárus hefur líka dottið, en við stöndum bæði upp hálf­dösuð.

Lyftan heldur svo fljót­lega áfram sinn sama gang, en ég tek skyndi­lega eftir auknum hávaða. Hún stoppar stutt­lega á 20. hæð, en heldur svo áfram á 21., 22., 23., þangað til að hún fest­ist loks­ins 23. hæð. Eftir örlitla stund er eins og lyftan sé að fara enn hærra, hvernig getur það verið. Lárus horfir á mig:

– Það lítur út fyrir að lyftan sé algjör­lega orðin stjórn­laus.

– Ég er hrædd um það. Ég heiti ann­ars Viktoría.

– Gaman að hitta þig, ég heiti Lárus.

– Inn um hurð­ar­gatið er örlítil ljóstýra. Reynum að opna hurð­ina.

Lárus og ég tökum hvort í sína hurð lyft­unnar. Þú verður að toga fast til að opna nægi­lega mikið. Úti er hábjartur dagur, en við erum föst hér í ljós­lausri lyftu.

Lyftan rís svo allt í einu á ógn­ar­hraða og ljósið verður ákaf­ara og til­finn­ingin er eins og að falla ofan í mjúk skýin. Skyndi­lega erum við komin inn í rými fullt af ljósi. Sólin skín og him­inn­inn er blár. Við Lárus sitjum við dyrnar og geislar stjarn­anna veita okkur blíða hlýju og fyrir neðan okkur er haf­sjór af hvítum skýjum. Ég tek í hönd­ina á Lárusi og hann brosir til mín.

– Viktoría, held­urðu að við séum á leið­inni upp í geim?

– Blár him­inn­inn er að verða dekkri, þangað til að hann verður næstum svartur.

– Í fjarska, sjáum við jörð­ina.

– Á þessum tíma­punkti sjáum við greini­lega stjörn­u­rnar.

Skyndi­lega hægir lyftan á sér og gamla góða þyngd­ar­aflið bregst okkur ekki. Við svífum lár­rétt og horfum á hvort annað augliti til auglits. Við höldum í hend­urnar á hvort öðru. Hann hlær og ég hlæ. Þvílík til­finn­ing, því­lík ham­ingja. Við stöndum upp­rétt eins og tveir sæhestar í krukku. Ég nálg­ast Lárus og við skipt­umst á löngum, mjög löngum, kossi, augu hans glitra og hjarta mitt slær.

Ánægjan er þó skamm­vinn því þyngd­ar­aflið dregur okkur niður á jörð­ina. Lyftan er á leið­inni niður. Við erum þegar farin inn í skýin og skyndi­lega eykur lyftan hrað­ann. Við erum að fara frá skær­hvítu ljósi yfir í allt grátt. Það dimmir snögg­lega og það byrjar að rigna inn um dyrnar. Við sjáum jörð­ina og bygg­ing­arnar í fjarska. Við Lárus sitjum kúruð saman. Það er kalt úti.

Það er niða­myrkur. Lyftan vegur eitt tonn og stöðvast mjög, mjög harka­lega á jörð­inni. Ég loka aug­unum og þá, án fyr­ir­vara, er alger þögn …

– Halló halló, er allt í lagi …

Ég opna augun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi