Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gerður listakona synti ávallt gegn straumnum – Ótrúleg tenging við dulspeki og hið yfirskilvitslega

Gerður listakona synti ávallt gegn straumnum – Ótrúleg tenging við dulspeki og hið yfirskilvitslega

Gerður Helga­dóttir (1928–1975) var merki­legur íslenskur mynd­höggv­ari og abstrakt­lista­kona á 20. öld og leikur hún stórt hlut­verk í íslenskri lista­sögu, ekki síst vegna Gerð­ar­safns sem rekið er í hennar nafni. Gerður barð­ist gegn sam­fé­lags­gerð­inni og þeim kyn­hlut­verkum sem konum voru ætluð. Hún helg­aði líf sitt alfarið list­inni og synti gegn straumnum.

Gerður virð­ist hafa verið mikið með hug­ann við him­in­tunglin og hvað sé handan við tunglið, þó svo að það sé mis­bók­staf­lega hægt að sjá í verkum hennar. Hún var mikið fyrir dul­speki, en þessi dul­spekifræði sem hún kynnti sér og stund­aði í mörg ár eru mikið til byggð á stjörnu­fræði og það end­ur­spegl­ast tals­vert í verkum hennar, bæði í formi og tákni. Hægt er að sjá þessi hvirf­il­form birt­ast þar sem þau minna á him­in­geim­inn og hvernig hreyf­ingin er í him­in­geimnum.

Iðkaði heilaga dansa
Gerður stund­aði hug­rækt eftir dul­speki og kenn­inga­kerfi G.I. Gur­dji­effs og eins og fyrr segir

Dul­speki­dansar

má sjá marg­vís­leg merki þess í lista­verkum hennar. Hún stund­aði hug­leiðslu og iðk­aði heilaga dansa með hópi undir stjórn Madame Jeanne de Salzmann, sviss­nesks dans­ara sem var hægri hönd G.I. Gur­dji­effs á meðan hann lifði. Heilögu dans­arnir sem Gerður iðk­aði byggð­ust á hreyf­ingu eftir geó­metrískum hrynj­anda. Í bók­inni GERÐUR frá 2010, rit­stýrðri af Guð­björgu Krist­jáns­dóttur, skrifar J.B.K. Ransu kafla um tengsl Gerðar Helga­dóttur við heims­mynd­ar­fræði G.I. Gur­dji­effs. Þar skrifar hann: „List Gerðar er óneit­an­lega marg­þætt en fyrir mitt leyti er lyk­ill­inn fund­inn. Hann er dul­speki­legs eða yfir­skil­vits­legs eðlis og verður því alltaf leynd­ar­dóms­fullur partur af list­inni, eitt­hvað ósnert­an­legt og fram­and­legt.“ Gerður Helga­dóttir var fjöl­hæfur mynd­list­ar­maður en leit fyrst og fremst á sig sem mynd­höggv­ara. Stærstan hluta ævinnar bjó hún og starf­aði sem lista­maður í París.

Óhefðbundinn og róttækur leiðbeinandi andlegrar visku

Hver er þessi dul­speki sem Gerður hafði svona mik­inn áhuga á og hvernig komst hún í kynni við hana? Árið 1922 flutt­ist rúss­neski dul­spek­ing­ur­inn G.I. Gur­dji­eff frá Georgíu til Frakk­lands ásamt hópi af nem­endum sínum, þar á meðal stærð­fræð­ingnum P.D. Ouspensky og sviss­neska dans­ar­anum Jeanne de Salzmann, og sett­ust þau að í nágrenni við París.

Gur­dji­eff þótti óhefð­bund­inn og rót­tækur leið­bein­andi and­legrar visku og var braut­ryðj­andi í aðferðum til að miðla henni til hins sið­mennt­aða manns. Hann var þekktur fyrir að ögra nem­endum sínum og beitti óspart því sem kall­ast „shock treat­ment“ til að koma fjar­hugum aftur til sín sjálfs.

„Fjórða leiðin“ kall­að­ist kennslu­að­ferðin hans, en Gur­dji­eff áleit að þrjár algeng­ustu leiðir manna til að vakna af and­legum svefni hingað til dygðu ekki. Þær leiðir sem höfðu helst átt við nútíma­mann­inn á þessum tíma voru leiðir eins og; fakírs­ins, munks­ins og jóg­ans. Gur­dji­eff taldi þessar þrjár leiðir ekki nægja og því þyrfti fjórðu leið­ina sem sam­ein­aði helstu þætti hinna þriggja. Mark­miðið var að vinna með þol­mörk lík­am­ans, til­beiðslu og ein­beit­ingu hug­ans, sem jafn­framt sam­ein­aði aðferð­ar­fræði islam, hindúisma, kristni og búdd­isma.

Þegar Gur­dji­eff lést í París árið 1949 voru fræði hans þá þegar útbreidd um Evrópu og Banda­ríkin. Þetta sama ár flutt­ist Gerður frá Flórens til Parísar og sett­ist þar að til að sinna list­sköpun.

Lyk­ill­inn að list­sköpun hennar
Í ævi­sögu Gerðar, rit­aðri af Elínu Pálma­dóttur, er Gur­dji­eff tví­vegis nefndur á nafn. Í fyrra

skiptið er það útdráttur úr bréfi Gerðar sem hún sendir föður sínum frá París þar sem hún bendir honum á að lesa bækur eftir Gur­dji­eff og nem­anda hans, Ouspensky, því að í bók­unum megi finna lyk­il­inn að því sem hún sé að fást við í sinni list­sköpun.

Í seinna skiptið er hann nefndur í sam­bandi við dans­þjálfun Gerðar hjá Jeanne de Salzmann, en Gur­dji­eff og de Salzmann höfðu þróað saman svo­kall­aða „heilaga leik­fimi“ eða „heilaga dansa“ sem byggðu á sam­hæfðum hreyf­ingum og geó­metrískum hrynj­anda.

Á fyrstu Par­ís­ar­ár­unum vann Gerður högg­myndir undir áhrifum kúbism­ans og kon­kret­verka danska mynd­höggv­ar­ans Roberts Jacobsen, sem bjó einnig í París um þetta leyti. Upp úr miðjum sjötta ára­tugnum, eftir að hún hafði sökkt sér í fræði Gur­dji­effs, tók list hennar á sig per­sónu­legri mynd. Verkin urðu merk­ing­ar­fyllri með trú­ar­legum til­vís­unum og sner­ust um hreyf­ingu og/eða innra rými. Bein teng­ing var á þess­ari nálgun við hug­leiðslu­tækni Gur­dji­effs en síhreyf­ing var mik­il­vægur þáttur í hans tækni til þess að þenja þol­mörk lík­am­ans, öðl­ast til­finn­inga­legt jafn­vægi og við­halda ein­beit­ingu hug­ans.

Þegar verk hennar eru skoðuð er auð­velt að heill­ast af högg­myndum hennar frá þessu tíma­bili, en það var einmitt það tíma­bil sem hún var á kafi í fræðum Gur­dji­effs.

Fólk heill­að­ist af nálgun hennar þó svo að ekki hafi komið í ljós fyrr en síðar meir teng­ingin við dul­spek­ina. Sumir vilja meina að hennar bestu verk séu einmitt bein­tengd þessum dul­speki­legu og guð­speki­legu fræðum. Samt eru engar heim­ildir til um málið; – um lyk­il­inn að því sem hún var að gera. Eins og svo oft með áhrif dul­speki og guð­speki á þróun abstrakt­list­ar­innar, þá virð­ast þau fara fram á bak við tjöldin, gleym­ast síðan í umræðu og detta jafn­vel út, eins og raunin er með heim­ildir um list Gerðar. Kannski er ein­hver þarna úti sem þekkir til sam­bands­ins af eigin raun og getur upp­lýst okkur sem hafa áhuga á því að rýna í þetta stór­merki­lega mál?

Heim­ildir.

Elín Pálma­dóttir. 1998. Gerður: ævi­saga mynd­höggv­ara. Lista­safn Kópavogs, Gerða­safn. Kópa­vogur.

Gerður: meist­ari glers og málma = sculptor and glass art­ist. 2010. Rit­stjóri Guðbjörg Krist­jáns­dóttir. Lista­safn Kópavogs, Gerða­safn. Kópa­vogur.

Jón B.K. Ransu. 2007. „Gerður og Gur­dji­eff.“ Morg­un­blaðið, 10. maí.

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi