Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saga úr bílastæðahúsi

Saga úr bílastæðahúsi

„Þegar ég steig út úr bílnum reikn­aði ég ekki með að hitta gamlan skóla­fé­laga, bekkj­ar­bróður um tíma.“

Ekki þarna í bíla­stæða­hús­inu, þar reiknar maður ekki með að hitta fólk. 

„Bless­aður, hvað segir þú?“ spurði hann og tónn­inn var hressandi á gervi­legan hátt. 

„Allt ágætt“ sagði ég, það er van­inn hjá flestum að segja það, og bæta svo við: 

„En hjá þér, er ekki allt gott að frétta?“

Svarið er yfir­leitt: 

„Jú, það er allt gott að frétta, ég segi allt gott, það þýðir ekk­ert annað.“

En ekki að þessu sinni. 

Þessi gamli skóla­fé­lagi og bekkj­ar­bróðir um tíma leit djúpt í augun á mér. Í augum hans var að finna þrá eftir tján­ingu og tóm­leika; augna­ráðið blandað af fjar­lægð og nálægð, ekki hægt að útskýra það öðru­vísi. 

„Nei, það er ekki allt gott að frétta af mér.“ Hann hristi höf­uðið, virt­ist reiður, í það minnsta svekktur. Hressi gervi­legi tónn­inn víðs­fjarri. 

„Það er allt eins og það á ekki að vera. Mér líður illa, það hefur flest farið úrskeiðis und­an­farin tvö ár, og ég á og er ekk­ert í dag. Ekkert annað en skít­hæll. Hef komið illa fram við fólk í kringum mig. Það hafa allir fengið nóg af mér, og ég skil það vel; ég á skilið að það sé traðkað á mér eins og hunda­skít.“

Eftir þessa ræðu varð mér orða vant um stund, horfði á mann­inn, gamla skóla­fé­lag­ann og um tíma bekkj­ar­bóður, og von­aði að hann myndi ekki klikk­ast þarna. Hann var ekki þekktur fyrir að vera ofbeld­is­maður, þekktur fyrir að vera sterkur og góður í körfu­bolta. Svo allt í einu var eins og hann dytti aftur inn í stund og stað. Og þá sagði ég snöggt: 

„Gaman að hitta þig, við félag­arnir þurfum endi­lega að fara að hitt­ast, taka nokkra öll­ara.“ 

Ég sneri mér við og hugð­ist ganga hratt í burtu. En hann greip um öxl­ina á mér. Ég stað­næmd­ist og sneri mér við – spurði: 

„Er ekki allt í góðu?“

Hann var blíður á svip, og tónn­inn í rödd­inni var orð­inn gervi­lega hressandi á ný. 

„Jú, auð­vitað, og mér líst vel á að við hitt­umst, félag­arnir, sem fyrst. En ég á hvergi heima, nema þú viljir kalla her­bergi á gisti­heim­ili heim­ili? Getum við hist heima hjá þér, á föstu­dag­inn?“ 

Hann var orð­inn svo ákafur að mér var hætt að lít­ast á blik­una og greip því til lyg­innar, sem er mér töm. 

„Nei, ég er líka heim­il­is­laus, bý tíma­bundið hjá tengda­for­eldrum mínum, og það er ekki litið hýru auga af þeim að halda partý þar.“

„En get ég ekki hringt í þig á næst­unni, og við fundið út úr þessu, ég hef nú ekki yfir miklu að gleðj­ast?“ 

„Jú,“ sagði ég og gaf honum upp gamla gsm síma­núm­erið sem ég var hættur að nota og lík­lega ein­hver ókunnur kom­inn með. 

„Hringdu bara hvenær sem er.“ 

Hann varð eitt bros í framan og sagði hlýjum rómi: 

„Takk, þú ert vinur í raun. Ef það er eitt­hvað sem ég þarfn­ast núna er það traustur vinur.“ 

„Ekkert mál, þetta verður allt í lagi,“ sagði ég og kvaddi hann og flýtti mér eins hratt og mér var unnt í burtu. Hef síðan ekki stigið fæti inn í þetta bíla­stæð­is­hús og sem betur fer ekki hitt þennan gamla skóla­fé­laga og um tíma bekkj­ar­bróður aftur. 

Svona á þetta nefni­lega ekki að vera. 

Svona á þetta að vera þegar ég hitti gamlan skóla­bróður og um tíma bekkj­ar­bróður, sér­stak­lega í bíla­stæð­is­húsi: 

„Er ekki allt gott að frétta?“

„Jú, jú, það er allt fínt að frétta af, ég segi allt gott, það þýðir ekk­ert annað. Heyrðu, ég verð að drífa mig, gaman að hitta þig, sjá­umst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi