Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón dáleiðari: „Dáleiðsla virkar – fólk hefur fengið hjálp við að léttast og við kvíða“

Jón dáleiðari: „Dáleiðsla virkar – fólk hefur fengið hjálp við að léttast og við kvíða“
Jón Víðis Dáleið­ari. Ljós­mynd­ari: Róbert Trausta­son

„Öll dáleiðsla er sjálfs­dá­leiðsla og við hjálpum fólki við að taka sín fyrstu skref í dáleiðsl­unni. Dáleiðsla sem með­ferð er sam­tals­form þar sem dáleið­ari og dáleiðslu­þegi vinna saman að því mark­miði sem dáleiðslu­þeg­inn vill ná.“

Draum­ur­inn er að efla dáleiðsl­una þannig að það verði jafn eðli­legt að fara til dáleið­ara eins og ann­arra með­ferð­ar­að­ila og að dáleiðsla verði jafn eðli­legt með­ferð­ar­form og að fara t.d. til sjúkra­þjálf­ara.

Þetta segir Jón Víðis Mannlífi, annar af tveimur eig­endum Dáleiðslu­skól­ans Hug­ar­efl­ingar um upp­gang dáleiðslu með­ferðar á Íslandi.

Stærstu sam­tök dáleið­ara í heim­inum
Jón Víðis Jak­obs­son og Arnþór Arn­þórs­son eig­endur skól­ans hafa kennt dáleiðslu á Íslandi frá 2016 og rekið sinn eigin dáleiðslu­skóla, Dáleiðslu­skól­ann Hug­ar­efl­ingu frá 2020.

Eftir mikla leit að bestu dáleiðslu­nám­skeið­unum sem völ er á og fundu þeir nám­skeið frá National Guild of Hypnot­ist (NGH). Af nám­skeið­unum sem þeir skoð­uðu var NGH fjöl­breytt­astur og best upp settur. NGH eru stærstu sam­tök dáleið­ara í heim­inum.

Jón Víðis lærði dáleiðslu 2011 til að nota í sýn­ing­ar­at­riðum sínum. Hann er töfra­maður og hafði hugsað sér að auka enn frekar fjöbreytn­ina í sýn­ing­unum sínum.

Dáleiðsla raun­veru­lega virkar
„Það kom mér tölu­vert á óvart þegar ég átt­aði mig á því að dáleiðsla raun­veru­lega virkar, þetta var ekki bara eitt­hvað trikk. Ég létt­ist sjálfur um 30 kg án þess að hafa neitt fyrir því. Þegar ég sá þetta virka á sjálfum mér og hvað þetta gerði fyrir fólkið sem var með mér á nám­skeið­inu, ákvað ég að opna dáleiðslu­stofu og hjálpa fólki að ná sínum mark­miðum. Ég hef tekið á móti fjölda fólks til að létta sig, hætta að reykja eða líða betur.“

Það sem vakti áhuga Arnþórs varð­andi dáleiðslu voru dáleiðslu­sýn­ingar. Þegar hann fór að kynna sér dáleiðslu nánar átt­aði hann sig enn frekar á mögu­leikum dáleiðsl­unnar og ákvað sjálfur að læra hana. Þannig kynnt­umst þeir félagar og reka nú sinn dáleiðslu­skóla, eins og fyrr segir.

Þeir sem hafa komið til þeirra og fengið hjálp með dáleiðslu eru t.d. að leita sér hjálpar við að létt­ast eða hætta að reykja og hafa náð mjög góðum árangri, segir Jón stolltur. Annars hefur fólk verið að koma vegna kvíða, flug­hræðslu, útaf verkjum og ann­ars konar van­líðan.

Betri svefn er eitt af því sem dáleiðsla virkar vel á. Dáleiðsla hjálpar fólki að leyfa sér að líða útaf og sofna í stað þessa að vera að fara yfir öll vanda­mál dags­ins eða ímynda sér vanda­málin sem þarf að fást við á morgun.

Ná betri árangri
„Íþrótta­menn hafa líka verið að koma til okkar til að ná betri árangri í því sem þeir eru að fást við, til að vera ein­beitt­ari og ekki ein­blína á þau vanda­mál sem þeir sjá fyrir sér, heldur að stefna beint á það mark­mið sem þeir ætla sér að ná. Í því sam­bandi má sér­stak­lega nefna golfara sem geta nýtt sér dáleiðsl­una til að vera yfir­veg­aðri og rólegri þegar spennan eykst og ná þarf full­komnu höggi.“

Umræðan í kringum dáleiðslu virð­ist oft vera upp­full af mýtum og segir Jón okkur að:  „fólk veit eðli­lega ekki hvað þetta er og hefur kannski þá ímynd af dáleiðslu sem við sjáum á dáleiðslu­sýn­ingum, maður á sviði að skipa fólki að hoppa eins og hænur, en það virkar nú ekki alveg þannig. Ef dáleiðsla færði mér vald yfir fólki væri ég senni­lega löngu búinn að panta mér tíma hjá banka­stjór­anum.“

Eitt af því sem fólk virð­ist ótt­ast mest er að missa stjórn eða segja frá ein­hverju sem það vill halda fyrir sig.

Því er einmitt öfugt farið, í dáleiðslu hefur fólk fulla stjórn á því sem það gerir og getur náð árangri með sín vanda­mál án þess að þurfa að vera að velta sér of mikið upp úr þeim. Þeir sem koma í dáleiðslu upp­lifa yfir­leitt mikla slökun og vellíðan.

Ýkjur og mis­skiln­ingur varð­andi dáleiðslu
„Það hefur verið áskorun að þurfa að berj­ast við fólk sem heldur fram ýkjum og mis­skiln­ingi varð­andi dáleiðslu. Fólki sem kemur óorði á dáleiðslu með yfir­lýs­ingum sem stand­ast enga skoðun. Því dáleiðsla er frá­bært með­ferð­ar­form, hefur hjálpað mörgum og það er hægt er að ná ótrú­legum árangri með dáleiðslu, en hún er ekki end­an­leg lausn á öllum heims­ins vanda­málu. Því finnst okkar að fleiri með­ferð­ar­að­ilar ættu að nýta dáleiðslu í sinni vinnu. Dáleiðsla virkar frá­bær­lega ein og sér og mjög vel sam­hliða öðrum með­ferð­ar­formum, sem við­bót við það sem með­ferð­ar­að­ilar eru þegar að nota.“

Jón seg­ist hafa náð að létt­ast án mik­illar fyr­ir­hafnar um 30 kg með dáleiðslu. Hann hélt áfram að borða það sama og hann hafði verið að borða og var ekki að pína sig á neinn hátt. Hann borð­aði miklu minna af því sem hann hafði áður gert og hann lang­aði frekar í eitt­hvað sem var betra fyrir sig. Arnþór hætti til dæmis að reykja með sjálfs­dá­leiðslu.

„Dáleiðsla raun­veru­lega virkar og er mjög árang­urs­ríkt með­ferð­ar­form.

Það eru margir sem hafa komið til mín í dáleiðslu og náð góðum árangri í því sem þeir hafa viljað breyta eða ná fram. Það er alltaf gaman að sjá mun­inn og hvað fólk verður hissa þegar það áttar sig á því að loft­hræðslan sem kom alltaf upp þegar farið var út á svalir sé horfin og það sé ekk­ert mál að fara þangað eða að það sé hægt að láta sér líða vel í flug­ferð.“

Nýjasta við­bótin á Ísland
„Nám­skeiðin sem við kennum frá NGH eru tvö Lærðu að dáleiða og Með­ferð­ar­dá­leiðsla í beinu fram­haldi. Nám­skeiðin inni­halda efni frá mörgum þekkt­ustu dáleið­urum í heimi og hafa verið þýdd á rúm­lega 10 tungu­mál og er nýjasta við­bótin á Ísland en ann­ars er hún kennd víðs vegar um heim­inn. Að loknu dáleiðslu­námi útskrifum við nem­endur okkar sem með­ferð­ar­dá­leið­ara með alþjóð­legt próf­skír­teini frá NGH og bjóðum upp á hand­leiðslu til að fylgja þeim fyrstu skrefin sem dáleið­arar.“

 Und­an­farið hafa þeir verið að halda fjölda sjálfs­dá­leiðslu­nám­skeiða, en þetta eru tveggja kvölda nám­skeið þar sem fólk lærir hvernig það getur sett upp sínar eigin með­ferðir og unnið úr þeim málum sem það hefur áhuga á að vinna með sjálft eða breyta í sínu lífi.

„Eitt af því sem fólk hefur nefnt sér­stak­lega varð­andi sjálfs­dá­leiðslu­nám­skeiðin er að það hafi hjálpað til við svefn­inn, fólk sefur betur og líður almennt betur. Við ætlum einmitt að halda áfram á þess­ari braut með stutt nám­skeið og erum að fara af stað með nám­skeið fyrir kvíða. Við gerum ráð fyrir að byrja með nám­skeið við próf­kvíða og að ná betri árangri á prófum.“

Margir þeirra sem hafa komið á sjálfs­dá­leiðslu­nám­skeiðin hafa haldið áfram og lært dáleiðslu til að ná meiri árangri og dýpri skiln­ingi á dáleiðsl­unni.

Arnþór hefur t.d. tekið það að sér að þýða nám­skeiðin á íslensku og útbúa nýtt náms­efni fyrir sjálfs­dá­leiðslu­nám­skeið sem hefur verið gríða­lega vin­sælt. Nýjasta nám­skeiðið er próf­kvíða­nám­skeið en þeir stefna á að byrja með það fyrir jól.

Á næstu vor­önn eru nám­skeiðin: Lærðu að dáleiða og Með­ferð­ar­dá­leiðsla  nám­skeiðin eru sam­tals 19 dagar auk æfinga.

Æfing­arnar tryggja að allir sem ljúka námi hjá skól­anum þekkji og kunni að nota þær aðferðir sem kenndar eru.

Á þessum nám­skeiðum er fólki kennt að dáleiða. Kenndar eru mis­mun­andi aðferðir og hvernig eigi að fást við það sem fólk kemur með til þeira til að fá dáleiðslu við.

Dagskrá nám­skeið­anna og skrán­ing fer fram á heima­síðu þeirra: hug­ar­efl­ing.is

———————-

Hér að neðan er hægt að sjá frek­ari útlistun á nám­skeið­unum þeirra.

Útlistun á nám­skeið­unum, Lærðu að dáleiða og Með­ferð­ar­dá­leiðsla:

Lærðu að dáleiða:

Á nám­skeið­inu læra nem­endur að dáleiða, farið er yfir öll helstu hug­tök og aðferðir við dáleiðslu. Hvað dáleiðsla er og hvað ekki. Frá fyrsta degi fara nem­endur í dáleiðslu og æfa sig að dáleiða aðra. Nemendur læra og æfa mis­mun­andi aðferðir við að meta næmi ein­stak­linga til að vera dáleiddir. Læra aðferðir til að inn­leiða dáleiðslu, dýpka hana og meta dýpt dáleiðsl­unnar.

Farið er yfir sögu dáleiðsl­unnar og hvað þarf að var­ast við dáleiðslu. Virkni með­vit­aða hug­ans og und­ir­vit­und­ar­innar, hvernig móta á til­lögur til að ná sem mestum árangri og ýmis­legt annað varð­andi dáleiðslu. Lærðu að dáleiða er fyrsta skrefið í því að læra með­ferð­ar­dá­leiðslu.

Nám­skeiðið byggir á erlendri fyr­ir­mynd og þekk­ingu frá National Guild of Hypnot­ists, stærstu dáleiðslu­sam­tökum í heimi, og reynslu kennar­anna sem hafa unnið við dáleiðslu í yfir 10 ár og verið aðal­kenn­arar við dáleiðslu á Íslandi síð­ustu ár.

Við lok nám­skeiðs­ins útskrif­ast nem­endur sem dáleið­arar og hafa þekk­ingu til að dáleiða.

Nám­skeiðið er 9 dagar og kennt er í þremur þriggja daga lotum:

Með­ferð­ar­dá­leiðsla:

Á nám­skeið­inu læra nem­endur með­ferð­ar­dá­leiðslu og eru í lok nám­skeiðs­ins til­búnir til að taka á móti fólki í dáleiðslu­með­ferð.

Skilyrði fyrir þátt­töku á nám­skeið­inu er að kunna að dáleiða. Hafa klárað nám­skeiðið Lærðu að dáleiða eða lært dáleiðslu ann­ars staðar.

Á nám­skeið­inu er farið yfir mark­miða­setn­ingu, streitu­stjórnun, hegð­un­ar­mat, sið­ferði í dáleiðslu, upp­bygg­ingu dáleiðslu­með­ferð­ar­tíma, við­bót­ar­hand­rit og tækni. Nemendur læra að setja upp tíma til að dáleiða fólk til að hætta að reykja, breyta vana/hegðun og aðstoða fólk við þyngd­ar­stjórnun. Hvernig á að setja upp nokk­urra tíma sjálfs­dá­leiðslu. Ald­urstengda end­ur­lits­með­ferð, hvernig hægt er að vinna með hluta hug­ans og rekstur dáleiðslu­með­ferð­ar­stofu.

Við lok nám­skeiðs­ins útskrif­ast nem­endur með alþjóð­lega vottun sem með­ferð­ar­dá­leið­arar frá stærstu dáleiðslu­sam­tökum í heimi, National Guild of Hypnot­ists.

Nám­skeiðið er 10 dagar og skipt­ist í þrjár lotur.

Sjálfs­dá­leiðsla:
Á nám­skeið­inu læra nem­endur að setja upp sína eigin sjálfs­dá­leiðslu­með­ferð frá
upp­hafi til enda, sniðna að eigin þörfum. Farið eru yfir hvernig á að skipu­leggja og
fram­kvæma ein­stak­lings­mið­aða sjálfs­dá­leiðslu sem er unnin út frá per­sónu­legum
mark­miðum nem­anda.
Nám­skeiðið er tvö kvöld 3 klukku­tímar í senn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi