Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðný teiknaði sjálfa sig í glímu við krabbamein: „Ég var að upplifa það að ég gæti hreinlega dáið“

Guðný teiknaði sjálfa sig í glímu við krabbamein: „Ég var að upplifa það að ég gæti hreinlega dáið“
Guðný Ragn­ars­dóttir

„Þetta var aðferð mín til þess að tjá mig. Það sem gerð­ist í sál­ar­líf­inu hjá mér á þessum tíma var svo stórt og mikið að það var ein­hvern veg­inn ómögu­legt að lýsa því með orðum á sama tíma og ég var að upp­lifa það að ég gæti hrein­lega dáið,“ segir Guðný Ragn­ars­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og mynd­list­ar­maður. Sýning hennar, Ein kona – mörg and­lit, verður opnuð í Gallerí 16, Vigastíg, 16., mið­viku­dag­inn 27. októ­ber. Þar verða til sýnis sjálfs­myndir sem Guðný teikn­aði í dag­bók sína á sex mán­aða tíma­bili á árunum 2016-2017 þegar hún var í krabba­meins­með­ferð. „Ég er að gefa fólki inn­sýn inn í líf mitt; sál­ar­líf. Ég hugsa að margir geti tengt við þetta sama hvar þeir eru í líf­inu og ég held að ég geti lofað hug­hrifum á þess­ari sýn­ingu. Þetta mun koma á óvart.“

Það sem gerð­ist í sál­ar­líf­inu hjá mér á þessum tíma var svo stórt og mikið að það var ein­hvern veg­inn ómögu­legt að lýsa því með orðum á sama tíma og

Guðný greind­ist með eitlakrabba­mein vorið 2016 og eftir 11 lyfja­gjafir um haustið var ljóst að þær voru ekki að virka sem skyldi og þurfti hún að fara í harð­ari með­ferð. „Það var þá sem ég byrj­aði að teikna; þegar mér varð ljóst að ég væri ekk­ert að fara út úr þessu á auð­veldan hátt og þá varð mér svo­lítið allri lokið. Raun­veru­leik­inn var ansi harður. Ég skrif­aði ekki mikið í dag­bók­ina mína í þessu krabba­meins­ferli. Þetta var ferli sem var svo­lítið erfitt að ná utan um en ég náði að teikna í dag­bók­ina. Það var eig­in­lega tján­ing mín í raun og veru og líka bara til að ná utan um breyt­ing­arnar á sjálfri mér af því að inni í mér var ég alltaf sama mann­eskjan en ytra byrðið breytt­ist svo svaka­lega mikið og það breytti því hvernig fólk upp­lifði mig. Þetta var kannski aðferð mín til þess að reyna að ná utan um það, skilja það og átta mig á þessu. Það er svo­lítið krefj­andi að skoða þessar myndir því þær eru svo lýsandi. Þær segja miklu meira heldur en ég gæti lýst í orðum.“

Guðný segir að allar mynd­irnar hafi verið teikn­aðar á ákveðnum augna­blikum. „Ég stóð fyrir framan speg­il­inn á sjúkra­hús­inu og teikn­aði mynd­ina. Þannig að myndin er nákvæm­lega eins og ég var á þeim tíma­punkti. Ferlið end­aði í 10 mín­útna kroti einn dag­inn þar sem ég var komin með sýk­ingu í háskammta­með­ferð og var mjög hætt komin; það er sein­asta myndin,“ segir Guðný og bætir við að með háskammta­með­ferð sé átt við að sjúk­lingnum sé gef­inn ban­vænn skammtur af krabba­meinslyfjum og svo þegar blóð­gildin eru öll í núlli þá séu honum gefnar stofn­frumur til að stytta tím­ann sem sjúk­ling­ur­inn er veikur eftir þessa hrika­legu með­ferð. „Ég tengi ekki við neitt í sein­ustu mynd­inni; ekki and­lits­lagið, ekki auga­brún­irnar né var­irnar. Ég var svo bólgin, hvít, sköll­ótt og hár­laus og horfði í speg­il­inn og sá að ég var alveg horfin. Ég þekkti ekki sjálfa mig en ég sá bláu augun í spegl­inum sem þýddi að sálin var ennþá þarna þótt allt hitt væri farið. Það er sú mynd sem mig langar til að flestir sjái.“ Guðný seg­ist ekki hafa fundið fyrir ótta á þessum tíma. „Ég veit ekki hvort það hafi verið út af lyfj­unum en mér voru gefin alls kyns róandi lyf. Það var bara kyrrð og ró. Ég vissi að ég hafði ekk­ert um þetta að segja en ég var undir teymi hjá Land­spít­al­anum sem bara sá um mín mál. Ég var með nær­ingu í æð og hafði ekki borðað í langan tíma. Ég var bara þarna og ég upp­lifði mesta frið sem ég upp­lifði á þessum tíma.“

Ég stóð fyrir framan speg­il­inn á sjúkra­hús­inu og teikn­aði mynd­ina.

Að þvera landið

Guðný er enn í end­ur­hæf­ingu í kjöl­far krabba­meins­ins.

„Ég þurfti að sætta mig við að lifa lífi sem telst ekki til norms hjá 35-40 ára gam­alli konu. Það tók langan tíma að vera ekki í þessum gír sem sam­fé­lagið býður manni upp á og sem ég hefði viljað vera í en þegar maður er búinn að sætta sig við þetta þá stendur maður frammi fyrir því að maður verður hrein­lega að njóta þess. Ég var búin að vera í „sur­vi­vor mode“ – sem sé bara að lifa af – í fjögur ár og færði mig yfir í að njóta og hætta að vera í þess­ari vörn og ótta og hrein­lega að fara yfir í það að geta skapað eitt­hvað og verið kannski í sókn. Í dag horf­ist ég í augu við það sem maður getur raun­veru­lega gert og sem maður vill gera og brennur fyrir. Það sem þetta hefur kennt mér er að ég er allt önnur mann­eskja. Ég held ég hafi ein­hvern veg­inn fundið mig. Þetta er ekki endi­lega nei­kvætt þótt að ferlið hafi verið erfitt en ég er smátt og smátt að finna kjarn­ann í sjálfri mér. Og ég verð ein­hvern veg­inn að treysta ferl­inu.“

Ég held ég hafi ein­hvern veg­inn fundið mig.

Þessi lífs­reynsla hefur kennt Guðný miklu fleira. „Það sem ég finn til dæmis svo sterkt fyrir þegar ég tala við fólk er að þá hrein­lega skil ég hvaðan það kemur, tengi strax.“

Maður er manns gaman og svo er nátt­úran annað og hún hefur hjálpað Guðnýju mikið und­an­farin ár. Hún er í göngu­hópi og svo hefur hún farið í göngur á eigin vegum og setti sér það mark­mið eftir með­ferð­ina að þvera landið. Hún á nú um 100 kíló­metra eftir.

„Ég fyllt­ist svo miklum lífs­krafti eftir stofn­frumu­skiptin. Ég var með skýra mynd á meðan ég lá á milli heims og helju; auð­vitað vildi ég lifa fyrir dreng­ina mína en þessi mynd tengd­ist því þegar ég gekk Fimm­vörðu­háls­inn 17 ára gömul. Það var það sem mig lang­aði til að gera aftur.“

Ég fyllt­ist svo miklum lífs­krafti eftir stofn­frumu­skiptin.

Guðný hresstist smátt og smátt og fór að ganga og sum­arið 2018 gekk hún ein Lauga­veg­inn og hélt hún reyndar fyrst sjálf og héldu aðrir líka að það yrði óyf­ir­stíg­an­legt. „Þegar ég sat í Þórsmörk og horfði á Stóra-Dímon þá hljóp í mig kapp og ég fann hvernig ég styrkt­ist bæði lík­am­lega og and­lega í nátt­úr­unni.“ Hún ákvað þá að hún myndi þvera landið.

„Ég sagði engum frá því verk­efni til að byrja með því þetta var svo klikkað. Ég ætl­aði bara að klára einn bita í einu og svo fór ég smátt og smátt að segja fólki frá þessu og þá var sagt að ég vissi ekki hvað þetta væri mikið afrek. Ég sagði að ég væri bara að gera þetta fyrir sjálfa mig. En svo var þetta víst svo­lítið afrek. Ég var samt alltaf að gera þetta fyrir mig af því að ég þurfti svo mikið að finna að lík­am­inn og sálin væru til í að vera með mér í slark­inu og und­ir­lag­inu og að fæturnir væru að bera mig. Ég gekk um 40 kíló­metra á dag í sjö daga; ég þurfti bara að finna að fæturnir bæru mig þangað til ég gæf­ist upp. Svo lagði ég af stað næsta morgun og gekk þangað til ég var við það að gef­ast upp og þetta gerði ég í sjö daga. Þetta sagði mér að ég gæti staðið undir mér og börn­unum mínum og það var það sem skipti mig mestu máli. Þetta var svo rosa­lega magnað. Og þetta er undir okkur sjálfum komið og það var kveikjan að þessu í raun og veru. Þetta var hug­sjón og prakk­ara­skapur og þarna var ég að ögra sjálfri mér. Það verður hver og einn að kveikja þennan eld í hjart­anu sínu. Svo þarf fólk bara að koma sér á óvart varð­andi það hvað það getur mikið. Ég held að það sé málið.“

Ég gekk um 40 kíló­metra á dag í sjö daga; ég þurfti bara að finna að fæturnir bæru mig þangað til ég gæf­ist upp.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi