Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Amazon rukkar neytendur án leyfis – Þóra í sjokki:„Allt í einu var ég búin að borga teygjuhelvítin“

Amazon rukkar neytendur án leyfis – Þóra í sjokki:„Allt í einu var ég búin að borga teygjuhelvítin“

„Hæ. Ég er í hálf­gerðu sjokki. Í fyrsta sinn var ég að lenda í því að það var dregið af kort­inu mínu rétt á meðan ég var að skoða vöru og athuga hver send­ing­ar­kostn­að­ur­inn væri.

Ég var ekki búin að stað­festa neitt hvað þá heim­il­is­fang, ég er með tvö. Svo þegar ég skoða á síð­unni, Amazon, þá er þessi vara ekki á lista yfir keyptar eða pant­aðar vörur.

Hefur eitt­hvert ykkar lent í svona og hvað get ég gert?“

Svo hljóðar færsla konu í Facebook-hópnum „Verslun á net­inu“.

Þetta virð­ist sann­ar­lega ekki vera eins­dæmi, en fleiri segja frá reynslu sinni af svip­uðum hlutum í athuga­semdum við færsl­una.

„Ég hef lent í þessu… var að skoða gervi­hársteygjur (hárið verður meira um sig) og ég var einmitt að gera það sama þ.e að ath. send­ing­ar­kostn­að­inn og svo bara allt í einu var ég búin að borga teygju­hel­vítin… kost­aði hingað komið rúmar 4.000 kr og sá sem allt veit veit að ég hef aldrei keypt svona teygjur. Mig lang­aði bara að vita hvað þær myndu kosta hingað komnar.

En ég taldi mig heppna þar sem ég fékk þessar tvær teygjur í mínum hár­lit loks er þær komu á klak­ann en ég var bara alls ekki búin að haka við „blonde“ áður en greiðsl­unni var rennt í gegn.

Ég gerði ekk­ert í þessu þar sem ég hélt að ég hefði gert ein­hver mis­tök,“ segir Inga nokkur.

Sigrún hefur sömu­leiðis lent í slíku atviki:

„Amazon gerði svipað hjá mér. Ætlaði að kaupa vöru en hætti við vegna send­ing­ar­kostn­að­ar­ins. Þeir ákváðu samt að taka út fyrir Amazon prime hjá mér þó ég hafi afhakað við það. Held ég muni mjög sjaldan versla við Amazon héðan í frá.“

„Þetta er still­ing­ar­at­riði á Amazon reikn­ingnum ykkar,“ segir Margrét. Það kemur nokkuð spánskt fyrir sjónir og verður að telj­ast ólík­legt að slík still­ing, að hægt sé að fram­kvæma greiðslu út af reikn­ingi án stað­festra kaupa og sam­þykkis korta­eig­anda, sé til staðar hjá fyr­ir­tæki á borð við Amazon.

„Ég lenti í þessu um dag­inn, ætl­aði að athuga hvað varan sem mig vant­aði myndi kosta með send­ingu, stað­festi aldrei neitt en fékk tölvu­póst um að ég væri búin að panta vör­una, canselleraði þessu og ekk­ert skuld­fært. Þetta er mjög slæmt en þitt mun verra, skuld­fært en ekk­ert í pöntun,“ segir Hafdís.

Andrés nokkur mælir með því að fara beina leið í bank­ann og fylla út eyðu­blað með athuga­semd um færsl­una.

„Loka kort­inu og tala við bank­ann,“ segir Sandra.

Dagbjört nokkur veltir því fyrir sér hvort fólk geymi korta­upp­lýs­ingar sínar á síðum sem þessum.

„Góður punktur. Ég taldi mig ekki gera það. En sem betur fer er ég með kortið mitt stillt þannig að ef það er notað án þess að fara í korta­les­ara þá fæ ég sms,“ segir Þóra, höf­undur upp­hafs­færsl­unnar.

Hulda nokkur seg­ist vista korta­upp­lýs­ingar sínar á síðum sem hún notar mikið, eins og Amazon. Hún tryggir öryggi sitt þó vand­lega á móti:

„Vera með góðar trygg­ingar á kort­unum, korta app þar sem þú getur læst kort­inu tíma­bundið ef þú ert ekki viss. Einungis vera skráð inn í einka­síma og einka­tölvu. Bregðast fljótt við ef þú færð til­kynn­ingu um útfærslu. Myndi aldrei nenna að vera með kortin út um allt.“

Hún heldur áfram:

„Maður lærir á þetta smá saman, mér finnst ég mjög örugg með þetta svona, ekki mikið hægt að gera þó svo að sím­anum væri stolið af mér. Allar upp­lýs­ingar þurfa alltaf ein­hverja stað­fest­ingu. Svo ef eitt­hvað er að fara út af kort­inu á Amazon.. af öllum stöðum, þá er bara ein­hver villa í kerf­inu en ekki um svik að ræða.“

Á heima­síðu Amazon er ekki bein­línis talað um vanda­mál af því tagi sem Þóra lýsir í upp­haf­s­pósti sínum. Ýmis önnur vanda­mál og villur varð­andi greiðslur eru til­teknar, en við­skipta­vinum er þó bent á að ef ekk­ert þeirra eigi við megi hafa sam­band við Amazon sím­leiðis og fá aðstoð.

Á vef­síðu Amazon segir sömu­leiðis að við­skipta­vinir séu ekki rukk­aðir fyrr en þeir velja „place your order“ (leggja inn pöntun) þegar komið er í „check out“, þar sem kaup eru stað­fest og útskrán­ing úr verslun fer fram. Raunar er það tekið fram að við­skipta­vinir Amazon séu ekki rukk­aðir um vör­urnar sem þeir kaupa fyrr en send­ing­ar­ferli hefst.

Hins­vegar, ef vör­urnar eru keyptar af þriðja aðila í gegnum Amazon, getur fyr­ir­tækið rukkað við­skipta­vini og dregið upp­hæð­ina af korti þeirra þegar þeir stað­festa kaupin.

Það virð­ist því vera full ástæða til að fylgj­ast vel með mis­tökum á borð við þau sem sagt er frá að ofan, þar sem slíkt á aug­ljós­lega ekki að geta gerst. Neyt­endum er bent á að fylgj­ast vel með yfir­liti sínu og hafa sam­band við við­skipta­banka sinn og þá net­verslun sem við á, ef þeir verða varir við dul­ar­fullar færslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi