Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björg Eva: „Betri árangur náðist nú gegn nafn­lausum áróðri og níði en í fyrri kosn­ing­um“

Björg Eva: „Betri árangur náðist nú gegn nafn­lausum áróðri og níði en í fyrri kosn­ing­um“

Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna og for­maður nefndar fram­kvæmda­stjóra stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi, segir að „nafn­laus áróður sem kviknar í leynum hefur oft verið hluti af kosn­inga­bar­áttu og vakið spennu. Safa­rík hneyksli fá vængi og fljúga um sam­fé­lags­miðla á ógn­ar­hraða, þótt óstað­fest séu,“ segir hún og bætir við:

„Versta teg­und af níði og hat­ursum­ræðu er einmitt sú eng­inn veit hvaðan kem­ur. Þannig kosn­inga­bar­átta er eitur sem skekkir lýð­ræðið og skemmir sam­fé­lags­um­ræð­una. Öll vitum við að gróu­sögur eru oft áhrifa­rík­ari en stað­reynd­ir, þegar ætl­unin er að brjóta niður og snúa almenn­ings­á­liti gegn ein­stak­lingum og heilum flokkum í kosn­inga­bar­áttu.“

Bætir við:

„Nafn­laus áróður var áber­andi bæði í Alþing­is­kosn­ingum 2016 og 2017 og hans varð vart í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum 2018. Nefnd fram­kvæmda­stjóra stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi vann í nokkur ár að því að bæta umhverfi stjórn­mál­anna og leggja til breyt­ingar á lögum til að auka gagn­sæi og traust á stjórn­mál­um.

Eitt af því sem þar var undir var nafn­lausi áróð­ur­inn. Fyrsta skrefið í þess­ari vinnu til að hindra níð og hat­ursum­ræðu í kosn­inga­bar­áttu var ákvæði um að flokk­arnir sjálfir og full­trúar þeirra gengju á undan með góðu for­dæmi. Stjórn­mála­flokk­arnir bönn­uðu sjálfum sér að fjár­magna birt­ingu eða taka þátt í birt­ingu nafn­lauss áróð­urs.“

„Stjórn­mála­sam­tök­um, kjörnum full­trúum þeirra og fram­bjóð­end­um, sem og fram­bjóð­end­um í per­sónu­kjöri, er óheim­ilt að fjár­magna, birta eða taka þátt í birt­ingu efnis eða aug­lýs­inga í tengslum við stjórn­mála­bar­áttu nema fram komi við birt­ingu að efnið sé birt að til­stuðlan eða með þátt­töku þeirra.“

Björg Eva segir að „þetta ákvæði hjálp­aði mik­ið. En það náði ekki alla leið, enda er stór og lík­lega stækk­andi hluti stjórn­mála­bar­áttu rek­inn af öðrum en flokk­unum sjálfum og full­trúum þeirra. Því varð fljótt ljóst að ákvæði til að hindra hat­urs­orð­ræðu og níð í kosn­inga­bar­áttu þyrfti að ná til stærri hóps. Eftir mikla yfir­legu fram­kvæmda­stjóra flokk­anna með stórum hópi sér­fræð­inga um mann­rétt­indi og tján­ing­ar­frelsi varð eft­ir­far­andi ákvæði til og bundið í lög um stjórn­mála­bar­áttu nú í vor 2021.“

„Frá þeim degi er kjör­dagur hefur form­lega verið aug­lýstur vegna kosn­inga til Alþing­is, til sveit­ar­stjórna eða til emb­ættis for­seta Íslands, svo og vegna boð­aðrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, skulu aug­lýs­ingar og annað kostað efni, sem ætlað er að hafa áhrif á úrslit kosn­inga, vera merkt aug­lýsanda eða ábyrgð­ar­mann­i.“

Björg Eva er á því að í „kosn­inga­bar­áttu fyrir nýaf­staðnar kosn­ingar til Alþingis 25. sept­em­ber virð­ist sem meiri árangur hafi náðst við að stemma stigu við nafn­lausum áróðri og þar með níði, en í fyrri kosn­ing­um. Það er mikið fagn­að­ara­efni. Ástæða er til að ætla að krafa í lögum um merk­ingar og ábyrgð á aug­lýs­ingum sé hluti af þeirri góðu þró­un. Fleira kom einnig til og má nefna nýjar reglur Face­book, verk­lags­reglur stjórn­mála­flokk­anna um sam­fé­lags­miðla, fræðslu­á­tak Fjöl­miðla­nefndar og upp­lýsta umræðu í sam­fé­lag­inu. Hitt er jafn öruggt að vinnu gegn lúa­legum bar­áttu­að­ferðum í póli­tík lýkur aldrei. Nú stytt­ist í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og þá er gott að fólkið í land­inu sé með­vitað um hvað ein­kennir heil­brigða stjórn­mála­um­ræðu og haldi áfram að veita það aðhald sem þarf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi